Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Síða 11
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 2012 7
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
SAMSTAÐA HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Á LANDSPÍTALA
Nú eru 18 mánuðir síðan miðlægur kjarasamningur
við ríkið var undirritaður. Vinna við endurskoðun
stofnana samninga á Landspítala hefur þó gengið illa
þar sem ekkert fjármagn fylgdi til gerðar stofnana
samninga í síðustu miðlægu kjarasamningum.
Hjúkrunarfræðingar hafa í ofanálag mátt þola launa
lækkanir og aukið álag vegna sparnaðar. Þegar
einn maður fékk launahækkun, þar sem hann
var talinn spara öðrum fremur, sauð upp úr hjá
hjúkrunarfræðingum á Landspítala.
Forystumenn Félags íslenskra hjúkrunar
fræðinga funduðu með hjúkrunar
fræðingum á Landspítala 11. og
13. september sl. Á fundunum kom
fram mikil óánægja með launakjör
hjúkrunarfræðinga, með starfsþróunar
kerfið á Landspítala og með hversu lengi
hefur dregist að endurskoða stofnana
samningana. Í framhaldinu tóku um
fjörtíu hjúkrunarfræðingar sig saman og
mynduðu aðgerðarhóp til þess að styðja
við samstarfsnefndina á Landspítala.
Aðgerðarhópurinn kallaði nokkrum
dögum seinna til samstöðufundar fyrir
utan Eiríksstaði, skrifstofu Landspítalans,
þar sem fulltrúar Landspítalans og
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
funduðu um stofnanasamninginn.
Aðgerðarhópurinn hafði samið kröfulista
sem fundarmenn fengu afhentan. Mörg
hundruð hjúkrunarfræðingar mættu til
þess að fylgja kröfunum eftir. Leikurinn
endurtók sig á næsta samningafundi. Um
þrjú hundruð hjúkrunarfræðingar mættu
með skömmum fyrirvara þrátt fyrir að
Landspítalamenn hefðu skyndilega breytt
fundarstaðnum.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
mætti svo í matsal á Landspítala Hring
braut 11. október og tók á móti á móti
undirskriftalistum frá aðgerðarhópnum.
Um 950 hjúkrunarfræðingar skora þar á
ráðherrann að beita sér fyrir því að veita
fjármagn í stofnanasamningana. Fjölmargir
hjúkrunarfræðingar afhentu einnig ráðherra
launaseðla sína máli sínu til stuðnings.
Hátt í fjögur hundruð hjúkrunarfræðingar
höfðu komið saman í matsalnum til þess
að taka á móti ráðherranum. Þungt hljóð
var í hjúkrunarfræðingunum og ávarpaði
talsmaður aðgerðarhóps ráðherrann og
hvatti hann til að tryggja Landspítala
fé svo að hægt verði að ganga frá
stofnanasamningnum. Guðbjartur notaði
tækifærið til að fjalla um kynbundinn
launamun og löngun sína til að leiðrétta
hann.
Lesa má meira um laun hjúkrunar
fræðinga og kynbundinn launamun í
formannspistlinum á bls. 3 hér í blaðinu.
Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að stofna
til samráðs við stéttarfélög um málið
en Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
var reyndar ekki boðin aðild að sam
ráðinu. Áhugavert verður að fylgjast
með árangrinum af samstöðu hjúkrunar
fræðinga og fyrirætlunum ríkisstjórnar.
Um 300 hjúkrunarfræðingar á Landspítala komu
saman fyrir framan Eiríksstaði 18. september.
Fundur á Hringbraut 13. september sl.