Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Blaðsíða 54
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 201250
bæði megindlegar og eigindlegar upplýsingar. Ferlismat er
notað þegar skoða þarf hvernig gengur að innleiða inngrip
(intervention) en inngripið getur verið af ýmsum toga. Í þessu
tilviki er inngripið kynfræðsla. Með aðferðinni er meðal annars
hægt að skoða gæði inngripsins og nákvæmni þess. Linnan
og Steckler nefna atriði sem eru mikilvæg í ferlismati sem eru
samhengi við hið stærra umhverfi (context), til hverra inngripið
nær (reach), hversu viðamikið inngripið er (dose delivered),
hversu virkir þátttakendur eru í innleiðingunni (dose received),
hversu vel inngripið var framkvæmt samkvæmt áætlun (fidelity),
í hversu miklu mæli inngripið var innleitt og móttekið af þeim
sem það var ætlað (implementation) og leiðir sem voru farnar
til að ná í þátttakendur (recruitment). Í þessari grein er komið
inn á flesta þessa þætti en lögð megináhersla á innleiðingu
kynfræðslunnar (implementation). Við ferlismat er unnt að
leggja til grundvallar ýmiss konar gögn (Linnan og Steckler,
2002). Í þessari rannsókn var fylgst með því frá upphafi hvernig
kynfræðslan gekk fyrir sig og lögð var áhersla á skráðar
upplýsingar frá kennurum og nemendum.
Úrtak
Nýtt kynfræðsluefni fyrir 8. bekk var forprófað í einum grunnskóla
í Reykjavík haustið 2010. Það var kennt í sex bekkjum. Alls
voru 141 nemendur skráðir í 8. bekk haustið 2010 í viðkomandi
skóla og tóku þátt í forprófun kynfræðsluefnisins.
Kynfræðsluefnið
Kynfræðsluefnið byggist á leiðbeiningum um alhliða kynfræðslu
Kynfræðslusamtaka Bandaríkjanna (SIECUS, 2004),
rannsóknarniðurstöðum Kirby (2001, 2002, 2007) um árangur
kynfræðslunámsefnis, alhliða kynfræðslunámsefninu Lífsgildi og
ákvarðanir og rannsóknum höfundar á kynheilbrigði unglinga.
Námsefnið samanstóð af átta kennslustundum og mynduðu
tvær kennslustundir eina heild og nefndust þær Sjálfsmynd,
Samskipti, Kynjamunur og Forvarnir. Innan sjálfsmyndar var
lögð áhersla á styrkleika og virðingu. Innan samskipta voru
meginefnisþættir tjáskipti og ákvarðanir. Í þriðja hlutanum
um kynjamun var fjallað um kynþroskabreytingar og jafnrétti.
Í síðustu lotunni um forvarnir voru ábyrgð og sjálfsstjórn
meginviðfangsefnin. Alls voru 24 æfingar lagðar til grundvallar
í kennsluefninu (tafla 1).
Tilgangur námsefnisins er að stuðla að kynheilbrigði unglinga.
Með námsefninu er lagður grunnur að þekkingu, viðhorfum og
færni í samskiptum sem stuðla að ábyrgu, öruggu og góðu
kynlífi þegar að því kemur að unglingurinn byrjar að stunda
kynlíf. Með því móti eru líkur á því að hann komi í veg fyrir
vandamál á þessu sviði eins og kynsjúkdóma og óráðgerðar
þunganir. Með námsefninu er lögð áhersla á þær líkamlegu
og sálfélagslegu breytingar sem verða á unglingsárunum, en
á þessum tíma er unglingurinn að gera sér grein fyrir sjálfum
sér og byggja upp sjálfsvirðingu sem mótast af samskiptum
hans við aðra. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að koma fram
við aðra af heiðarleika og af umhyggju og sýna sjálfsstjórn
og ábyrgð í tali og gjörðum. Jafnframt er fjallað um að geta
á frjálsan og ábyrgan hátt tjáð kynferðislegar tilfinningar sínar
og þroskað með sér næmni á tilfinningar annarra. Í gegnum
námsefnið lærir unglingurinn að gera sér grein fyrir því að
kynferðislegt samband einkennist af trúnaði og samþykki
beggja og er báðum til ánægju þar sem að engar þvinganir
eiga sér stað. Jafnframt er lögð áhersla á að góðar upplýsingar
eru grunnur að góðum ákvörðunum.
