Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 38
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201434
Húðsýkingar geta verið alvarlegar og miklu máli skiptir að meðhöndla þær rétt
eins og kemur fram hér á eftir. Þekking og reynsla sérfræðings í hjúkrun getur
varðað miklu hér eins og hjá öðrum sjúklingahópum.
HJÚKRUN SJÚKLINGA MEÐ
HÚÐNETJUBÓLGU OG HEIMAKOMU
Húðnetjubólga og heimakoma eru
mismunandi birtingarmyndir húðsýkingar.
Húðsýking hefur áhrif á andlega
og líkamlega líðan og ef hún er ekki
meðhöndluð skjótt getur hún leitt til
alvarlegri dýpri sýkinga á borð við
beinsýkingar, farið út í blóðið og valdið
dauða. Meðferð hefur verið sýklalyf og
hálega en farið hefur forgörðum að taka
á undirrót vandans. Rannsóknir hafa sýnt
að 3050% líkur eru á að sýkingin taki
sig upp og að hver ný sýking er erfiðari
viðureignar. Beina þarf því spjótunum að
fræðslu og forvörnum.
Þeir sem leggjast inn á spítala vegna
sýkingarinnar eru yfirleitt aldraðir, með
ýmsa sjúkdóma og bráðveikir. Legutíminn
er stuttur, plássleysi gætir alls staðar
og mönnun er af skornum skammti.
Allt þetta leiðir til þess að minni tími
er til að uppfylla þarfir sjúklinganna.
Þeir liggja á ýmsum deildum þar sem
sérþekkingu skortir og sjúklingum er
svo bolað út í óvissuna. Vegna þessa
er mikilvægt að efla sérfræðiþekkingu í
hjúkrun um þennan vanda og skipuleggja
þjónustu sem bregst við þörfum þessara
sjúklinga. Hjúkrunarfræðingar með
þessa sérfræðiþekkingu þurfa að geta
annast sjúklingana þar sem þeir eru
staddir, veitt fræðslu og ráðgjöf og fylgt
þeim svo eftir þegar heim er komið.
Í þessari fræðslugrein er gerð grein
fyrir húðsýkingum, alvarleika þeirra og
hlutverki hjúkrunarfræðingsins í meðferð
þeirra sem fá slíka sýkingu.
Húðnetjubólga og heimakoma
Húðnetjubólga (e. cellulitis) er sýking í
dýpri lögum húðar og húðbeði, oftast
Berglind Guðrún Chu er hjúkrunar fræðingur
á smitsjúkdómadeild A7 á Landspítala,
með meistaragráðu í hjúkrun sjúklinga með
sýkingar og smitsjúkdóma frá Háskóla
Íslands og aðjunkt við hjúkrunarfræðideild.
Hún hefur einnig lokið starfsnámi til
sérfræðings í hjúkrun í sérgreininni
smitsjúkdómum með áherslu á hjúkrun
sjúklinga með húðsýkingar.
Berglind Guðrún Chu, berggm@landspitali.is
af völdum bakteríanna Staphylococcus
aureus og Streptococcus spp. Algengasta
stað setning sýkingarinnar er á neðri
hluta fótleggja en hana má einnig finna
á hand leggjum, brjóstum, rassi og
víðar (Gunderson, 2011). Heimakoma
(e. erysipelas) er sýking í ystu lögum
húðarinnar og algengast er að hún sé
af völdum streptókokka (Hirschmann og
Raugi, 2012). Algengasti staður þessarar
sýkingar hefur verið í andliti en síðustu ár
hefur sýkingum á neðri hluta fótleggja farið
fjölgandi (HadzovicCengic o.fl., 2012).
Heima koma herjar oftast á börn og gamalt
fólk en húðnetjubólgan herjar oftast á
fullorðna og aldraða (Bailey og Kroshinsky,
2011).