Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Blaðsíða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Blaðsíða 25
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 2012 21 fiskvinnsla og stundum koma menn með krók í fingri og þess háttar. Menn dytta að húsunum sínum og nýlega skar maður sig á gleri alveg niður í sinar og bein. Svo verða oft slys um áramót þegar menn fara með flugelda. Einnig veikjast menn og hafa til dæmis krabbameinstilfellin verið nokkuð mörg síðustu ár. Susanne segist tengjast fólki allt öðru vísi en ef hún væri að vinna á stóru sjúkrahúsi. Hún sé ein af fjölskyldunni og hluti af samfélaginu. „Á sjúkrahúsi er maður bara farinn heim og sjúklingarnir eru áfram í góðum höndum því einhver annar sinnir þeim. Maður tekur þetta ekki svona inn á sig. Hér er ég hluti af þessu fólki og tek þetta allt öðru vísi, tek það með heim.“ Susanne fyndist stundum gott að hafa samstarfsmann til að tala við. Henni finnst hin líkamlega erfiða vinna sem fylgir heimahjúkrun ekki vera vandamálið. „Nei, maður verður bara að gera þetta sjálfur, ég er stór og sterk! Ég hef stundum fengið sjúkraflutningamenn til að hjálpa mér að bera fólk út úr húsi og koma því inn í bíl. Svo hjálpa aðstandendur stundum til. Það er andlega álagið sem er svo miklu erfiðara. Mér finnst erfitt að sjá dauðvona ungt fólk kveljast. Þá þýðir ekki að fara heim í heitt bað til að hrista það af sér,“ segir hún. Það væri auðvitað hægt að hringja og ræða við einhvern á heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum en henni finnst erfitt að taka upp símann þegar hún hefur ekkert áþreifanlegt vandamál til að ræða. „Mér finnst oft ekki erindi til þess af því að það er ekkert að þannig séð. Ég hef stundum beðið um að fá vissan tíma í viku til þess að gefa skýrslu en þetta bara gengur ekki upp. Menn hafa alveg áhuga en ekki tíma og örugglega meira en nóg að gera hjá sér,“ segir Susanne. Hún vill samt ekki halda því fram að hún hafi yfir miklu að kvarta. „Það er bara dálítið álag að vera alltaf til staðar og spurning um hvernig maður höndlar það. Ég er farin að læra að ég þarf ekki að standa ein, ég get bara hringt í Egilsstaði ef þess þarf. Ég þarf bara að taka fyrsta skrefið og það er alltaf vel tekið á móti mér þegar ég hringi.“ Enginn krefst hetjudáðar Susanne hefur alltaf gert kröfu til sín um að þurfa að kunna allt og geta tekist á við allt sem gerist en er farin að átta sig á að það er ekki hægt. „Ég þarf ekki að einsetja mér að vera ofurhjúkka, ég má alveg viðurkenna að ég get ekki allt. Það tók mig mörg ár. En það krefst enginn þess af mér. Mér finnst allt í lagi að viðurkenna, eins og þegar ég er með fræðslu í skólanum og fæ spurningu, að ég viti ekki svarið. Hver er munurinn á fæðingabletti og freknu? Ég bara veit það ekki, ég verð að gúgla það. Og því er ekki tekið illa. En maður lærir alveg ótrúlega mikið á því að vera hjúkrunarfræðingur á svona litlum stað.“ „Það er mjög fjölbreytt vinna hér. Ég þarf bara að stunda meiri símenntun. Stundum hef ég sótt fundi skólahjúkrunarfræðinga en ekki mikið meira en það. Núna þegar börnin eru orðin stærri langar mig að fara á námskeið til Akureyrar eða Reykjavíkur. Ég hef sótt nokkur endurlífgunarnámskeið til Rauða krossins en vildi gjarnan læra meira um bráðahjúkrun. Svo er það sárameðferð, hjartahjúkrun og fleira sem ég vil læra meira um,“ segir Susanne. Enginn tími til að láta sér leiðast „Mér leiðist ekki,“ segir Susanne þegar spurt er hvernig gangi að vinna fulla vinnu og sinna líka bústörfum. „Þetta gengur en börnin þurfa að bjarga sér og hjálpa til, líka í búskapnum. Við erum í sveit, þar gengur allt. Vinkona mín úti í Þýskalandi, sem er líka hjúkrunarfræðingur, vinnur hálfa vinnu sem er minna en hér því þeirra vinnuvika er styttri. Henni finnst það alveg yfirdrifið nóg. En mér finnst bara gaman að hafa eitthvað að gera og það er ekki beint vinna að þurfa svo að gefa og moka, þetta er bara eins og frístundagaman. En maður er ekki búinn klukkan fjögur. Ég er með ákveðinn tíma á heilsugæslunni en hitt er mjög sveigjanlegt. Mér finnst gott að gefa mér góðan tíma með hverjum og einum.“ „Svo er gott að stunda búskap til að halda sönsum. Við erum með tuttugu hross og fjörtíu kindur, þetta er nú ekki neinn stórbúskapur. En þetta er mjög fínt og passlegt og maður kemst yfir þetta. Maðurinn minn er mikill sjúklingur þannig að þetta er bara hæfilegt. Svo er náttúran hér alveg yndisleg og gefur manni mikið. Það er eins og að lifa í málverki. Fjallahringurinn er æðislegur og ég get gengið milli húsa og heimsótt sjúklinga, þetta eru bara forréttindi. Frekar vil ég vera hér og komast ekki yfir fjallið á veturna en að vinna á spítala fyrir sunnan,“ segir Susanne. Séð yfir þorpið á Borgarfirði eystri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.