Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Síða 7
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 2012 3
Undanfarnar vikur hefur mikið verið
rætt um kaup og kjör einstakra stétta
og hópa. Kynbundinn launamunur hefur
verið til umræðu, mismunur launa á
almennum markaði og hinum opinbera
og samkeppnishæfni Íslands um laun
heilbrigðis starfsmanna. Það er áhugavert
að skoða kjör hjúkrunarfræðinga í ljósi
umræðunnar, þessarar fjölmennu kvenna
stéttar sem að langstærstum hluta
vinnur hjá hinu opinbera og harla lítil virk
samkeppni er um hér á landi.
Laun opinberra starfsmanna eru nú
17,6% lægri en á almennum markaði
samkvæmt nýlegri launakönnun VR, SFR
og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Ánægjulegu fréttirnar eru að heldur dregur
úr kynbundnum launamun þótt ótrúlega
hægt gangi að uppræta þann ófögnuð.
Enn kostar munurinn konur í VR nærri fimm
milljarða króna á ársgrundvelli!
Laun hjúkrunarfræðinga og annarra heil
brigðisstétta hafa einnig verið í umræðunni
í kjölfar umdeildrar launa hækkunar
forstjóra Landspítalans (LSH) um nærri
25%. Velferðarráðherra færði ýmis rök fyrir
þessari hækkun svo sem að launahækkunin
væri fyrir viðbótarstörf og að hann hafi
orðið að hækka laun forstjórans til að koma
í veg fyrir að hann hyrfi til betur launaðs
starfs erlendis. Ekki þarf að fjölyrða um þá
ólgu, reiði og sorg sem þessi ákvörðun og
rökin sem færð voru fyrir henni ollu meðal
starfsmanna Landspítalans. Afturköllun
launahækkunarinnar og flóttalegir tilburðir
ráðherrans og forstjórans breyttu þar litlu
um. Líklega er erfitt að finna dæmi um jafn
ranga ákvörðun, hvort heldur ákvörðunin
er metin á mælistiku stjórnmálanna eða
stjórnunar.
Forstjóri LSH hefur sagt að frá 2007 hafi
verið skorið niður um 32 milljarða á LSH
eða sem samsvarar nánast heilu rekstrarári.
Starfsfólki hefur fækkað um 700 manns.
Forstjórinn hefur sérstaklega lagt áherslu
á að tekist hafi að halda í jafn marga
sérfræðilækna og hjúkrunarfræðinga og var
árið 2007. Vinnuframlag hjúkrunarfræðinga,
það er samræmd magnmæling dagvinnu
og yfirvinnu, hefur hins vegar dregist
saman. Skýringin er fyrst og fremst sú
að yfirvinna er nánast bönnuð, hvort sem
hennar er þörf eður ei.
Það er áhugavert að skoða áhrif þessara
breytinga á laun hjúkrunarfræðinga.
Dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga hækkuðu
að meðaltali um 21,66% frá 2007 til 2011.
Á sama árabili hækkuðu meðalheildarlaun
þeirra hins vegar aðeins um 12,54%. Til
samanburðar má nefna viðskipta og
hagfræðinga hjá ríkinu en meðalheildarlaun
þeirra hækkuðu á sama tíma um
20,37%. Meðalheildarlaun starfsmanna
stjórnarráðsins hækkuðu um 21,48%.
Það er líka áhugavert að skoða hversu stór
hluti heildarlauna einstakra stétta byggist á
öðrum launum en dagvinnulaunum. Tæp
27% heildarlauna hjúkrunarfræðinga eru
vegna annarra þátta en dagvinnu, það
er yfirvinnu, álagsgreiðslna vegna kvöld,
nætur, og helgarvinnu, og annarra launa.
