Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 56
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201452 Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 52
ÚTDRÁTTUR
Á Íslandi sem og í hinum vestræna heimi mun öldruðum fjölga
hlutfallslega á komandi áratugum. Stefna stjórnvalda er að aldraðir
geti búið sem lengst á heimilum sínum með viðeigandi aðstoð. Hér
hefur ábyrgðin á opinberri þjónustu við þá skipst milli félagsþjónustu,
sem er starfrækt af sveitarfélögunum, og heilbrigðisþjónustu, meðal
annars heimahjúkrunar, sem er á vegum ríkisins. Það er yfirlýst
stefna stjórnvalda að samþætta þessa þjónustu undir sameiginlegri
stjórn sveitarfélaganna. Tilgangur þessarar greinar er að varpa ljósi
á það hvernig samþættingu heilbrigðis og félagsþjónustu fyrir
aldraða er best fyrir komið. Gerð var ítarleg leit að umfjöllun um
skilgreiningar á samþættingu, markmiðum hennar og rannsóknum á
árangri samþættingarverkefna í gagnasöfnunum PubMed, Scopus,
Cinahl og Gegni. Leitin afmarkaðist við greinar frá löndum Evrópu og
NorðurAmeríku skrifaðar á ensku frá árunum 2000 til 2010. Lýsingar
á samþættingu þjónustueininga innan heilbrigðiskerfisins voru
útilokaðar. Stuðst var við aðgreiningu Leutz á stigum samþættingar
við flokkun greina. Tekið var mið af 49 ritverkum við greiningu á
skilgreiningum og markmiðum samþættingar. Umfjöllun um árangur
samþættingar byggðist á greiningu á 7 stórum verkefnum sem
höfðu öll verið metin í rannsóknum. Fram kom að skilningur á
samþættingu er breytilegur eftir löndum en lýsingar á markmiðum
þessara verkefna voru samhljóða, þ.e. að aldraðir séu betur komnir
heima en á stofnunum. Þeir séu misleitur hópur með fjölþættar
þjónustuþarfir sem sinnt er af mörgum faghópum sem nauðsynlegt
er að samhæfa svo ekki verði tvíverknaður eða göt í þjónustunni. Það
sem einkennir árangursrík samþættingarverkefni er þjónustustjórnun
og þjónustustjóri, ein þjónustugátt, gerð er áætlun um þjónustu sem
allir sameinast um, matstæki og upplýsingaforrit eða skráning eru
sameigin leg, teymisvinna er ástunduð og húsnæði er sameiginlegt.
Hér á landi er vinna við samþættingu heilbrigðis og félagsþjónustu
komin einna lengst í Reykjavík þar sem hluti hennar er á þriðja stigi
samkvæmt skilgreiningu Leutz. Niðurstöður samantektarinnar eru
hjálplegar við mat á styrk og veikleikum samþættingarverkefna.
Lykilorð: Heimaþjónusta, heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta,
samþætt þjónusta, aldraðir, heimahjúkrun.
INNGANGUR
Um allan hinn vestræna heim fer meðalaldur hækkandi og hlutfall
aldraðra meðal þjóða hækkar. Þetta skýrist meðal annars af lægri
fæðingartíðni, heilbrigðari lífsstíl, betri aðbúnaði fólks og framförum
á sviði heilbrigðisvísinda (Williams o.fl., 2009). Gangi spá Hagstofu
Íslands eftir mun hlutfall aldraðra, 67 ára og eldri, hækka hér á landi
úr 10,4% árið 2010 í 21,1% árið 2060. Hlutfall háaldraðra, 85 ára
og eldri, mun fara úr 1,5% árið 2010 í 4,4% árið 2060 (Hagstofa
Íslands, 2010). Á ýmsum landsvæðum á Íslandi, til dæmis í
Ísafjarðarbæ sem er heimabær fyrsta höfundar greinarinnar, hefur
þessi þróun þegar átt sér stað. Árið 2010 voru 25,6% íbúa þar
eldri en 67 ára (Hagstofa Íslands, 2010). Þessar breytingar á
Hildur Elísabet Pétursdóttir, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Kristín Björnsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
SAMÞÆTTING HEILBRIGÐIS OG FÉLAGSÞJÓNUSTU:
FRÆÐILEG SAMANTEKT
ENGLISH SUMMARY
Pétursdóttir, H.E., Björnsdóttir, K.B.
The Icelandic Journal of Nursing (2014), 90 (2), 52-60
INTEGRATION OF HEALTH AND SOCIAL
SERVICES: AN INTEGRATIVE REVIEW
It is forecasted that the number of elderly in Iceland, as in other
western societies, will increase proportionally in the coming
years. Icelandic policy reflects the authorities’ commitment
to help older people remain living in their own homes for as
long as possible, with the appropriate services. Responsibility
for providing such services has been divided between the
municipalities, providing social services, and the state taking
care of health services, but current policy reflects the aim to
integrate these services at the municipal level. The purpose
of this paper was to explore how such integration has been
developed. A literature search was undertaken in PubMed,
Scopus, Chinal and Gegnir, focusing on the way in which
integration is defined, its aims and studies of results of
integration projects. The search was limited to studies written
in English, focusing on the situation in Europe and North
America from 2000 to 2010. Studies addressing integration
between services within the health care system were excluded.
Categorization of studies was based on Leutz’s levels of
integration. Analysis of definitions and aims of integration
was based on 49 documents, but analysis of successful
integration was based on 7 projects that have been evaluated
through research. Considerable variation was observed in how
integration was defined between countries, but the aims were
universally identified as supporting the elderly to live at home
rather than moving to an institution. They are described as
a heterogeneous group with diverse needs which demands
services from different professional groups which calls for
coordination to prevent duplication and gaps in services.
Successful integration projects use service management and
case management, single entry point, individualized service
plans, collective assessment instruments, teamwork and
united documentation system and all services are located in
the same place. In Iceland integration has been initiated in a
number of municipalities and in Reykjavik part of the services
are already at Leutz’s third level. This study provides helpful
guidance in evaluating the barriers and facilitators of integration.
Keywords: Home care services, health care, social services,
integrated care, elderly, homecare nursing.
Correspondance: hep1@hi.is