Námsefnið byggist á hugmyndafræði um kynheilbrigði (sexual-
and reproductive health) (Robinson o.fl, 2002; Tolman o.fl.,
2003), seiglu (resilience) (Rew og Horner, 2003; Thompson,
2006) og félagsnámskenningu (social learning/cognitive
theory) (Bandura, 2001, 2004). Hugmyndafræðin miðast við
að unglingurinn sé að þroskast sem kynvera, að hann þurfi
að þroska með sér ákveðna styrkleika og að hann sé virkur
einstaklingur sem mótar umhverfi sitt en verður jafnframt
fyrir áhrifum frá því. Undirtónn hverrar kennslustundar þessa
námsefnis er kynheilbrigði. Kynheilbrigði nær til líkamlegra,
andlegra og félagslegra þátta kynverunnar. Það felur í sér
bæði kynlífsheilbrigði (sexual health) og frjósemisheilbrigði
(reproductive health). Kynlíf (sexuality) höfðar til alls þess er
varðar kynveruna svo sem skynjun einstaklingsins á sjálfum sér
sem kynveru, kynhrif, ást, kynlöngun, sjálfsfróun, kynferðisleg
atlot og kynmök. Frjósemin nær til þess að hafa möguleika
á því að eignast barn þegar einstaklingurinn er tilbúinn til
þess. Í námsefninu er farið yfir mikilvæga þætti til að varast
kynsjúkdóma og vernda frjósemina. Jafnframt er fjallað um að
nota getnaðarvarnir á þeim tíma sem ætlunin er að koma í veg
fyrir barneign. Út frá hugmyndafræðilegum ramma um seiglu
er gengið út frá styrkleikum unglingsins (protective factors)
í stað áhættuhegðunar og þannig verður áherslan á getu í
stað vangetu. Mikilvægir þættir eru meðal annars sjálfsvirðing,
sjálfstæð hugsun og sjálfsstjórn. Með námsefninu er lögð
áhersla á að styrkja einstaklinginn og færni hans til að takast á
við ýmsar áhættusamar aðstæður þannig að hann sé líklegri til
að geta stuðlað að sínu eigin kynheilbrigði. Námsefnið stuðlar
að þessu með því meðal annars að byggja upp þekkingu og
færni einstaklingsins til að takast á við ýmsar aðstæður. Þegar
einstaklingurinn stendur frammi fyrir ólíkum aðstæðum reynir
á hann sjálfan. Því er það mikils virði að hann hafi fyrirfram
myndað sér nægjanlega skýra sýn á aðstæðurnar, nægjanlega
þekkingu til að byggja á og búi yfir skýru gildismati og kjarki til
að takast á við aðstæðurnar á uppbyggjandi hátt. Einstaklingur
með óstyrka sjálfsmynd, litla sjálfsvirðingu og litla trú á sjálfum
sér er mun ólíklegri til að setja mörk í kynferðislegu sambandi
og tekur því oft meiri áhættu en ella. Einnig er lagt upp
með hugmyndafræði félagsnámskenningar. Á unglingsárunum
verður unglingurinn fyrir áhrifum frá umhverfi sínu og þeim
mikilvægu einstaklingum sem eru í umhverfi hans en hann er
jafnframt mótandi á umhverfi sitt. Unglingurinn er í leit að sjálfum
sér og leitar í vaxandi mæli til jafningja sinna að upplýsingum,
stuðningi og staðfestingu á sjálfum sér. Hann fylgist með öðrum
og lærir af þeim en lærir líka af þeim upplýsingum sem hann
fær. Námsefnið leggur áherslu á félagsleg samskipti nemenda
í gegnum hópastarf og þau verkefni sem hópurinn vinnur
saman. Í hópunum þurfa nemendur að deila viðhorfum sínum
og hugsunum, taka tillit til hvors annars, hlusta og meðtaka.
Með æfingunum skoða þau samskipti, áhrif frá öðrum og
kynferðislegan þrýsting og þróa með sér gagnrýna hugsun.