Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Page 19
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 15
Saga samfélagsgeðþjónustu og
skilgreining
Samfélagsgeðþjónusta (e. community
mental health care) er skilgreind sem
þjónusta við fólk með geðröskun utan
stofnana. Samkvæmt Koyanagi (2007)
þróaðist samfélagsgeðþjónusta í kjölfar
afstofnanavæðingar sem fólst í byrjun í
að koma einstaklingum út af ríkisreknum
geðsjúkrahúsum sem höfðu sætt
gagnrýni. Afstofnanavæðingin er rakin
til Bandaríkjanna um 19551970 þar
sem breytt viðhorf til mannréttinda og
gagnrýni á yfirfullar stofnanir voru undirrrót
breytinga (Corrigan o.fl., 2007).
Á þeim tíma opnaðist umræða um
geðþjónustu í fjölmiðlum og kvikmyndir
drógu upp dökka hlið geðsjúkrahúsa.
Einnig hafði bjartsýni vegna nýrra geðlyfja
áhrif. Fyrsta geðheilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna var stofnuð 1949 og lög
um geðsjúka voru sett fram.
Samfélagsgeðþjónustuhreyfingin byrjaði í
Bandaríkjunum 1963 þegar John Kennedy
forseti skrifaði undir samning um sam
félags geðþjónustu og þjónustustöðvar
samfélagsgeðteyma voru opnaðar í bæjum
og borgum vítt og breitt um landið (Dixon
og Goldman, 2003). Í upphafi áttu þessar
þjónustustöðvar að sinna öllum með
geðræn vandamál, allt frá forvörnum til
meðferðar. Upp úr 1970 breyttist stefnan
og markhópur samfélagsgeðteymanna
urðu einstaklingar með alvarleg geð
vandamál en þessi þróun leiddi til að
langleguplássum fækkaði verulega á geð
sjúkra húsum (Drake og Latimer, 2012)
Samfélagsgeðþjónusta hefur fest sig í sessi
í Evrópu og þróaðist víða á Vesturlöndum
upp úr miðri 20. öld.
Batahugmyndafræði
Batahugmyndafræðin (e. recovery model)
hefur rutt sér til rúms víða um heim.
Hugmyndafræðin kemur upphaflega frá
notendum geðheilbrigðisþjónustunnar
sem gagnrýndu forræðishyggju
heilbrigðisstarfsmanna og þann stimpil
sem fólst í að vera geðveikur. Geðsvið
Landspítala hefur ráðist í þýðingu á 100
leiðum til að stuðla að bata eftir Mike
Slate (Slate, 2009) en þar segir að bati
sé orð sem hafi tvær merkingar.
Klínískur bati er hugmynd sem kemur
úr sérfræðiþekkingu geðheilbrigðis
starfsfólks og snýst um að losna við
einkenni, endurheimta félagslega virkni
og á annan hátt „komast aftur í eðlilegt
ástand“.
Persónulegur bati er hugmynd sem
er komin úr sérfræðiþekkingu fólks
með eigin reynslu af geðsjúkdómum og
táknar svolítið annað en klínískur bati. Sú
skilgreining á persónulegum bata, sem er
mest notuð, kemur frá Anthony (1993):
… mjög persónulegt og einstakt
ferli breytinga á viðhorfum, gildum,
tilfinningum, markmiðum, hæfni og/eða
hlutverkum einstaklings. Batinn er leið
til ánægjulegs, vongóðs og gefandi lífs,
jafnvel innan takmarkana sjúkdómsins.
Bati felur í sér þróun á nýrri merkingu
og tilgangi lífs einstaklings eftir því sem
hann vex frá þeim hrikalegu áhrifum
sem geðsjúkdómur hefur í för með sér
(bls. 4).
Síðast en ekki síst byggist batahug
mynda fræðin á að viðhalda von og skapa
betra líf með því að byggja á sterku hliðum
einstaklinganna. Þessi hugmyndafræði
eflir samvinnu við notandann, þar sem
markmið eru sett í sameiningu, og
stuðla að sjálfsábyrgð og valdeflingu
hjá notendum. Batahugmyndafræðin
hefur rutt sér til rúms á Íslandi en
notendasamtök hafa verið í fararbroddi
að kynna hana og heilbrigðisstofnanir
smám saman fylgt í kjölfarið.
Samfélagsgeðteymi
Þjónusta samfélagsgeðteyma getur
verið mjög fjölbreytt eða allt frá
ráðgjafarþjónustu í tengslum við
heilsugæslustöðvar til mjög sérhæfðra
teyma sem sinna skilgreindum hópum.
Í stærri samfélögum er gjarnan hægt að
bjóða upp á meiri sérhæfða þjónustu,
til dæmis sérstök teymi sem sinna
geðrofssjúkdómum og sérhæfð teymi
fyrir innflytjendur, heimilislausa og svo
mætti lengi telja (Drake og Latimer, 2012).
Þverfagleg samvinna í slíkum teymum
hefur gefið góða reynslu. Þar sem þarfir
notendanna eru ólíkar er æskilegt að
hafa fagfólk með breitt verksvið og
þekkingu. Í slíkum teymum vinna oft
fagstéttir, svo sem hjúkrunarfræðingar,
læknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar,
sjúkraliðar og iðjuþjálfar svo helstu stéttir
séu nefndar.
Hvernig er að vinna í samfélags
geðteymi?
Það er mjög krefjandi starf að vinna í
samfélagsgeðþjónustu og krefst þess
af þjónustuveitendum að þeir sýni
frumkvæði og sveigjanleika og hafi
góða þekkingu á geðrænum veikindum.
Einnig er mikilvægt að þjónustuveitandi
þekki vel til hvaða þjónusta er í boði,
svo sem félagsleg þjónusta, afþreying
og stuðningur. Samfélagsgeðþjónusta
er að mörgu leyti ólík hefðbundinni
deildarvinnu, en reynsla af deildarvinnu
hlýtur að teljast kostur. Það má segja
að bataferlið hefjist við innlögn en þegar
komið er út í samfélagsgeðþjónustu
opnast fleiri tækifæri til að styðja
notandann áfram á þeirri vegferð og
möguleikar á einstaklingshæfðri þjónustu
aukast.
Að vinna í samfélagsþjónustu krefst
samhæfingar margra þátta. Hjúkrunar
fræðingar eru í lykilhlutverki í framtíðar
upp byggingu samfélags geðþjónustu.
Þeir eru vanir í sínu starfi að hafa heild
ræna yfirsýn yfir þarfir skjólstæðinga
sinna og við útskrift sjúklinga af deildum
að hafa yfirsýn og samhæfa margs konar
þjónustu þegar heim er komið.
Það gilda sömu reglur í samfélags
geð þjónustu, þar þarf að samhæfa
alla þjónustu í nánasta umhverfi skjól
stæðingsins, félagsþjónustu, heima
hjúkrun, allt sem styður við notandann
og myndar eins konar öryggisnet. Nauð
synlegt er að góð samvinna sé á milli
þjónustuveitenda þannig að notendur fái
sem besta og samhæfðasta þjónustu.
Kostir samfélagsgeðþjónustu
Einstaklingar, sem eiga við langvinna
geðsjúkdóma, einangrast oft í veikindum
sínum og skortir stuðning. Í mörgum
tilfellum hafa veikindin mikil áhrif á
einstaklinginn, fjölskyldu og vini sem
oft og tíðum standa ráðþrota gagnvart
erfiðum veikindum. Það er því mikilvægt
að byggja vel í kringum einstaklinga við
útskrift með viðeigandi þjónustu og setja