Lögreglumenn fá hins vegar tæplega
45% sinna heildarlauna vegna annarra
þátta en dagvinnu. Meðalyfirvinnulaun
lögreglumanna eru nærri tvöfalt meiri en
meðalyfirvinnulaun hjúkrunarfræðinga
og lögreglumenn fá að meðaltali nærri
sex sinnum meiri „önnur laun“ en
hjúkrunarfræðingar. Lögreglumenn eru
sannarlega vel verðugir launa sinna en
þessi munur á samsetningu launa er
áhugaverður í því ljósi að þarna er um hefð
bundnar kvenna og karlastéttir að ræða
annars vegar og hins vegar að hjúkrunar
fræðingar vinna innan heilbrigðiskerfisins en
lögreglumenn utan þess. Dagvinnustéttin
viðskipta og hagfræðingar fær 20%
af sínum heildar launum fyrir annað en
dagvinnu eða litlu minna en vaktavinnustéttin
hjúkrunarfræðingar.
Jafnræði innan ríkisins?
Á árunum 2007-2011 hækkuðu
heildarlaun hjúkrunarfræðinga um
12,5%, laun viðskipta- og hag-
fræðinga hjá ríkinu um 20,4% og laun
ráðuneytisstarfsmanna um 21,5%.
Samanburður sem þessi sýnir glögglega
að þrátt fyrir digur orð stjórnvalda um
að heilbrigðiskerfinu hafi verið hlíft við
niðurskurði undanfarin ár er ljóst að launum
kvennastétta í heilbrigðisþjónustunni
hefur verið haldið niðri í samanburði við
karlastéttir utan heilbrigðiskerfisins. Það
er ekki í neinu samræmi við yfirlýsingar
forsætisráðherra um að unnið sé að því
að eyða kynbundnum launamun. Er 23%
niðurskurður á LSH kannski réttlætanlegur
af því að þar er mikill meirihluti starfsmanna
konur? Hjúkrunarfræðingar og aðrir
heilbrigðisstarfsmenn eiga ekki að þurfa
að réttlæta laun sín. Alþingismenn og aðrir
æðstu stjórnendur þessa lands verða að
hætta að líta á heilbrigðiskerfið sem bagga
á samfélaginu, bagga sem sogar endalaust
til sín fjármagn. Það er löngu tímabært að
meta heilbrigðiskerfið og þá sem þar starfa
út frá þeirri miklu verðmætasköpun sem
þar er. Verðmæti starfa hjúkrunarfræðinga
á að meta út frá öllu því heilsutjóni sem þeir
fyrirbyggja og þeim arði sem fæst af því að
koma fólki aftur til heilsu og til fjölskyldna
sinna. Það er ávinningur samfélagsins alls
að koma fólki aftur út á vinnumarkaðinn
til að skapa þar verðmæti og til að greiða
samfélaginu skatta.
Undanfarnar vikur hafa hjúkrunarfræðingar
sýnt hvaða áhrif samstaðan getur haft.
Sú samstaða verður að ríkja áfram, ekki
aðeins til að bæta hag hjúkrunarfræðinga
heldur einnig til að koma í veg fyrir að
gengið verði svo nærri heilbrigðiskerfinu að
alvarlegur skaði hljótist af.
LAUNIN LÆGST Í HEILBRIGÐISKERFINU
Formannspistill
Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Opið virka daga kl. 9 -18 og laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Skurðstofu- og skoðunarhanskar
Steriking pökkunarvörur frá WIPAK
Hágæða hanskar af öllum gerðum til notkunar á heilbrigðisstofnunum.
Fyrir sjúkrahús, heilsugæslu, hjúkrunarheimili og læknastofur.
Framúrskarandi framleiðslutækni tryggir áreiðanleika og öryggi.
Mýkt og þægindi. Vörn gegn sýkingum.
Sempermed byggir á yfir 90 ára reynslu í vöruþróun
Allt sem til þarf fyrir dauðhreinsun í autoklava.
Sótthreinsipokar og rúllur.
Pappírsarkir til pökkunar.
Gæða vara og rétt notkun tryggir áhrifaríka dauðhreinsun
og örugga meðhöndlun áhalda.
Örugg pökkun í þínum höndum