Bændablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 42

Bændablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015 Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson Ssang Yong Rexton alvörujeppi Fyrir jól þegar ég prófaði Opel Meriva bílinn sá ég jeppa sem mér leist vel á og vildi prófa sem stóð í sýningarsalnum í Bílabúð Benna. Ég fékk jeppann lánaðan um helgi fyrir skemmstu og varð ekki fyrir vonbrigðum. Vinnur vel og vél hljóðlát Til að ég kalli jeppa jeppa þarf hann að vera byggður á grind, hátt og lágt drif á hásingu a.m.k. að aftan (helst framhásingu líka). Rexton DLX er með 2,0 dísilvél sem á að skila 155 hestöflum. Uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 7,8 lítrar á hundraðið. Sjálfskiptingin er eins og í sumum Benz bílum og er hægt að stilla hana á sumar og vetrarstillingu. Munurinn er að á vetrar- stillingunni leggur bíllinn af stað í öðrum gír (fer mjúklega af stað og minni hætta á spóli). Það eina sem ég var ekki sáttur við var að prufubíllinn sem ég ók var komin á 17 tommu felgur í stað 16 og á yfirstærð af dekkjum (265/70/17 í stað 235/70/16 sem bíllinn kemur á). Ég er alfarið á móti að stækka felgur og lækka hæð dekkja yfir vetrarmánuðina, en með yfirstærð dekkja var þessi bíll með sömu belghæð dekkjanna og á að vera undir honum. Við íslenskar aðstæður sem eru á veturna þarf belgmikla hjólbarða í klaka og snjó og þegar snjórinn og klakinn eru farin verður eftir holótt malbik með hvössum brúnum sem heggur auðveldlega í sundur hjólbarða með lágan „prófíl“, þess vegna er ég alfarið á móti að stækka felgur (vil frekar minnka felgur og hækka belghæð dekkja sem nemur felgustærðarmun til að fá betri fjöðrun út úr dekkjum við vondar íslenskar vetraraðstæður). Sæti góð og útsýni Rexton er skráður sjö manna. Öftustu tvö sætin eru að öllu jöfnu lögð niður en eru samt ágæt sæti, en ekki grjótharðar sessur og bak eins og í sumum bílum. Að keyra bílinn er mjög gott, manni líður vel í sætunum, en þau er hægt að stilla vel að þörfum hvers og eins. Í aftursætunum eru sætishitarar sem ekki er í mörgum bílum (er að aukast). Útsýni er mjög gott til allra átta og mjög lítið sem póstar trufla mann við akstur. Að bakka bílnum eftir hliðarspeglunum er mjög gott þar sem þeir eru einstaklega stórir og vel staðsettir. Það eina sem ég saknaði við akstur bílsins var aksturstölva til að fylgjast með eyðslunni, sjá hvað hitastigið er úti og fleira sem er í mörgum bílum. Góð dráttargeta Rexton er með varadekk sem eingöngu er ætlað til að bjarga sér á næsta hjólbarðaverkstæði, en þó nokkuð er um að jeppar séu varadekkslausir með einungis tappasett og pumpu til að bjarga sér (ekki hentugt fyrir íslenskar aðstæður). Dráttargeta bílsins er 2.600 kg. Verðið á bílnum kom mér mest á óvart, en Rexton er fáanlegur á verði frá 6.890.000 sem er töluvert undir verði sambærilegra jeppa. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um SsangYong Rexton á vefslóðinni www.benni.is. Mitt mat er að þarna er á ferðinni mjög góður jeppi á frábæru verði. Verð 3.990.000 Vél 1,4 l bensín - 140 hestöfl Hæð 1.615 mm Breidd 1.912 mm Lengd 4.300 mm Helstu mál og upplýsingar SsangYong Rexton DLX turbo disel. Myndir / HLJ Hátt undir bílinn, varadekkið er svo- kallaður aumingi, en varadekk engu síður, annað en í sumum bílum. Prufubíllinn á aðeins of stórum dekkjum, ef bremsað var og beygt í sama mund heyrði maður dekkin rekast í innra brettið. Skipta um smurolíu og olíusíu Hvers vegna þarf að passa upp á að skipta reglulega um smurolíu og smursíu á vélum? Mjög algengt er að bílar sem koma á smurstöðvar eru komnir á bilinu 1000 til 5000 kílómetra fram yfir olíuskipti (hef séð smursíu sem var komin 80.000 fram yfir olíuskipti). Vissulega eru smurolíur alltaf að verða betri og betri frá öllum framleiðendum smurolíu og dæmi eru um smurolíur sem þola allt að 30.000 km akstur, en við búum við sérstakar aðstæður veðurfarslega varðandi raka í loftinu, vegalengdir eru mjög oft stuttar sem vélar eru í gangi. Vélar sem notaðar eru þannig að þær eru stutt í gangi á veturna og rétt volgna við notkun er hætt við að þær dragi rakt loft inn á sig við kólnun. Með tímanum kemst raki inn í smurolíuna (smurolían verður ljósbrún að lit). Þetta á sérstaklega við um litlar vélar (mesta hættan í litlum fólksbílum og fjórhjólum). Smursíur Smurolíurnar eru almennt góðar, en ekki gildir sama um smursíur, framþróun og tækni við smursíur er hægari en í olíum. Margar smursíur eru með ventil sem opnast þegar sían er orðin stífluð af óhreinindum sem koma úr vélinni. Fer þá öll smurolía ósíuð um smurgang vélarinnar. Það getur verið erfitt að verða þess áskynja að smursían sé orðin það skítug að hún gerir ekki það sem henni er ætlað. Ef vél byrjar skyndilega að brenna smurolíu getur verið nóg að skipta um smursíu. Ástæðan, hugsanlega óhreinindi séu það mikil að smurolían kemst inn í brunahólf véla (t.d. með ventlafóðringum og ventlum sem eru óhreinir). Ekki er óalgengt að þeir sem eiga bíl með vél sem brennir olíu séu að bæta reglulega á vélina og fara fram yfir smurtíma trúandi því að með því að vera alltaf að bæta nýrri olíu á vélina sé óhætt að fara fram yfir á olíuskiptum. Ódýrari lausn getur í mörgum tilfellum verið að skipta um smursíu, þá hreinsast vélin og smurolíubruninn hættir (smursía er oft ódýrari en lítri af smurolíu og í flestum tilfellum auðvelt að skipta um). Vinnuvélar og drif Í mörgum dráttarvélum (og öðrum vinnuvélum) er mikið af smurolíu sem í sumum tilfellum á að þola 500 vinnustundir. Persónulega finnst mér þetta fulllangur tími fyrir smursíuna og mæli ég með að á u.þ.b. miðju tímabili sé skipt um síu. Verði menn varir við að viðvörunarljós um olíuþrýsting sé lengi að slokkna við ræsingu eða sjáist í hægagangi þegar vélin er heit sé vert að skoða hvort ekki sé tími fyrir smursíuskipti. Drif eru varasöm á mörgum tækjum ef verið er í einhverju vatnasulli. Oftast er öndunartappi ofarlega á drifinu og ef farið er það djúpt í vatn að öndunin fer í kaf myndast sog af vatni inn á drifið þar sem að drifið er að kólna frá kulda vatnsins og myndar þannig sog. Auðvelt er í flestum tilfellum að skoða olíu á drifi á flestum vinnuvélum og jeppum með því að taka tappann úr og skoða olíu. vatn hefur komist í. Innihald olíusíu eftri 80 þúsund km akstur.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.