Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Blaðsíða 38

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Blaðsíða 38
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 201234 Herdís Gunnarsdóttir, herdisgu@landspitali.is LÍFEYRISRÉTTINDI HJÚKRUNARFRÆÐINGA OG STAÐA SJÓÐANNA Lífeyrismál hafa verið mikið í deiglunni undanfarið og sitt sýnist hverjum um uppbyggingu lífeyrissjóða og ríkisábyrgð á þeim. Herdís Gunnarsdóttir fer hér yfir hvernig þessi mál snúa að hjúkrunarfræðingum. Lífeyrisrétturinn er órjúfanlegur hluti af heildarkjörum hjúkrunarfræðinga. Mun lægri laun hjúkrunarfræðinga, saman­ borið við háskólastéttir á almennum vinnumarkaði, hafa í gegnum tíðina verið réttlætt með tilvísun til góðra og öruggra lífeyris réttinda í opinberum sjóðum. Hugmyndir um að breyta réttindum í opinberum lífeyrissjóðum til jafns á við almenn lífeyrisréttindi hafa verið í umræðunni síðustu misseri. Í því sam­ hengi hafa verið ræddar tillögur um að hækka lífeyrisaldur úr 65 árum í 67 ár og að jafna skuli réttindi þeirra sem greiða í lífeyrissjóði þannig að ríkið hætti að ábyrgjast lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. Stjórn FÍH sá því tilefni til að álykta um það nú í haust að slíkar breytingar á lífeyrisréttindum hjúkrunar­ fræðinga yrðu ekki samþykktar af FÍH enda þyrfti þá að koma til stórkostleg leiðrétting launa ef sama vinnulöggjöf á að gilda hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði. Skuldbindingar hins opinbera Ég hef því beitt mér fyrir því að stjórn FÍH skori á stjórnvöld að setja fram áætlun um hvernig skuli leiðrétta inngreiðslu hins opinbera í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga (LH) og jafnframt að hækka iðgjöld til A­deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), eins og kveðið er á um í núgildandi lögum um lífeyrissjóðinn. Þegar rætt er um skuldbindingar ríkisins vegna LSR og LH má ekki gleyma því að verið er að ræða réttindi mikils meirihluta hjúkrunarfræðinga sem starfað hafa í opinberri þjónustu á undanförnum áratugum og skapað ábata í velferðarkerfinu og í íslensku samfélagi. Skuldbindingar eða skuld ríkisins við LSR og LH eru því áunnin réttindi þúsunda einstaklinga sem koma eiga til greiðslu á næstu árum og áratugum en ekki reikningur sem bíður skattgreiðenda framtíðarinnar að greiða. Ég vil draga fram þá staðreynd að hjúkrunarfræðingar, sem flestir eru opinberir starfsmenn, eru einnig skattgreiðendur. Umræðan um að skertar inngreiðslur ríkisins vegna skuldbindinga við opinbera lífeyrissjóði sé framtíðarbyrði sem skella skuli á skattgreiðendum er því á villigötum. Vandi A­deildar LSR er til kominn vegna þess að ríkið hefur frá árinu 2008 ekki greitt að fullu skuldbindingar sínar í inngreiðslum til sjóðanna eins og ber að gera lögum samkvæmt. Við breytingu á lífeyrissjóðakerfinu 1997 var stefnt að því að hverfa frá gegnumstreymiskerfi yfir í sjóðssöfnunarkerfi, en það er það kerfi sem almennu lífeyrissjóðirnir byggja á. Almenna lífeyrissjóðakerfið hefur byggt á sjóðsmyndun og sjóðurinn ber ábyrgð á skuldbindingum hans. Lífeyrissjóðakerfi opinberra starfsmanna hafði hins vegar verið byggt á gegnumstreymissjóðum og skuldbindingar þeirra eru á ábyrgð ríkisins en ekki sjóðanna. Iðgjöldin í opinberu sjóðina voru ekki greidd samtímis nema að hluta til, en ríkið skuldbindur sig til að tryggja sjóðsfélögum lífeyri þegar þeir þurfa á honum að halda. Vandi LH liggur í að sjóðurinn hefur einungis að hluta til verið byggður upp á sjóðsöfnun. Áætlanir liggja ekki fyrir í fjárlögum stjórnvalda um hvernig skuli mæta þessum vanda. Stjórn og stjórnendur hjá LSR og LH hafa ítrekað komið á framfæri raunhæfum tillögum þess efnis hvernig hefja megi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.