Bændablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Fréttir
Fyrstu Farmall A dráttarvélarnar
komu til landsins fyrir 70 árum,
eða þann 18. febrúar 1945 með
flutningskipinu „Gyda“.
Þóroddur Már Árnason, vélvirki
í Neskaupstað, hefur tekið saman
gögn um þessar vélar sem ekki hafa
áður verið birt opinberlega. Hann
sagði í samtali við Bændablaðið að
eftir að bækur Sambands íslenskra
samvinnufélaga (SÍS) voru opnaðar
fyrir nokkrum misserum, þá hafi
hann látið afrita skýrslur um
dráttarvélainnflutning Sambandsins.
Er samantekt Þórodds eftirfarandi:
25 vélar og kostaði
hver þeirra 5.960 krónur
Í þessari fyrstu sendingu árið 1945
voru 25 vélar með þyngdarklossum
og reimskífu. Kostuðu vélarnar
5.960 krónur.
Öllum vélunum fylgdi sláttuvél
Öllum þessum vélum fylgdi sláttuvél
af gerðinni 16A. Flestum vélunum
fylgdi plógur af gerðinni IH192A.
Rúmum helmingi vélanna fylgdi
diskaherfi, ýmist af gerð, 10A eða
No.17-12 diska. Plógnum var lyft
með pústinu og var kúturinn einatt
notaður til að lyfta heyýtum sem
smíðaðar voru á marga Farmall
A. Með þessum fyrstu Farmall
A dráttarvélum hófst í raun
dráttarvélavæðing íslenskra sveita.
Næsta sending, 50 stk., kemur svo í
apríl. Alls flutti Sambandið inn 174
Farmalvélar þetta ár. Með startara og
ljósum koma Farmalarnir ekki fyrr
en 22.6 1946. 100 fyrstu Farmalarnir
er komu það ár, voru framleiddir
1945.
Búinn að rekja saman raðnúmer
og kaupendur nokkurra véla
Þóroddur er búinn að rekja
saman raðnúmer (serial no.) og
kaupendur á sjö af 25 Farmall
A dráttarvélunum sem komu til
landsins 1945. Hin raðnúmerin af
vélum úr sömu sendingu eru birt
hér til hliðar. Þeir sem hafa vélar
með þessum númerum eða vita um
kaupendur þeirra og sögu geta haft
samband við Þórodd Má Árnason
í Neskaupstað í síma 477-1618 eða
sent honum upplýsingar á netfangið
mar2@simnet.is. /HKr.
Farmallinn á Íslandi sjötugur
− alls voru 25 dráttarvélar í fyrstu sendingunni sem kom með flutningaskipinu Gyda 18. febrúar árið 1945
Miðhellu 4
S. 414 8080 www.naust.is
Victron energy
hleðslutæki í úrvali
Fylgdu okkur
á Facebook
Hágæða hleðslutæki sem
auka líftíma rafgeyma og
verja gegn skemmdum.
Vatns, ryk og efnaþolin.
“Smart charge algorithm”.
Endurlífga “dauða” geyma.
Sjálfvirk spennugjafastilling.
Gerð Raðnúmer Staðfestir handhafar raðnúmers
1 Þorgímur Bjarnason Dældarkoti Snæf. FAA
2 Ræktunarfélag Stykkishólms. FAA
3 Guðmundur Magnússon Hóli Bolungavík. FAA 110906 Guðmundur Magnússon Bolungarvík.
4 Búnaðarfélag Neskaupstaðar Norðfirði. FAA 110634 Búnaðarfélag Neskaupstaðar Norðfirði.
5 Kaupfélag Árnesinga Sigtúnum. FAA
6 Kaupfélag Árnesinga Sigtúnum. FAA
7 Albert Guðmundsson Nýjabæ Miðneshreppi. FAA
8 Kristján Davíðsson Oddstöðum Borg FAA 110594 Kristján Davíðsson Oddsstöðum Borg.
9 Jón Gíslason Skeljabrekku Borg FAA 110844 Jón Gíslason Innri-Skeljabrekku Borg.
10 Hvanneyrarbúið. FAA 110908 Skólabúið Hvanneyri Borg.
11 Sveinbjörn Högnason Breiðabólsstað Fljótshlíð. FAA
12 Kaupfélag Önfirðinga Flateyri. FAA
13 Sigurður Sigurðsson Efstadal Árn. FAA
14 Ræktunarfélag Hafnarkauptúns Hornaf. FAA
15 Félagsbúið Hæli Gnúpverjahreppi Árn. FAA
16 Jóhann Kolbeinsson Hamarsheiði Árn. FAA
17 Sigurður Gíslason Hvaleyri Hafnarfirði. FAA
18 Eyþór Stefánsson Eyvindarstöðum Álftanesi. FAA
19 Kristbjörn Guðlaugsson Arnarstapa Snæf. FAA
*20 Eiríkur Þorsteinsson Glitsstöðum Borg FAA 110593 Eiríkur Þorsteinsson Glitstöðum Borg.
21 Kaupfélag Skaftfellinga Vík Mýrdal. FAA
22 Kaupfélag Skaftfellinga Vík Mýrdal. FAA
23 Bændaskólinn Hólum Hjaltadal. FAA
24 Björn Björnsson Grjótnesi Sléttu. FAA
25 Árni Ögmundsson Galtafelli Árn. FAA 110682 Árni Ögmundsson Galtafelli Hrun.
*Vél Eiríks Björnssonar FAA 110539 er með lægsta raðnúmerið af vélunum 25
Þessi vél er því vera fyrsta Farmal A vélin sem framleidd var í sendingunni 1945
Hún er nú staðsett í Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri
Kaupendur fyrstu Farmall A árið 1945
FAA 110631
FAA 110632
FAA 110683
FAA 110839
FAA 110840
FAA 110841
FAA 110843
FAA 110845
FAA 110846
FAA 110883
FAA 110884
FAA 110886
FAA 110889
FAA 110891
FAA 110905
FAA 110907
FAA 110909
FAA 110910
Hringtenging ljósleiðara um
Vestfirði virðist komin á dagskrá.
Í fjárlagafrumvarpinu sem
samþykkt var nú í desember
síðastliðnum er gerð tillaga um
300 milljóna tímabundið framlag
til fyrsta áfanga framkvæmda við
fyrirhugaða fjarskiptaáætlun.
Í henni eru m.a. sett fram töluleg
markmið um ljósleiðaravæðingu
og uppbyggingu annarra
fjarskipta á komandi árum. Það er
Fjarskiptasjóður sem fær framlagið
og gert er ráð fyrir að um 200
milljónum af upphæðinni verði varið
í verkefni sem snýst um að tengja
ótengda staði og hringtengingar
ljósleiðara á ákveðnum landsvæðum.
Samkvæmt því sem fram hefur
komið, m.a. á fundi þingmanna og
sveitarstjórnarmanna á Reykhólum í
haust, er hringtenging ljósleiðara um
Vestfirði þar fremst í forgangsröðinni.
Má því reikna með að ljósleiðari
verði lagður um sunnanverðar
Strandir næsta sumar, frá Brú í
Hrútafirði til Hólmavíkur og jafnvel
á Drangsnes. Síðan yrði hringnum
lokað með lagningu ljósleiðara um
Djúpið. Framkvæmdin væri mikið
framfaraskref fyrir Strandir sem hafa
ekki verið tengdar ljósleiðarakerfinu
til þessa, að því er fram kemur á
vefnum strandir.is.
/MÞÞ
Ljósleiðaravæðing fyrir vestan
Mynd / HKr.