Morgunblaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Akraneskaupstaður hefur boðað stjórnarformann og framkvæmda- stjóra Spalar, sem eiga og reka Hvalfjarðargöng, á fund þar sem farið verður yfir öryggismál í göng- unum. Tilefni fundarboðsins er bruni í Gudvanga-göngum í Noregi í gær og fjölgun farartækja í göng- unum að sögn Regínu Ásvalds- dóttur, bæjarstjóra á Akranesi, en forsvarsmenn Spalar verða gestir á bæjarráðsfund 26. ágúst næstkom- andi. „Það er alltaf hollt að horfa í kringum sig þegar það koma svona fréttir eins og í dag varðandi brun- ann í Gudvanga-göngum,“ segir Regína en hún keyrði sjálf í gegn- um göngin í Noregi fyrir viku. Veður oft válynd á kaflanum Ýmsir aðilar koma að öryggis- málum í Hvalfjarðargöngum að sögn Regínu, m.a. ríkislög- reglustjóri, Spölur, slökkviliðs- stjórinn á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu og lögreglustjórinn á Vesturlandi. „Þetta er margskipt ábyrgð og við ætlum m.a. að fara yfir þá þætti, segir Regína en það er mjög brýnt að hennar mati að taka um- ræðuna um umferðaröryggismál á Vesturlandi. Vísar hún þar sérstaklega til Vesturlandsvegar sem er sú fram- kvæmd sem mikilvægast er að ráð- ist verði í að mati bæjarráðs Akra- neskaupstaðar. Ekki er gert ráð fyrir fram- kvæmdum á Vesturlandsvegi næstu fjögur árin og bendir Regína á að umferðarþungi á veginum sé jafn mikill og á hringveginum frá höfuðborginni að Selfossi. Þar eru akgreinar þrjár til fjórar en tvær á milli Akraness og Reykjavíkur. „Við höfum kallað eftir úrbótum varðandi Vesturlandsveg og við viljum taka umræðuna um Sunda- braut með Vegagerðinni og innan- ríkisráðuneytinu,“ segir Regína en umferðaröryggi er að hennar mati síst betra á Vesturlandsvegi en í Hvalfjarðargöngunum eins og stað- an er í dag. Í umsögn bæjarráðs Akranes- kaupstaðar um samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar til ársins 2018, sem var ekki afgreidd á síðasta þingi, segir að veður á Vest- urlandsvegi séu oft válynd og mik- ilvægt sé að tryggja umferðarör- yggi með sem bestum hætti. Þar er jafnframt bent á að gert sé ráð fyrir framkvæmdum frá Þingvallavegi að Kollafirði og frá Kollafirði að Hvalfjarðarvegi en áætlað fé til framkvæmdanna beggja er aðeins 20 prósent af áætluðum heildarkostnaði. Ekkert ákveðið af hálfu ríkis Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir að ekkert liggi fyrir um fram- kvæmdir á Vesturlandsvegi á þess- um tímapunkti, en segir það líklega skýrast betur í vetur þegar hún hyggst leggja fram stefnumörkun ríkisins í samgöngumálum, sam- gönguáætlun, til fjögurra og 12 ára. Aðspurð segir hún Spöl vera frá- bært dæmi um hvernig hægt sé að leita fleiri leiða en í vasa ríkisins þegar það kemur að samgöngum en tekur þó skýrt fram að engar ákvarðanir hafi verið teknar um tvöföldun ganganna. Þörf á úrbótum í samgöngum á Vesturlandi  Samgönguáætlanir til fjögurra og tólf ára verða kynntar á næsta þingi Regína Ásvaldsdóttir Ólöf Nordal Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverja- hrepps hefur ákveðið að kæra ákvörðun Þjóðskrár um fasteigna- mat vindmyllna er standa við Búr- fell. Um er að ræða tvær tilrauna- vindmyllur. Byggingarkostnaðurinn