Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Page 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Page 26
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201422 Í febrúar 2012 fengu 19 krabbameinsdeildir í Bandaríkjunum afgreidda blöndu af salti, sterkju, asetoni og ýmsum öðrum efnum í staðinn fyrir krabbameinslyfið sem starfsfólkið átti von á. Fyrr á þessu ári greindi Daily Mirror í Bretlandi frá svartamarkaðsbraski með fóstureyðingartöflur en unglingsstúlkur, sem þorðu ekki að segja foreldrum sínum frá því að þær væru ófrískar, höfðu keypt þær á alnetinu. Þessar töflur eru lífshættulegar ef of margar eru teknar inn. BERJUMST Á MÓTI FÖLSUÐUM LYFJUM Árið 2009 létust í Nígeríu að minnsta kosti 84 börn eftir að hafa fengið safa sem átti að lina tanntökuverki. Í honum var díetýlenglýkól en það er leysiefni sem notað er meðal annars í rúðuvökva og bremsuvökva. Árið 2011 fengu tæp 3.000 Keníubúa fölsuð veirulyf. Því miður er listinn yfir slík atvik endalaus og þar sem lyfjasala hefur stóraukist á netinu eru öll lönd í heiminum í hættu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni telst til að um 1% af lyfjum í umferð í velmegandi löndum séu líklega fölsuð. Á heimsvísu David C. Benton og Lindsey Williamson, williamson@icn.ch er talan 10% en á sumum svæðum í Asíu, Afríku og Suður­Ameríku geta fölsuð lyf verið um 30%. Í Afríku er líklega einn þriðji af öllum malaríulyfjum falsaður. Einnig er talið að annað hvert lyf keypt á ónafngreindri síðu á netinu sé falsað. Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga telur að ef við hjúkrunarfræðingar erum meðvitaðir um tilvist falsað lyfja og þá hættu sem stafar af þeim getum við þrýst betur á stjórnvöld í okkar heimalöndum og þá sem taka þátt í að framleiða og dreifa lyfjum. Þannig getum við sameinað krafta okkar við að fást við þessa lýðheilsuvá um allan heim. Fölsuð lyf stofna sjúklingum og almenningi í hættu. Sjúklingar eru plataðir til þess að halda að þeir fái ósvikna meðferð en fá í staðinn svikna vöru sem gæti valdið enn meiri veikindum, örkumlum og jafnvel dauða. Fölsuð lyf eru einnig lýðheilsuvá þar sem þau geta valdið andstöðu við meðferð. Fölsuð lyf grafa enn fremur undan trausti sjúklinga á heilbrigðiskerfi, stjórnvöldum, heilbrigðisstarfsfólki og framleiðendum ósvikinna lyfja.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.