Bændablaðið - 12.02.2015, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
K 2.21
K 4.200
K 7.700/K 7.710
K 5.700
T 400
Snúningsdiskur
Jörð
óskast
Á Vestfjörðum eða Vesturlandi óskast jörð,
æskilegt að hún hentaði fyrir ferðamennsku.
Uppl. sendist í pósthólf 9003,
Þönglabakka 4, 109 Reykjavík.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 26. febrúar
Búnaðarstofa
Lýsingarbúnaður í gróðurhúsum
Áður auglýstur umsóknarfrestur framlengist til 15. mars 2015
Veittir eru styrkir til uppsetningar á lýsingarbúnaði samkvæmt aðlögunarsamningi um
starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða og reglugerð nr. 1178/2014, VIÐAUKA I,
Verklagsreglur um úthlutun styrkja vegna uppsetningar á lýsingarbúnaði.
Rafrænar umsóknir skal fylla út á Bændatorginu (www.bondi.is) eigi síðar en 15. mars 2015.
Rafrænt umsóknarform og reglugerð er að finna á Bændatorginu. Nánari upplýsingar veitir
Ásdís Kristinsdóttir í síma 563 0300 og á ak@bondi.is
Aðeins er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Bændatorgið.
Vatnsveitur á lögbýlum
Áður auglýstur umsóknarfrestur framlengist til 15. mars 2015
Veittir eru styrkir úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum í
dreifbýli samkvæmt reglugerð nr. 973/2000 með síðari breytingum.
Rafrænar umsóknir skal fylla út á Bændatorginu (www.bondi.is) eigi síðar en 15. mars 2015. Með
umsókn skal fylgja staðfest kostnaðar- og framkvæmdaáætlun.
Rafrænt umsóknarform verður opnað þriðjudaginn 24. febrúar nk. Reglugerð er að finna á
Bændatorginu. Nánari upplýsingar veitir Guðrún S. Sigurjónsdóttir í síma 563 0300 og á gss@bondi.is
Aðeins er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Bændatorgið.
Styrkir til frumbýlinga í sauðfjárrækt
Áður auglýstur umsóknarfrestur framlengist til 15. mars 2015
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt ákvæðum
núgildandi sauðfjársamnings og reglugerð nr. 1100/2014, VIÐAUKA IV, Verklagsreglur um úthlutun
bústofnskaupastyrkja til frumbýlinga.
Rafrænar umsóknir skal fylla út á Bændatorginu (www.bondi.is) eigi síðar en 15. mars 2015. Rafrænt
umsóknarform verður opnað miðvikudaginn 18. febrúar nk. Reglugerð er að finna á Bændatorginu.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún S. Sigurjónsdóttir í síma 563 0300 og á gss@bondi.is
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Bændatorgið.
Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík