Bændablaðið - 12.02.2015, Page 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Lesendabás
Á opnum borgarafundi í
Borgarnesi 30. janúar sl., þar
sem fjallað var um framtíð
háskóla í Borgarbyggð, var
kynnt sú hugmynd mennta- og
menningarmálaráðherra að
sameina Landbúnaðarháskóla
Íslands, Háskólann á Bifröst og
Hólaskóla – Háskólann á Hólum
í eina sjálfseignarstofnun.
Formanni Bændasamtaka
Íslands leist vel á þessa hugmynd
ráðherrans sem jafnframt felur
það í sér að rétta megi af fjárhag
skólans með því að krefja
nemendur Landbúnaðarháskólans
um skólagjöld. Taldi formaður BÍ
að bændur væru orðnir hugsi yfir
stöðu Landbúnaðarháskóla Íslands
og velti hann upp þeirri spurningu
hvort skólinn væri notendadrifinn.
Væri það einkum tvennt sem ylli
mönnum áhyggjum, annars vegar
að starfsmenntanámið væri orðið
olnbogabarn innan skólans og
hins vegar að þar væri ekki mikið
stundað af hagnýtum rannsóknum.
Var á honum að skilja að þetta væru
nægilegar ástæður til þess að leggja
niður Landbúnaðarháskóla Íslands í
núverandi mynd og réttast væri að
sigla í þá átt sem ráðherra legði til.
Hugum ögn betur að þessum
fullyrðingum. Reikna má með
að formaðurinn telji að það sé
einkum búfræðinámið sem sé orðið
olnbogabarn í rekstri skólans. Hefur
það orðið raunin? Í töflunni má sjá
fjölda útskrifaðra búfræðinga á
árunum 2008 til 2014 og áætlaðar
útskriftir 2015–16 miðað við fjölda
nemenda í skólanum núna. Þarna
hefur orðið heldur betur bragarbót
á. Árið 2008 útskrifuðust 16
búfræðingar frá skólanum og flestir
urðu þeir 47 árið 2013. Ef fer fram
sem horfir og ekkert óvænt gerist
gætu 66 búfræðingar bæst í hópinn
á næstu tveimur árum. Í töflunni
má einnig sjá að heildarvelta
skólans hefur dregist saman úr
1.750 m.kr. árið 2008 og í 1.172
m.kr. á síðasta ári eða um 33%.
Hefur þessi samdráttur ekki verið
látinn koma niður á möguleikum
skólans til þess að mennta
búfræðinga – þvert á móti. Á þessu
tímabili hefur fjöldi stöðugilda við
starfsmenntadeild verið óbreyttur.
Staðinn hefur verið dyggur vörður
um starfsmenntanámið og því
tæpast hægt að líta á það sem
olnbogabarnið á heimilinu.
En hvað með rannsóknirnar?
Því miður er staðan ekki eins
glæsileg þar. Samdrátturinn hefur
komið af fullum þunga niður á
rekstri háskóladeildanna. Þannig
voru ársverk starfsmanna við
háskóladeildirnar tæp 44 árið 2008
en eru nú orðin tæp 26 í upphafi árs
2015. Ekki hefur tekist að ráða inn
nýja starfsmenn í stað þeirra sem
hætt hafa vegna aldurs og er rúmur
helmingur starfsmanna kominn
yfir fimmtugt, og fimmtungur yfir
sextugt. Kennslan hefur verið látin
hafa forgang og tekið hefur verið
við öllum þeim nemendum sem hafa
haft áhuga á að hefja nám hafi þeir
uppfyllt lágmarksskilyrði. Erfiðlega
hefur gengið að afla rannsóknafjár
og stefnir í að sértekjur vegna
rannsóknaverkefna sem aflað var
á liðnu ári verði einungis um 60%
af því sem þær voru 2009. Eitthvað
hefur því orðið undan að láta.
En hafa starfsmenn misst
áhugann á hagnýtum rannsóknum
eins og formaðurinn gaf í skyn?
Nú er erfitt að átta sig á hvað átt
sé með hagnýtum rannsóknum í
þessu samhengi. Er þarna verið að
vísa til viðfangefnis rannsóknanna,
hvernig niðurstöðum sé miðlað til
notendanna eða hversu langan tíma
það taki fyrir rannsóknirnar að bera
ávöxt? Almennt er litið svo að á
hagnýtar rannsóknir snúi að því að
skapa nýja þekkingu með eitthvert
tiltekið, hagnýtt markmið í huga.
Það er óhætt að fullyrða
að viðfangsefni allra þeirra
rannsókna sem stundaðar eru á
Landbúnaðarháskóla Íslands séu
af hagnýtum toga með einum eða
öðrum hætti. Tökum dæmi. Fyrir
rúmum 25 árum hófst stórátak í
að kynbæta bygg fyrir íslenskar
aðstæður og aðlaga ræktun þess
íslenskum skilyrðum. Afraksturinn
er áþreifanlegur: fjögur ný byggyrki
hafa litið dagsins ljós og síðustu
sex árin hefur hlutdeild þeirra í
markaðnum verið um þriðjungur
að jafnaði. Að meðaltali tók það
um 13 ár frá fyrstu víxlun að fá
verslunarvöru í hendur en almenna
viðmiðið í útlöndum er 15 ár. Tveir
af hverjum þremur kúabændum
rækta korn og eru akrar orðnir um
4.500 hektarar samtals. Af þeim
fást um 17% af því fóðurkorni sem
bændur nota nú í framleiðslu sína.
