Bændablaðið - 10.09.2015, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015
Hundahótel Norðurlands á Jórunnarstöðum í Eyjafjarðarsveit:
Oft erfiðara að fá pössun
fyrir hundinn en börnin
„Það er greinilega mikil þörf
fyrir starfsemi af þessu tagi,“
segir Elmar Þór Magnússon,
sem rekur Hundahótel
Norðurlands að Jórunnarstöðum
í Eyjafjarðarsveit. Mikið hefur
verið að gera í sumar, aukningin
frá því í fyrrasumar, þegar starf-
semin hófst, nemur um 150%.
„Þetta er þjónusta sem sárlega
vantaði hér um slóðir, það sýna þær
góðu viðtökur sem við höfum feng-
ið,“ segir hann. Gamalt fjós var tekið
undir starfsemina og það lagað að
henni. Nú eru 15 búr á hótelinu og
stendur til að fjölga þeim um 6 í haust
til að annað sívaxandi eftirspurn.
Elmar er Suðurnesjamaður,
fæddur og uppalinn í Garðinum og
stundaði sjómennsku frá unglings-
aldri, var bæði á stærri og minni
bátum til 25 ára aldurs. Hann lærði
smíðar og starfaði við þá iðn þar til
hann flutti norður í Eyjafjörð fyrir
rúmum tveimur árum, í mars árið
2013 þegar hann stóð á fertugu. „Ég
hafði aldrei verið í sveit áður, en það
er nú skemmst frá því að segja að
mér líður mjög vel í sveitinni,“ segir
hann.
Gengu frá kaupum í snatri
Elmar og þáverandi kona hans,
Helga Andersen, höfðu um skeið
látið sig dreyma um að flytjast í
sveit og höfðu augastað á Suðurlandi.
„Við vorum að leita að sveitabæ á
Suðurlandi þar sem við gætum skap-
að okkur atvinnu, langaði að fara í
ferðaþjónustu, setja t.d. upp smáhýsi
og bjóða upp á gistingu, það var ein
hugmyndin,“ segir Elmar. Erfiðlega
gekk að finna bæ á viðráðanlegu
verði sunnan heiða. Leikar fóru
svo að Helga rak augun í auglýs-
ingu á netinu um að Jórunnarstaðir
í Eyjafjarðarsveit væru til sölu, þau
brunuðu strax norður til að skoða
og leist vel á. Í framhaldinu lögðu
þau fram tilboð í jörðina og því var
tekið. Elmar varð fertugur meðan
á þessu stóð, um miðjan mars árið
2013, hann skellti upp afmælis- og
kveðjuveislu og hélt svo af stað
norður í land.
„Þetta gerðist allt frekar snögg-
lega, tók rétt um það bil viku frá því
við sáum auglýsinguna og þar til ég
var kominn norður.“
Úr nautum yfir í svín
Nautaeldi var stundað á
Jórunnarstöðum á þeim tíma, þar
voru 60 gripir fyrir þegar Elmar og
Helga tóku við búskapnum og fóru
þau mest upp í 110 gripi. Þau hafa
smám saman síðan trappað sig niður,
hættu að kaupa kálfa síðasta haust
og eru með um 30 gripi nú. Elmar
hefur hug á að taka upp svínarækt
„Það er greinilega mikil þörf fyrir starfsemi af þessu tagi,“ segir Elmar Þór Magnússon, sem rekur Hundahótel Norðurlands að Jórunnarstöðum í Eyjafjarðarsveit. Hér er hann með „hótelgestin-
um“ Freyju, sú hvíta, og heimilishundinum Gutta. Myndir / MÞÞ
Elmar gerði fjósið á staðnum upp og kom þar fyrir búrum fyrir hundagæsluna.
Við hundahótelið er Elmar að útbúa útisvæði við hvert hundabúr og miðar vel
með það verkefni. Í hlöðunni, sem er áföst, stendur til að bæta við 6 búrum
fyrir hundagæsluna, en einnig er hann að breyta húsnæðinu og hyggst hefja
þar svínarækt á haustdögum.
Gestabókin á Jórunnarstöðum er á vegg í eldhúsinu.