Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Síða 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Síða 45
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 41 Filippseyjum og ættræknar. Munaðarlaus börn voru því yfirleitt í umsjá ættingja. Stórfjölskyldurnar búa gjarnan saman. Fyrstu vikurnar gátum við ekki boðið sjúklingum upp á mat og lifðum sjálf töluvert á þurrmat en þegar frá leið fór markaðurinn að blómgast, ýmiss konar matvörur voru aftur á boðstólum og lítil veitingahús tóku aftur til starfa. Í framhaldi af þessu gátum við gefið sjúklingum okkar að borða. Áður höfðu ættingjarnir komið með mat handa þeim.“ Hvernig var með hjúkrunargögn? „Það er engan veginn hægt að bera saman aðstæður þarna við það sem fáanlegt er á Íslandi til dæmis. En þetta dugði furðanlega. Við gerðum gott úr því sem við höfðum og beittum hugkvæmni. Við þurftum þó að panta inn meira eftir því sem leið á dvöl mína. Það sem sent er með fyrsta teyminu við þessar aðstæður dugar bara í ákveðinn tíma. Við höfðum til dæmis ekki öndunarvélar og urðum því að senda frá okkur sjúklinga í aðgerðir á gerðir keisaraskurðir og löguð kviðslit. Þá fjarlægðum við fjölmörg æxli. Margt fólk þarna var með klofinn góm, við reyndum að bæta útlit þess með því að sauma saman vörina en ekki var hægt að laga góminn. Til okkar kom fólk með sýkingar og brunasár. Lagaðir voru fistlar og teknir voru alls konar hnúðar af fólki. Svo voru gerðar ýmsar bráðaaðgerðir, ekki síst á börnum sem komu með graftarkýli sem þurfti að tæma.“ Þetta virðast hversdagsleg vandamál fremur en afleiðingar af hamförum? „Það er alveg rétt. Það sem við sinntum var ekki bein afleiðing af hamförunum, en við studdum við heilbrigðiskerfið meðan heilbrigðis stofnanir voru ekki virkar. Ég reyndi hvað ég gat að vera inni á deildunum til að komast í kynni við sjúklingana sjálfa og tók kvöldvaktir í því skyni. Á Filippseyjum fengu margir beinbruna sótt, hitasótt sem berst með moskító flugum og getur dregið fólk til dauða ef það fær ekki rétta meðferð. Ýmsir hjálpar­ starfsmenn þurftu að fara heim vegna var að kynnast því, það er svo jákvætt og spjallar gjarnan við mann. Einkum voru síðustu tvær vikurnar fljótar að líða. Fyrr en varði var ég á leið heim og hjúkrunarfræðingur frá Ástralíu kominn til að leysa mig af.“ Ákvað ung að hjúkra fólki Hvenær útskrifaðist þú sem hjúkrunar­ fræðingur? „Ég útskrifaðist árið 2004 frá Háskólanum á Akureyri og fór fljótlega að vinna við Sjúkrahúsið á Akureyri. Ég er þó ekki frá Akureyri, ég er Bolvíkingur. Ég fæddist þar 1979. Þegar ég var 17 ára fór ég að vinna á elliheimilinu á Bolungarvík og starfið þar vakti áhuga minn á að hjálpa öðru fólki. Ég vann á lyfja­ og slysadeild á Sjúkra­ húsinu á Akureyri, en árið 2008 langaði mig að breyta til og fór suður til Reykjavíkur til starfa á slysa­ og bráðamóttöku Land­ spítalans. Mig langaði til að víkka sjón­ deildarhringinn og öðlast meiri reynslu. Ég vann á bráðamóttökunni til ársins 2011.“ Var það mikil breyting? „Það er að mörgu leyti töluverður munur á bráðadeildinni á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu; það er minni eining fyrir norðan en þar kemur allt mögulegt inn. Að hluta til var ég sjálfstæðari fyrir norðan. Hérna á höfuðborgarsvæðinu er þetta aðskildara, fleiri bráðamóttökur, barnadeild, geðdeild og svo framvegis. Allt sérhæfðara. Reynslan að norðan kom sér að mörgu leyti vel í starfi á átakasvæðum. Þó slíkt starf sé yfirgripsmikið hvað líkamleg mein snertir eftir hamfarir eða átök þarf að vera vakandi fyrir andlega sviðinu líka; þótt fólkið á svæðinu brosi nær brosið ekki endilega inn í sálina. Og víða er meira „tabú“ að leita sér aðstoðar vegna andlegra meina en gerist í hinum vestræna heimi. En þá er það trúin sem fleytir fólki í gegnum erfiðleikana. Á Filippseyjum eru flestir kaþólskir. Þar þakkar fólk guði jafnvel þótt það hafi misst ættingja sína og heimili.“ Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fara í neyðarteymi út í heim? „Ég kynntist fólki sem hafði farið til starfa erlendis fyrir Rauða krossinn og það jók áhuga minn á að reyna þetta. Mér fannst þó að ég þyrfti sjúkrahúsið í Taclobar. Allar skurðaðgerðir hjá okkur voru gerðar án öndunarvéla. En við vorum með góða svæfingarlækna, þeir deyfðu vel og notuðu handstýrða öndunarvél, poka með maska sem gefur súrefni upp á gamla mátann. Mest var gert af opnum kviðaðgerðum, svo sem botnlangaskurðir. Einnig voru þessara veikinda. Þegar hjúkrunar fólk fer á malaríusvæði þarf það að hafa með sér fyrirbyggjandi lyf og nota moskítónet.“ Líður tíminn fljótt við svona aðstæður? „Já, tíminn var afskapega fljótur að líða. Sex vikurnar liðu hratt. Ég kynntist mörgu innlendu fólki, bæði sem ég vann með og eins fólkinu í kring. Auðvelt Skip á miðjum vegi eftir fellibylinn á Filippseyjum.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.