Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 22
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201418 Hjúkrunarfræðingar hafa þekkingu og reynslu til að samþætta aðra þjónustu við heilbrigðisþjónustuna og veita þannig notendum geðheilbrigðisþjónustunnar árangursríka þjónustu. Stórt hlutverk hjúkrunarfræðinga í samfélags geð­ þjónustu er að veita stuðning, samhæfa þjónustu, fræða, að meta líðan, efla tengslanet og félagslega færni. Lokaorð Það er einlæg trú mín að samfélags­ geðþjónusta eigi eftir að vaxa og eflast á Íslandi og sé leiðin fram á við í geðheilbrigðismálum. Ég tel heppilegt að hafa slíkt teymi í tengslum við heilsugæsluna. Til að þjónustan verði sem best fyrir notendur þjónustunnar þarf góð samvinna að vera til staðar á milli heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og allra þeirra sem sinna málefnum notandans. Góð samvinna er meginatriði í samfélagsgeðþjónustu og grunnur þjónustunnar. Ég vil hvetja hjúkrunarfræðinga til að nýta þau sóknarfæri sem skapast við stofnun slíkra samfélagsgeðteyma, þar geta þeir verið í lykilhlutverki. Heimildir Anthony, W.A. (1993). Recovery from mental illness: The guiding vision of the mental health system in the 1990s. Innovations and Research, 2, 17­24. Corrigan, P.W., Mueser, K.T., Bond, G.R., Drake, R.E., og Solomon, P. (2007). Principles and practice of psychiatric rehabilitation: An empirical approach. New York: The Guilford Press. Dixon, L.B., og Goldman, H.H. (2003). Forty years of progress in community mental health: The role of evidence­based practices. Australian and New Zealand Journal of Psychiatry, 37 (6), 668­73. Drake, R.E., og Latimer, E. (2012). Lessons learned in developing community mental health care in North America. World Psychiatry, 11 (1), 47­51. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (2014). Ársskýrsla 2013. Keflavík: Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Koyanagi, C. (2007). Learning from history: Deinstitutionalization of people with mental illness as precursor to long-term care reform. The Henry J. Kaiser Family Foundation. Sótt á http://www.nami.org/Template. cfm?Section=About_the_Issue&Template=/ ContentManagement/ContentDisplay. cfm&ContentID=137545. Slate, M. (2009). Personal recovery and mental illness. A guide for mental health professionals. Cambridge: Cambridge University Press. Velferðarráðuneytið (2013). Suðurnesjavaktin: Áfangaskýrsla desember 2013. Reykjavík: Velferðarráðuneytið. Hrönn Harðardóttir er yfirhjúkrunar­ fræðingur sálfélagslegrar þjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og teymisstjóri í samfélagsgeðteyminu. Hún er með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum með áherslu á geðheilbrigðisþjónustu. Formannsskipti urðu fyrir einu ári í öldungadeild en nýi formaðurinn er Oddný M. Ragnarsdóttir. Bergljót Líndal, fráfarandi formaður, hefur setið í stjórn öldungadeildar frá árinu 2005, fyrst sem varaformaður til 2007 og síðan sem formaður. Hún gaf ekki kost á sér til formanns á aðalfundi öldungadeildar 26. mars 2013. Oddný, sem var áður ritari öldungadeildar, tók við af Bergljótu. Bergljót starfaði megnið af starfsævi sinni við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, lengst af sem hjúkrunarforstjóri frá 1974 þar til hún hætti vegna aldurs árið 2004. Þar stóð hún að mikilli uppbyggingu heilsuverndar og forvarna, skrifaði greinar og bæklinga um heilsugæslu ásamt fleiru. Bergljót tók virkan þátt í félagsstarfi Félags íslenskra hjúkrunar ­ fræðinga og var meðal annars formaður deildar heilsugæslu­ hjúkrunarfræðinga og deildar hjúkrunarforstjóra. Hún var einnig frumkvöðull að útgáfu Hjúkrunarfræðingatals. „Við þökkum Bergljótu fyrir röggsama og ábyrga formennsku og vináttu sem varir þótt hún láti af störfum,“ segir Oddný M. Ragnarsdóttir fyrir hönd stjórnar öldungadeildar. „Það þarf ekki að kynna Bergljótu. Hún hefur komið víða við bæði hérlendis og erlendis, í fulltrúaráði samvinnuverkefnis um forvarnir langveikra sjúkdóma (CINDI) frá 1988 og fleira en upptalningin gæti verið löng. Eins og við önnur störf gaf Bergljót mikið af sér sem formaður öldungadeildar, var vinsæl, framtaksöm, góður stjórnandi, hörkudugleg og skemmtileg. Stjórn öldungadeildar þakkar Bergljóti Líndal fyrir frábær störf og góða vináttu.“ Formannsskipti í öldungadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.