Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Blaðsíða 26
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 201222
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
Á SUÐURLANDSBRAUT Í 25 ÁR
Í júní sl. voru 25 ár síðan flutt var inn í húsakynni Félags íslenskra hjúkrunar
fræðinga á Suðurlandsbraut 22. Húsið var þá nýbyggt. Húsnæðið var
formlega tekið í notkun 28. ágúst 1987 og verður haldið upp á afmælið
19. nóvember nk.
Þegar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
tók við hæðinni í janúar 1987 var húsið
nýbyggt og tilbúið undir tréverk. Því
var hægt að innrétta skrifstofuna með
þarfir félagsins í huga. Vinna við að
innrétta húsið tók allt vorið en hægt var
að opna skrifstofuna í júní. Húsnæðinu
var breytt lítillega 2005 og síðan ráðist
í verulegar endurbætur 2010, fyrst og
Skrifstofa Hjúkrunarfélags Íslands var lengi á
Þinghólsstræti 30 í Reykjavík.
Suðurlandsbraut 22 í byggingu.
fremst með það að markmiði að bæta
aðstöðu félagsmanna.
Á hæðinni eru nú skrifstofur starfsmanna
félagsins, móttaka og afgreiðsla og ekki
síst þrjú fundarherbergi sem félagsmenn
hafa aðgang að. Félagsmenn þekkja vel
stóra salinn og Sigríðarstofu en nú hefur
bæst við eitt lítið fundarherbergi.
Húseignarsögu félagsins má reka til
1935 þegar byrjað var að safna fyrir
sumarhúsi. Tveimur árum seinna var
vígður sumarbústaður í Mosfellssveit en
hann fékk nafnið Kvennabrekka. Þetta
var áður en félagasamtök fóru almennt að
eignast sumarbústaði. Í nóvember 1944,
þegar Félag íslenskra hjúkrunarkvenna
var 25 ára, gaf Anna Ólafsdóttir Johnsen,
yfirhjúkrunarkona á Vífilsstöðum, eitt
þúsund krónur í húsbyggingarsjóð.
Hugmyndin var að koma upp húsnæði
sem í væri senn íbúðir fyrir hjúkrunarkonur
sem hættar voru störfum, gistiherbergi
fyrir félagsmenn utan af landi og skrifstofa
og fundarstaður félagsins.
Félagið gat 1956 fjárfest í hæð í
Blönduhlíð og var hún leigð út. Íbúðin var
svo seld 1963 þegar félagið keypti 170
fermetra hæð í Þinghólsstræti 30. Þar
var skrifstofa félagsins í 23 ár. Þessi kaup
kostuðu miklar fórnir því allir félagsmenn
þurftu að leggja til eitt þúsund krónur.
Miðað við núverandi byrjunarlaun
samsvarar það um 56.000 krónur.
Félagsmönnum fjölgaði ört næstu
áratugina og húsnæðið á Þingholtsstræti
var orðið of þröngt fyrir starfsemi
félagsins. 1983 var samþykkt á félags
ráðsfundi að leita skyldi eftir nýju
húsnæði. Stjórn félagsins fór þá af stað
að leita eftir hentugri eign. Sigþrúður
Ingimundardóttir, þáverandi formaður,
var um tíma formaður skólanefndar Nýja
hjúkrunarskólans sem var til húsa á
Suðurlandsbraut 18. „María Pétursdóttir
skólastjóri var alltaf að segja mér frá húsi
sem var þá í byggingu á Suðurlandsbraut
22. Við fórum margoft og skoðuðum og
ræddum við þann sem var að byggja
húsið. Ég fór síðan með þetta í stjórn
félagsins og var það heilmikið rætt áður
en ákvörðun var tekin,“ segir Sigþrúður.
Skömmu eftir að flutt var inn í nýja húsnæðið
hélt Reykja víkurdeildin fund um menntunarmál
24. júní 1987.
Þegar flutt var inn á Suðurlandsbraut var
Sigþrúður Ingimundardóttir formaður Hjúkrunar
félags Íslands. Hún var hins vegar í leyfi og var
Pálína Sigurjónsdóttir starfandi formaður.