Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Síða 30
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201426
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn í Hörpu
föstudaginn 9. maí 2014. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Góð
mæting var á fundinn og gekk hann vel.
AÐALFUNDUR 2014
Aðalfundurinn var í fyrsta sinn afgreiddur
á fjórum klukkustundum en hann hefur
áður staðið í heilan dag. Farið var
yfir reikninga félagsins og lögð fram
fjárhagsáætlun fyrir 2014. Þar kemur
meðal annars fram að gert er ráð fyrir
að reka félagið með tapi næstu árin. Er
það gert til þess að ganga á eigið fé
félagsins en það er nú um 70 milljónir.
Stjórnin telur það vera of mikið og
því hefur verið gerð fimm ára áætlun
þar sem þessi upphæð verði lækkuð
smám saman. Fundurinn samþykkti
lækkun félagsgjalda úr 1,4% í 1,2%
af dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga
en að hámarksgreiðsla á ári fyrir hvern
félagsmann verði þó aldrei hærri en
80 þúsund krónur. Einnig var samþykkt
tillaga stjórnar um að félagsgjöld fagaðila
verði 10 þúsund krónur og aukaaðila
verði eitt þúsund krónur.
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
Spurt var á fundinum hvort ekki mætti
nýta uppsafnað eigið fé félagsins eða
starfsmenntunarsjóðs til þess að veita
styrk úr styrktarsjóði en hann er enn í
uppbyggingu eftir úrsögn félagsins úr
BHM. Farið var þá rækilega yfir hvaðan
fé kemur í mismunandi sjóði félagsins.
Tekjur félagssjóðs og vinnudeilusjóðs
koma frá félagsmönnum en fé rennur til
annarra sjóða samkvæmt samningum við
vinnuveitendur og væri það samningsbrot
að nýta fé í annað en umsamið var.
Nokkrar lagabreytingar voru samþykktar
en meginendurskoðun laga fer fram í
vetur og verða breytingartillögur lagðar
fyrir aðalfundinn 2015. Mikilvægustu
breytingarnar, sem gerðar voru
núna, snúa að framkvæmdaráði og
svæðisdeildum. Framkvæmdaráð hefur
starfað í nokkur ár en var nú formlega
lögfest. Þá var tekið úr lögunum ákvæði
um að svæðisdeildir skuli vinna að kjara
og réttindamálum í umdæmi sínu en þetta
hefur reynst óraunhæft í framkvæmd.
Samþykkt var starfsáætlun stjórnar
FÍH 20142015. Hér á eftir fara helstu
áherslur í starfi félagsins næsta starfsár:
• Úrvinnsla og eftirfylgd verkefnisins
Ímynd, áhrif og kjör.
Samantekt vinnuhóps til stjórnar með
verkefnaáætlun samþykkt af stjórn FÍH.
• Endurskoðun á hlutverki formanns og
varaformanns félagsins.
Skipa vinnuhóp stjórnar.
Tillögur fyrir stjórn.
• Undirbúningur heildarendurskoðunar á
lögum félagsins fyrir aðalfund 2015.
Skipa starfshóp með breiðri aðkomu
félagsmanna.
Vinna náið með stefnumótunarhópum
FÍH.
Vinna tillögur og kynna þær fyrir stjórn.
Tillögur kynntar félagsmönnum.
Tillögur lagðar fyrir stjórn og aðalfund.
• Efla samráð í ráðum og nefndum um
skipulagningu heilbrigðisþjónustu.
• Vinna að stefnumótun FÍH varðandi:
Fagsvið.
Kjarasvið.
Sí og endurmenntun hjúkrunar fræðinga.
Jafnréttismál.
Alþjóðlegt samstarf.
Sjálfkjörið í stjórn og nefndir
Á hverju ári er kosinn hluti stjórnar. Á því
ári sem endar á sléttri tölu eru kosnir 7
fulltrúar fagdeilda og 3 fulltrúar almennra
félagsmanna. Sjálfkjörið var í stjórnina
þar sem framboð voru ekki fleiri en laus
sæti.