við hvora vindmyllu var um 200 milljónir en fasteignamatið hljóðar upp á 30 milljónir. Málið er talið for- dæmisgefandi fyrir aðrar vindmyll- ur sem kunna að verða reistar á Ís- landi. „Málið er að vindmyllur eru ný mannvirki á Íslandi og það kostar eins og í þessu tilfelli 200 milljónir að setja upp svona myllu. Lands- virkjun metur það þannig að fast- eignamatsvirðið sé 30 milljón krón- ur. Fasteignamatið tekur þann rökstuðning góðan og gildan, það gæti svo verið að það sé alveg eðli- legt. Við viljum einfaldlega láta reyna á það hvort að þetta sé rétt niðurstaða,“ segir Björgvin Skafti Bjarnason, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Björgvin Skafti segir að svo virðist sem sveitar- stjórnir hafi ekki áður gert athuga- semdir við röksemdir Landsvirkjun- ar á fasteignamati virkjana og því hafi Landsvirkjun fengið að ráða að mestu skilgreiningunni á því hvaða hlutar byggingar teljist til fast- eignamats. Í hefðbundnum virkjun- um sé hlutfallið yfirleitt u.þ.b. 40% sem falli innan skilgreiningar á fast- eignamati en hin 60% séu utan þess. Fasteignamat sérhæfðra bygg- inga, líkt og vindmyllna, grundvall- ast á svokallaðri markaðsleiðréttu kostnaðarmati en það grundvallast á því að byggingarkostnaður er leið- réttur fyrir staðsetningu. Í rökstuðningi sínum fyrir fast- eignamatið taldi Landsvirkjun að myllan sjálf að undan- skildum 20% masturs- ins teldist til búnaðar og ætti því ekki heima í fasteigna- mati en að steyptar undirstöður og 20% af mastrinu ættu að teljast inn í fast- eignamatið en samanlögð upphæð þeirra var 30 milljónir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vindmyllur Vindmyllurnar tvær við Búrfell kostuðu 200 milljónir við uppsetningu en voru metnar á 30 milljónir. Kæra fasteignamat tveggja vindmyllna  Byggingarkostnaður var 200 milljónir en matið 30 milljónir Landsvirkjun hefur í kjölfar þeirrar tilraunastarfsemi sem farið hefur fram með vindmyll- unum tveimur sem staðsettar eru við Búrfell, sett upp virkj- unarkostinn Búrfellslund. Ef ráðist verður í þá virkjun er stefnt að því að reisa allt að 80 vindmyllur á svæðinu með allt að 200 MW aflgetu. Hver vind- mylla hefur því afl upp á 2,5- 3,5 MW en rannsóknir hafa sýnt að nýting á vindmyllum á Íslandi er með því betra sem gerist í heiminum. Miklir hagsmunir geta verið undir hjá sveitarfélögum á virkjunarsvæð- inu m.a. vegna fasteignagjalda. Hagsmunir af rokinu VINDMYLLULUNDUR Björgvin Skafti Bjarnason Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Tveggja og hálfs árs baráttu Ingunn- ar Björnsdóttur, lyfjafræðings og dósents við Oslóarháskóla, fyrir að- gangi að ýmsum gögnum um gæðaúttekt á lyfjagagnagrunni landlæknisemb- ættisins er lokið. Embættið afhenti henni gögnin síð- astliðinn föstu- dag, aðeins sólar- hring eftir að embættið fékk í hendur úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsinga- mál (ÚU) en nefndin úrskurðaði Ing- unni í vil í júlílok. ÚU hefur nú úr- skurðað fjórum sinnum vegna málsins sem hefur staðið yfir frá jan- úar 2013. ,,Ég var eiginlega orðlaus þegar fundi mínum hjá landlækni var lok- ið,“ segir Ingunn í samtali við Morg- unblaðið. Hún hefur nú þegar hafist handa við að greina gögnin í því augnamiði að skrifa fræðigrein um villur í gagnagrunninum en að henn- ar sögn er mikil vinna framundan. Hún kveðst afar ánægð með þessi málalok og bætir við: ,,Mér þótti skýrt frá upphafi að samkvæmt upp- lýsingalögunum ætti ég rétt á þess- um gögnum. Þessi fjórði úrskurður staðfestir þetta svo að ekki verður um villst. Nýr landlæknir brást við því og var fljótur að.