Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 49
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 45 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER er mikilvægt svo vel gangi eftir heimkomu. Lítið er vitað um fræðsluþarfir aðstandenda gerviliðasjúklinga eða hvernig þeim er sinnt á íslenskum sjúkrahúsum. Fjölskyldan Nú er talið að góð samskipti við aðstandendur séu mikilvægur þáttur í þjónustu heilbrigðiskerfisins. Aðstandendur geta veitt hjúkrunarfræðingum upplýsingar sem gagnast þeim í undirbúningi og skipulagi hjúkrunar í öllu aðgerðarferlinu (Mottram, 2011). Þeir eru því nauðsynlegur hlekkur þegar leitast er við að tryggja sjúklingi vandaða og samfellda þjónustu, jafnt meðan á sjúkrahúsvist stendur og þegar útskrift er undirbúin (Wright og Leahey, 2011). Enn fremur er nú viðurkennt að fjölskyldan gegni mikilvægu hlutverki í veikindum og bataferli sjúklinga, bæði sem stuðningsaðili og þátttakandi sem hafi þarfir sem beri að sinna (Wright og Leahey, 2011). Þetta endurspeglast í innleiðingu fjölskylduhjúkrunar á Landspítala og í starfsemi hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Akranesi. Þar er lögð áhersla á framkomu hjúkrunarfræðingsins, viðbrögð fjölskyldunnar og samband beggja. Hjúkrunarfræðingurinn þarf að greina fræðsluþarfir og vera fús til að bjóða fram þekkingu sína en fjölskyldan þarf oft örvun og tíma til að spyrja markvissra spurninga (Wright og Leahey, 2011). Í rannsóknum á reynslu sjúklinga og aðstandenda af sjúkrahúsvist er algeng niðurstaða að upplýsingastreymi og fræðslu til aðstandenda sé verulega ábótavant (Almborg o.fl. 2009; Jagland o.fl., 2009; Mottram, 2011) þrátt fyrir að hún sé talin mikilvæg til að minnka kvíða og auka vellíðan, jafnt sjúklinga og aðstandenda (Almborg o.fl., 2009; Hafsteinsdóttir o.fl., 2011). Stuðningur aðstandenda er sjúklingum mikilvægur og íslensk rannsókn (Sveinsdóttir og Skúladóttir, 2012) styður það en þar kom í ljós að gerviliðasjúklingar, sem töldu sig fá stuðning frá fjölskyldu, voru með minni einkenni þunglyndis en þeir sem ekki fengu slíkan stuðning. Þeir sem áttu aðstandanda heima sem þurfti aðstoð við athafnir daglegs lífs voru kvíðnari en hinir. Komið hefur fram hjá gerviliðasjúklingum sjálfum að aðstandendur þurfi fræðslu til að draga úr kvíða vegna útskriftar og fræðsla auðveldi þeim að aðstoða sjúklinginn eftir að heim er komið (Soever o.fl., 2010). Margar rannsóknir meðal aðstandenda fjalla um skipulagningu útskriftarfræðslu (Lindhardt o.fl., 2008; Nosbusch o.fl., 2010). Aðstandendur skurðsjúklinga hafa lýst skorti á faglegum stuðningi eftir útskrift en hann veldur óöryggi í sjálfsumönnum, svo sem verkjameðferð og eftirliti með sári (Mottram, 2011). Einnig virðast vandaðar útskriftir tengjast færri fylgikvillum og endurinnlögnum aldraðra á sjúkrahús og ánægju sjúklinga og aðstandenda (Bauer o.fl., 2009). Eflandi sjúklingafræðsla Í hugmyndafræði eflandi sjúklingafræðslu er fræðsla skilgreind sem hjúkrunaríhlutun sem getur eflt sjúklinga og aðstandendur og ætti að beinast að því að uppfylla fræðsluþarfir þeirra í þeim tilgangi (Leino­Kilpi o.fl., 2005). Rannsóknir hafa sýnt að sjúklingar vænta að fá fjölbreytta fræðslu. Innihaldi hennar hefur verið skipt í sex svið: lífeðlisfræði, færni, reynslu, siðfræði, félagslegt svið og fjárhag (Rankinen o.fl., 2007). Félagslega sviðið felur meðal annars í sér fræðslu um hvernig fjölskyldan getur tekið þátt í umönnun sjúklings og upplýsingagjöf til hennar (Rankinen o.fl., 2007). Sambærilegar rannsóknir hafa ekki verið gerðar meðal aðstandenda og lítið er vitað um fræðsluþarfir aðstandenda gerviliðasjúklinga. Leiða má líkum að því að eftir því sem fræðsluþarfir eru betur uppfylltar því betur séu aðstandendur í stakk búnir til að sinna umönnunar­ og stuðningshlutverki sínu. Þannig megi efla jafnt aðstandendur sem og sjúklinga. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvernig fræðsluþarfir aðstandenda gerviliðasjúklinga eru uppfylltar á Íslandi og bera niðurstöður saman við sambærilegar niðurstöður frá sjúklingum. Rannsóknin er hluti af stærra samstarfsverkefni sjö Evrópulanda um eflandi sjúklingafræðslu til gerviliðasjúklinga og aðstandenda þeirra (Valkeapää o.fl., 2013). Eftirfarandi rannsóknarspurningar voru settar fram: 1. Hvaða fræðslu vænta aðstandendur sjúklinga, sem eru á leið í gerviliðaaðgerð á mjöðm eða hné, fyrir aðgerð og hver eru tengsl við bakgrunnsbreytur? 2. Hvaða fræðslu telja aðstandendur sig hafa fengið þegar þeir eru spurðir við útskrift sjúklings og hálfu ári síðar og hvaða bakgrunnsbreytur tengjast fenginni fræðslu? 3. Hver er mismunurinn á væntingum til fræðslu og fenginni fræðslu og hvaða bakgrunnsbreytur tengjast þeim mismun? 4. Verður breyting á mati aðstandenda þegar þeir eru spurðir við útskrift sjúklings og hálfu ári síðar? 5. Hvernig er samanburður á væntingum til fræðslu annars vegar og fenginni fræðslu hins vegar til sjúklings og aðstandanda hans? 6. Hvert er aðgengi aðstandenda að upplýsingum frá læknum, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum? 7. Hver eru tengsl aðgengis að upplýsingum og mismunar á væntingum til fræðslu og fenginni fræðslu við útskrift (T2)? AÐFERÐ Rannsóknarsnið Þetta var framvirk, lýsandi samanburðarrannsókn og voru spurningalistar notaðir til gagnasöfnunar. Mælipunktar voru þrír: tími 1 (T1) fyrir aðgerð sjúklings og fyrir formlega fræðslu um aðgerðina, tími 2 (T2) við útskrift sjúklings eftir aðgerð á sjúkrahúsinu, eftir útskriftarfræðslu, og tími 3 (T3) 6 mánuðum eftir aðgerð. Úrtak Í úrtaki sjúklinga voru allir þeir sem voru á leið í gerviliðaaðgerð á mjöðm eða hné frá janúar til nóvember 2010 á þeim þremur sjúkrahúsum á Íslandi sem framkvæma gerviliðaaðgerðir: Landspítala (LSH), Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og Heilbrigðis­ stofnun Vesturlands á Akranesi (HVE) og uppfylltu þátttöku skilyrði. Úrtak aðstandenda var valið þannig að öllum sjúklingum (n=556), sem boðin var þátttaka í rannsókninni, var jafnframt sendur spurningalisti og samþykkisbréf fyrir aðstandanda og þeir beðnir

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.