Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 34

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 34
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201430 hjúkrun til að veita ráðgjöf um sértæka hjúkrunarmeðferð eða beina sjúklingum í meðferð til sérfræðinga. Rannsóknir á framlagi sérfræðinga í hjúkrun, bæði íslenskar og erlendar, benda til að talsverður munur sé á aðferðum þeirra og viðhorfum til viðfangsefnanna og almennra hjúkrunarfræðinga. Helga Jónsdóttir (2012) sagði um aðferðir sérfræðinga: „Sérfræðingurinn er samferðamaður skjólstæðinga í sameiginlegri veröld sem við öll berum ábyrgð á og þar sem við erum virkir gerendur í að skapa skjólstæðingum betri heilsu og betra líf. Sérfræðingurinn hefur sjálfstæða ábyrgð á hjúkruninni, á framkvæmd hennar, gæðum og þróun.“ Rannsóknir (til dæmis Hamric o.fl., 2009) sýna að til að geta beitt slíkum aðferðum þurfa sérfræðingar í hjúkrun að hafa djúpan skilning á viðfangsefninu. Þeir beita fræðilegri þekkingu samfara færni, þeir öðlast aukið innsæi í aðstæður og eru fljótir að greina breytingar á ástandi sjúklinga og bregðast við áður en allt fer á versta veg. Þeir láta ekkert koma sér á óvart. Sérfræðingar í hjúkrun þekkja vel einkenni breytinga á sjúkdómsástandi sjúklinga og geta séð fyrir og komið í veg fyrir versnandi ástand með því að skipuleggja viðeigandi hjúkrunarmeðferð. Þeir hafa sjúklinginn ætíð í forgrunni við skipulag hjúkrunar. Þessari sérstöku nálgun er vel lýst í niðurstöðum rannsóknar Kucera o.fl. (2010). Þær túlka sínar niðurstöður með því að segja að sérfræðingar í hjúkrun beiti innsæi við störf sín og skýra það með því að þeir hafi hæfileika til að skynja breytingar á ástandi og spyrja réttra spurninga við þær aðstæður. Þeir takist á við verkefni sín af meiri þekkingu, festu og öryggi en aðrir hjúkrunarfræðingar, þeir viti ávallt hvað eigi að gera og geri það. Kucera o.fl. (2010) halda því fram að sérfræðingar í hjúkrun „sérsníði“ hjúkrunarmeðferð að þörfum sjúklingna. Þar er átt við að sérfræðingar einbeiti sér að sjúklingnum, þeir ræði við hann, hlusti, séu til staðar fyrir sjúklinginn og skipuleggi meðferð í samráði við hann, þeir setji sig í hans spor og myndi þannig meðferðarsamband við hann út frá hans aðstæðum. Sérfræðingar í hjúkrun hafa sérstaka nærveru sem skapar öryggi fyrir sjúklinginn, þeir hafa þekkingu og hæfileika til að minnka streitu og kvíða sjúklinga. Sjúklingar skynja vel öryggi í vinnulagi sérfræðingins, það dregur úr kvíða og gerir ástand sjúklingsins viðráðanlegra. Rannsókn Kucera o.fl. (2010) sýndi að sérfræðingar í hjúkrun koma á jafningasamstarfi við lækna. Þær lýsa því á þann hátt að sérfræðingar beiti rökum og noti staðreyndir þannig að læknar átti sig fljótt á að mat sérfræðinga í hjúkrun á ástandi sjúklinga sé réttmætt og þannig myndast traust í samstarfinu. Sérfræðilæknir á Landspítala hefur lýst þessu samstarfi á eftirfarandi hátt: „Ég hef ekki áhyggjur af mínum sjúklingum eftir að hún tekur við meðferðinni, en ef hún hringir þá svara ég alltaf því þá er eitthvað að.“ Árið 2011 gerði höfundur stutta könnun meðal sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala. Markmiðið var að afla upplýsinga um þeirra sýn á hvernig þeir nálgist viðfangsefni sín. Hópviðtal var tekið við níu sérfræðinga í hjúkrun. Fjórir þeirra eru með meistaragráðu frá Bandaríkjunum, þrír frá Háskóla Íslands og tveir frá Háskólanum á Akureyri. Eftirfarandi spurningar voru lagðar fyrir. 1. Hvernig finnst ykkur meistaranámið hafa nýst í starfi? 2. Hafið þið breytt nálgun ykkar við hjúkrun, ef svo er þá hvernig? 3. Hvernig hafið þið þróað hjúkrun í ykkar sérgrein? Hér verður einungis gerð grein fyrir því helsta sem kom fram í svörum við spurningu 2. Öllum sérfræðingunum bar saman um að breyting hefði orðið á hvernig þeir hjúkra eftir aðlögun að sérfræðingsstarfinu. Þeir sögðu meðal annars: Sérfræðingar í hjúkrun sinna sjúklingnum heildrænt, alltaf út frá hans þörfum og hans sýn á ástand sitt. Þeir sinna þörfum sjúklinga og fjölskyldna á þeirra forsendum. Sérfræðingar í hjúkrun gefast ekki upp. Þeir reyna alltaf að leysa úr þeim aðstæðum sem sjúklingurinn stendur frammi fyrir af bestu þekkingu. Sérfræðingar í hjúkrun hafa miklu meira innsæi og skynja betur þarfir þeirra sem þeir hjúkra. Þeir eiga allt öðruvísi samskipti við sjúklinga og fjölskyldur, meðal annars vegna þess að þekking og reynsla auðveldar þeim að setja sig inn í aðstæður þeirra. Sérfræðingar í hjúkrun búa yfir meiri víðsýni og eiga auðveldara með að rökstyðja aðgerðir sínar bæði fyrir sjúklingum og samstarfsfólki. Samstarf þeirra við aðrar fagstéttir er auðveldara og á forsendum sjúklingsins. Sérfræðingar í hjúkrun láta ekkert koma sér á óvart, þeir greina breytingar á ástandi sjúklinga fyrr en áður og vita nákvæmlega hvernig á að bregðast við hverju sinni. Þeir segjast vita hvað er að gerast hjá sjúklingum ef breytingar eru í aðsigi. Sérfræðingar í hjúkrun eru mikið sjálfstæðari og agaðri í vinnubrögðum,

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.