“ Fann villur í gagnagrunninum Forsaga málsins er sú að Ingunn starfaði hjá landlækni til áramótanna 2012/2013. Hún hafði þá fundið all- nokkrar villur og áreiðanleikabresti í lyfjagagnagrunninum en átti eftir að greina þær að fullu þegar hún lauk þar störfum. Hún óskaði eftir að- gangi að gögnunum hinn 7. janúar 2013 en því neitaði embættið. Ingunn kærði það til ÚU sem úrskurðaði henni í vil hinn 16. ágúst sama ár. Hinn 27. febrúar 2014 kærði Ing- unn aftur til nefndarinnar þar sem embætti landlæknis ætlaði aðeins að afhenda henni umrædd gögn á pdf- formi og krafði hana um 143.615 krónur fyrir. ÚU vísaði málinu frá í júní sama ár með þeim rökum að bæði Ingunn og landlæknir væru samþykk því að gögnin væru brennd á óendurskrifanlegan geisladisk og afhent þannig. Ingunn taldi nefnd- inni hafa yfirsést sú fyrirætlan land- læknis að afhenda henni gögnin á pdf-formi, eða breyttu formi. Í júlí 2014 kærði Ingunn að nýju þá ákvörðun embættisins að afhenda aðeins pdf-skjöl. Í október sama ár úrskurðaði ÚU að landlækni hefði verið óheimilt, í ljósi 18. gr. upplýs- ingalaga, að færa gögnin yfir á annað snið en þau voru á þegar embættið féllst á að veita Ingunni gögnin. Málið kom svo aftur inn á borð úr- skurðarinnar í nóvember 2014 en þá hafði Ingunn aðeins fengið hluta um- beðinna gagna afhentan, auk þess sem embætti landlæknis hafði breytt formi þeirra. ÚÚ úrskurðaði í fjórða og síðasta sinn HInn 31. júlí sl. þar sem fram kom að landlæknir hefði ekki sýnt fram á nauðsyn breytinga á rafrænu sniði umbeðinna gagna, auk þess sem rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar hafi verið ábótavant. Málsmeðferð embættisins var talin andstæð 18.-19. upplýsingalaga, sem og 22. gr. stjórnsýslulaga en þau ákvæði varða rökstuðning stjórn- valdsákvarðana og afhendingu gagna. Fyrri ákvörðun landlæknis var felld úr gildi og beiðni Ingunnar um aðgang að gögnum vísað á ný til löglegrar meðferðar hjá landlækni. Góð lok á langri sögu ,,Þetta eru góð sögulok á langri sögu um afhendingu gagnanna. Svo kemur í ljós hvað kemur út úr þeim,“ segir Ingunn en hún á von á því að skrifa bráðlega fræðigrein um ís- lenska lyfjagagnagrunninn. ,,Ég get staðfest að það eru villur í gagna- grunninum en ég hef áður fjallað um nokkrar þeirra á alþjóðlegum ráð- stefnum.“ Hún segir landlæknisemb- ættið hafa nú þegar brugðist við gagnrýni á gagnagruninn og vinni að innleiðingu nýs gagnagrunns. Ekki fengust svör frá embættinu við vinnslu fréttarinnar. Fékk gögnin afhent eftir tvö og hálft ár  Landlæknir afhenti gögn um gæða- úttekt eftir fjórða úrskurðinn í málinu Morgunblaðið/Friðrik Lyf Ingunn hyggst skrifa greinar um villur í lyfjagagnagrunninum. Ingunn Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.