Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 43
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 39
Við, sem sitjum heima í sófa og horfum á myndir frá hamförum og átökum í
sjónvarpinu, undrumst oft kjark og áræði þeirra sem fara á vettvang til þess
að hjálpa heimamönnum við þeirra erfiðu aðstæður. Magna Björk Ólafsdóttir
bráðahjúkrunarfræðingur hefur undanfarin ár starfað í neyðarteymum og er
nýlega komin frá Filippseyjum.
STEFNUM ÖLL AÐ
SAMA MARKMIÐI
Guðrún Guðlaugsdóttir, gudrunsg@gmail.com
„Ég starfaði í sex vikur á vegum Rauða krossins
sem yfirhjúkrunar fræðingur og sá um stjórnunar
legan og daglegan rekstur í tjaldsjúkrahúsi sem
komið var á fót á Basey á Samareyju á Filipps
eyjum. Ferðin var farin í kjölfar fellibyls, þess
stærsta og mesta sem komið hefur á land
síðast liðna áratugi,“ segir Magna Björk Ólafs
dóttir bráða hjúkrunarfræðingur er blaða maður
sótti hana heim fyrir skömmu.
„Sex til átta vikur voru liðnar frá því fellibylurinn
reið yfir þegar ég kom þangað, ástandið var
vissulega ekki gott en þó mun betra en það var
í fyrstu. Fólkið hafði verið hörkuduglegt við að
þrífa göturnar og hreinsa húsin, eigi að síður voru
enn skip uppi á landi, bílar uppi í trjám og brot úr
húsþökum úti um allt.
Hitinn var yfir 30 stig þegar ég kom út úr
flugvélinni. Mér leið eins og ég væri í bíómynd,
allt var svo óraunverulegt. Þó hafði ég séð fullt af
myndum og mynd böndum frá þessum hamförum.
En raunveruleikinn er allur annar. Í fyrstu hafði
verið mikið um gripdeildir á mat, hver reyndi að
bjarga sér og sínum sem best hann gat, en það
ástand var að mestu yfirstaðið þegar ég kom á
staðinn. Ég veit þó ekki til þess að hjálpargögnum
hafi verið stolið.
Tjaldsjúkrahúsið, sjúkrahús í kössum frá Noregi,
var í félagsmiðstöð þar sem íþróttavöllur var fyrir
framan. Enn þá var regntími og því var þak yfir
öllu. Búið var að manna sjúkraskýlið að mestu
þegar ég kom og allt í fullum gangi.“
Hvernig stóð á því að þú fórst þangað suður
eftir? „Ég er skráð sem hjúkrunar fræðingur á
Veraldarvaktinni og það var haft samband við
mig. Á Veraldar vaktinni gefur fólk kost á sér til að