Við höfum alla möguleika á að
íslenskt heimaræktað korn fullnægt
helmingnum af allri kjarnfóðurþörf
landsins. Þekkingin er fyrir hendi.
Nú eru að verða kynslóðaskipti í
byggkynbótunum. Nýútskrifaður
doktor í sameindaerfðafræði hefur
bæst í hópinn og doktorsnemi vinnur
að því að innleiða nýja tækni svo
unnt sé að ná enn frekari árangri. Þeir
munu birta niðurstöður rannsókna
sinna í erlendum vísindatímaritum
enda gerir doktorsnám kröfu um
slíkt. Hætta þá rannsóknirnar að
vera hagnýtar? Alls ekki.
Tökum annað dæmi. Tveir
doktorsnemar hafa útskrifast frá
skólanum með sérþekkingu í
kynbótafræði búfjár. Niðurstöður
þeirra rannsókna birtust að
sjálfsögðu í alþjóðlegum
vísindatímaritum. Þarf nokkuð að
deila um hvort viðfangsefni þeirra
hafi verið hagnýt og komi að notum
við kynbótastarf í landbúnaði?
Tökum þriðja dæmið. Sýnt hefur
verið fram á í umfangsmiklum
rannsóknum síðustu 20 árin eða
svo að ræktun fóðurbelgjurta geti
skilað umtalsverðum ávinningi
fyrir íslenska bændur, m.a. þar sem
þær vinna nitur úr andrúmsloftinu
með hjálp jarðvegsbaktería þannig
að spara má kaup á tilbúnum
nituráburði. Niðurstöðurnar hafa
verið kynntar í ræðu og riti á
fjölbreyttum vettvangi innan lands
og utan. Nú er það bændanna sjálfra,
með hjálp ráðunauta, að nýta sér þá
þekkingu sem aflað hefur verið til
hagsbóta fyrir sinn rekstur. Er þetta
ekki örugglega hagnýt þekking?
Svona mætti lengi telja.
Rétt í lokin er gaman að geta
þess að hæsti styrkurinn, sem veittur
var í byrjun árs úr Rannsóknasjóði
að upphæð tæpar 42 m.kr., féll í
skaut vísindamönnum úr Háskóla
Íslands. Á undanförnum árum
hafa þeir notað tölvuútreikninga
til þess að finna leiðir við að
afoxa N2 rafefnafræðilega við
herbergishita og -þrýsting svo að
hægt sé að framleiða ammóníak
fyrir áburðarframleiðslu. Núverandi
aðferð (Haber-Bosch) krefst mikillar
orku og ef verkefnið heppnast gæti
það valdið byltingu í landbúnaði á
heimsvísu. Þetta er því gott dæmi
um verkefni, sem við fyrstu sýn
mætti flokka sem grunnvísindi en
gæti skyndilega orðið hagnýtt á
stórum skala.
Ég vil því leyfa mér að draga
í efa að þessi rök formanns
Bændasamtaka Íslands dugi ein og
sér til þess að réttlæta niðurlagningu
Landbúnaðarháskóla Íslands í
núverandi mynd. Þvert á móti þarf
miklu fremur að óttast framtíð
hagnýtra rannsókna í landbúnaði
innan veggja sjálfseignarstofnunar
þar sem hætta er á að lítið svigrúm
gefist fyrir rekstur verkefna
sem taka langan tíma og krefjast
sérhæfðar þekkingar. Það sem
Landbúnaðarháskóli Íslands
þarf fyrst og síðast á að halda er
stöðugleiki til þess að geta sinnt
lögboðnu hlutverki sínu.
Áslaug Helgadóttir
aðstoðarrektor
Er Landbúnaðarháskóli Íslands
ekki örugglega notendadrifinn?
*Áætlað
Áslaug Helgadóttir
Hótel Grásteinn
2 manna herbergi með morgunmat, verð 9000 kr.*
Bjóðum upp á úrvals gistingu og
fría geymslu á bíl á meðan dvalið er erlendis.
Bolafótur 11, 260 Reykjanesbær
Sími 4215200 - hotelgrasteinn@simnet.is
*verð miðast við bókun í gegnum síma eða email.
Þinn dagur, þín áskorun
OLYMPIA
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is
Sölustaðir:
30
ÁRA
100% Merino ull
Góð og hlý heilsársföt
fyrir karla og konur
Stærðir: S – XXL
Nova X-Dry getur
innbyrt allt að tvöfalda
þyngd sína af raka
Nova X-Dry
- rakadrægt og sótthreinsandi
• Þurrkar
• Eyðir lykt
• Sótthreinsar
• Minnkar hættu
á sýkingu
• Dregur úr vaxtar-
skilyrðum skordýra
Einstakt undirburðarefni
fyrir stíur og bása
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00