Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Page 12
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 20128
NORRÆN ÖLDRUNARRÁÐSTEFNA
Í KAUPMANNAHÖFN
Sigríður Sigurðardóttir, sigridur.sigurdardottir@morkin.is
Rúmlega 600 þátttakendur mættu á 21. norrænu öldrunarráðstefnuna í Kaup
manna höfn dagana 10. 13. júní 2012. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Dilemmas
in Ageing Societies“. Stjórn fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga notaði
tækifærið og fundaði með stjórnum fagdeilda öldrunar hjúkrunar fræðinga
frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Árið 2014 verður svo ráðstefnan haldin í
Gautaborg í Svíþjóð.
Ráðstefna þessi er þverfagleg og heitir á
ensku „Nordic Congress of Gerontology“
og er haldin á tveggja ára fresti.
Þátttakendur voru frá 36 þjóðlöndum
en langflestir þátttakendanna voru frá
Norðurlöndunum. Af þeim hópi voru
Danir fjölmennastir en Svíar og Norðmenn
fylgdu fast á hæla þeirra. Íslensku
þátttakendurnir voru 35 talsins en á óvart
kom að þó nokkrir þátttakendur voru
komnir mjög langt að eða frá löndum
eins og Japan og Taiwan. Yfirskrift
ráðstefnunnar var „Dilemmas in Ageing
Societies“. Megininntak ráðstefnunnar
að þessu sinni var að aldraðir og öldrun
væru spennandi viðfangsefni sem hægt
væri að nálgast frá mörgum ólíkum
sjónarhornum. Ráðstefna sem þessi
gefur gott yfirlit yfir rannsóknir í öldrun
og þróunina innan öldrunarfræða og
í öldrunarhjúkrun. Fyrirlestrarnir voru
ýmist á sviði hjúkrunarfræði, læknisfræði,
sjúkraþjálfunar, sálfræði, líffræði eða
félagsþjónustunnar. Hægt var að
velja úr tæplega hundrað fyrirlestrum
þá þrjá daga sem ráðstefnan stóð og
voru fyrirlesarar frá öllum greinum innan
heilbrigðisþjónustu við aldraða.
Stjórn fagdeildar öldrunarhjúkrunar
fræðinga hefur undanfarin ár átt í ágætum
tengslum við stjórnir dönsku, sænsku og
norsku fagdeildanna. Því var ákveðið
að nota tækifærið og boða til fundar
með norrænu stjórnunum. Þar sem
ráðstefnan var í þetta sinn í Danmörku
Á myndinni eru frá vinstri Cecile Olsen, Dora Fog, Helle Wijk, Birgit Gron, Elizabeth Rosted, Irmgaard
Birkegaard, Sigríður Sigurðardóttir og Ingibjörg Þórisdóttir.
tók stjórn dönsku fagdeildarinnar að sér
að skipuleggja og boða til fundar. Eins
og svo oft áður gekk erfiðlega að finna
tíma sem öllum hentaði. Á endanum varð
það úr að stjórnarmenn slepptu móttöku
sem borgarstjóri Kaupmannahafnar bauð
ráðstefnugestum í en fóru í staðinn í
kvöldverð á veitingastað í boði dönsku
fagdeildarinnar.
Ingibjörg Þórisdóttir, formaður fagdeildar
öldrunarhjúkrunarfræðinga, og Sigríður
Sigurðardóttir, gjaldkeri fagdeildarinnar,
voru fulltrúar Íslands. Frá deild sænskra
öldrunarhjúkrunarfræðinga kom Helle
Wijk formaður sænsku fagdeildarinnar.
Frá Danmörku komu Dora Fog formaður,
Pia Pedersen, Irmgard Birkegaard, Birgit
Gron gjaldkeri og Elizabeth Rosted,