Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Qupperneq 52
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201448
meðaltali 3,3 (sf 1,4) (tafla 5). Þeir aðstandendur, sem tóku
þátt í einstaklingsfræðslu á FSA og HVE, höfðu betra aðgengi
að upplýsingum en þeir sem ekki tóku þátt í slíkri fræðslu. Ekki
fannst munur á aðstandendum sjúklinga á LSH, sem tóku þátt
í hópfræðslu, og hinum sem ekki tóku þátt í fræðslunni hvað
varðar aðgengi að upplýsingum, sjá töflu 5.
Uppfylltar væntingar til fræðslu og tengsl við
bakgrunn og aðgengi að upplýsingum
Aldur, menntun og aðgengi að upplýsingum voru þær
breytur sem reyndust hafa marktæka fylgni við mismun
á væntingum og fenginni fræðslu á T2, það er hversu vel
væntingar voru uppfylltar, og voru þær valdar í heildarlíkan
þrepaskiptrar línulegrar fjölbreytuaðhvarfsgreiningar. Í ljós kom
að heildarlíkanið útskýrði 28,4% af dreifingu breytunnar,
aðgengi að upplýsingum skýrði 25% og grunnmenntun skýrði
3,4%, sjá töflu 6. Aldur aðstandenda reyndist ekki hafa áhrif á
hversu vel væntingar þeirra voru uppfylltar.
UMRÆÐA
Þetta er fyrsta rannsókn sinnar tegundar um fræðsluþarfir
aðstandenda gerviliðasjúklinga á Íslandi og niðurstöður
hennar geta nýst til að skipuleggja markvissa fræðslu fyrir
aðstandendur sem byggð er á gagnreyndri þekkingu.
Tafla 2. Væntingar til fræðslu (HPEKS) og fengin fræðsla (HPRKS) aðstandenda gerviliðasjúklinga fyrir aðgerð, við útskrift sjúklinga af
sjúkrahúsi og sex mánuðum eftir aðgerð; mismunur á væntingum og fenginni fræðslu.
Tími 1
(fyrir aðgerð)
(n=271)
Væntingar
Tími 2
(við útskrift)
(n=141)
Fengin fræðsla
Tími 3
(6 mán. eftir
aðgerð) (n=144)
Fengin fræðsla
Mismunur á
væntingum (T1)
og fenginni
fræðslu (T2)
Mismunur á
væntingum (T1)
og fenginni
fræðslu (T3)
Marktækni munar á
fenginni og væntri
fræðslu*
pgildi Áhrifastærð
Heildarlisti 1,3 (0,5) 2,2 (1,1) 2,3 (1,1) 0,88 (1,1) 1,06 1,1) <0,001 0,54
Undirsvið
Lífeðlisfræði 1,2 (0,4) 1,8 (1,0) 2,0 (1,1) 0,58 (1,1) 0,89 (1,2) <0,001 0,38
Færni 1,2 (0,4) 1,8 (1,1) 2,0 (1,1) 0,56 (1,1) 0,91 (1,2) <0,001 0,40
Reynsla 1,3 (0,6) 2,2 (1,3) 2,4 (1,3) 0,92 (1,3) 1,18 (1,3) <0,001 0,52
Siðfræði 1,3 (0,7) 2,4 (1,3) 2,4 (1,3) 0,99 (1,0) 1,19 (1,3) <0,001 0,52
Félagslegt 1,3 (0,5) 2,3 (1,3) 2,4 (1,3) 1,02 (1,2) 1,20 (1,2) <0,001 0,56
Fjárhagur 1,4 (0,9) 2,7 (1,5) 2,5 (1,3) 1,36 (1,6) 1,30 (1,5) <0,001 0,50
Meðaltöl, staðalfrávik (sf), tölugildi frá 14 (1=miklar, 4=litlar væntingar/fengin fræðsla).
Mismunur á væntingum og fenginni fræðslu (HPEKS mínus HPRKS) á T1 og T2 og T1 og T3 með tölugildi frá 3 til 3.
*Dreifigreining endurtekinna mælinga, pgildi og áhrifastærð með tölugildi frá 0 til 1.
Tafla 3. Mismunur á væntri og fenginni fræðslu: marktækur munur eftir bakgrunni aðstandenda gerviliðasjúklinga, mælt fyrir aðgerð og við
útskrift sjúklings annars vegar og fyrir aðgerð og eftir 6 mánuði hins vegar.
Bakgrunnur Mismunur á væntri og fenginni
fræðslu á T2
Mismunur á væntri og fenginni
fræðslu á T3
Aldur
59 ára og yngri 1,10 1,33
60 ára og eldri 0,69 p=0,03 0,85 p=0,02
Kyn
Kona 1,01 1,26
Karl 0,67 p=0,09 0,75 p=0,01
Grunnmenntun
grunnskólapróf/fullnaðarpróf* 0,72 1,06
gagnfræðapróf/landspróf 0,90 1,10
stúdentspróf* 1,38 p=0,04 1,00 p=0,91
* Munur á grunnskólaprófi/fullnaðarprófi og stúdentsprófi.