Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Qupperneq 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Qupperneq 15
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 2012 11 síður á nauðsyn þess að breyta áherslum í heilbrigðisþjónustunni þannig að hún taki mið af þörfum langveikra. Þess má nú sjá stað að íslenskir heilbrigðisstarfsmenn velti fyrir sér hvar skórinn kreppir að í þjónustu við langveika. Bent hefur verið á að vöntun sé á heildrænni meðferð, yfirsýn og samfellu, að það sé skortur á upplýsingaflæði og samskiptum á milli heilbrigðisstarfsmanna, meðferð byggist fremur á þörfum starfsfólks og kerfis en sjúklinga, þátttaka sjúklinga í meðferð sé ónóg, heimaþjónusta sé ófullnægjandi og að stjórnleysi og agaleysi starfsfólks ríki (Sigurður Guðmundsson og Runólfur Pálsson, 2006). Þessa gagnrýni, sem tekur til margra meginstoða íslensks heilbrigðis kerfis, er nauðsynlegt að taka alvarlega. Í þessari grein er fjallað um sjálfsumönnun og sjálfsumönnunarmeðferð með áherslu á fólk með langvinna lungnateppu. Lagt er til að endurskoða ríkjandi aðferðir og tileinka sér í þeirra stað þekkingu og gildismat um samráð við einstaklinga og fjölskyldur. Sjálfsumönnun og sjálfs umönn- unar meðferð fyrir fólk með langvinna lungnateppu Sjálfsumönnun hefur skírskotun til tveggja hugtaka í enskri tungu sem eru notuð jöfnum höndum. Annars vegar er um að ræða self­care sem vísar til athafna einstaklinga, fjölskyldna og samfélaga sem hafa þann tilgang að vernda og efla heilbrigði og fyrirbyggja sjúkdóma. Athafnirnar eru jafnan hluti af daglegu lífi. Þær eru sammannlegar og þurfa heilbrigðisstarfsmenn ekki að tengjast þeim, þó svo geti einnig verið (Rijken o.fl., 2008). Hins vegar er um að ræða hugtakið self­management en það vísar til athafna sem hafa það að markmiði að lágmarka áhrif langvinns sjúkdóms (vanalega eins tiltekins sjúkdóms), ásamt því að meðhöndla sjúkdóminn sjálfann og lágmarka afleiðingar hans. Sjúklingar framkvæma athafnir sem heilbrigðisstarfsfólk hefur lagt til eða fyrirskipað. Gert er ráð fyrir að sjúklingar öðlist færni í að meðhöndla sjúkdóm og séu virkir og viljugir að nýta sér stuðning heilbrigðisstarfsmanna (Rijken o.fl., 2008). Rætur hugtaksins sjálfsumönnun liggja í samfélagslegum umbótastefnum sem áttu sér stað víðs vegar um hinn vestræna heim um miðbik síðustu aldar. Mannréttinda hreyfingar sem þá spruttu upp börðust fyrir auknum sjálfs­ ákvörðunar rétti einstaklinga á ýmsum sviðum, ekki síst yfir eigin lífi og líkama og jafnræði í samskiptum við heilbrigðis­ starfsmenn. Gagnrýni á nútíma læknis­ þjónustu var frjó. Samhliða jókst þekking á því hvernig varðveita má og efla heil­ brigði og vellíðan (Levin, Katz og Holst, 1976; Segall og Goldstein, 1989). Síðar, og frá ólíku sjónarhorni, tók hugsunin um sjálfsumönnun að breytast og athyglin beindist að því hvernig hægt væri að láta fólk (sjúklinga eða skjólstæðinga) axla meiri ábyrgð á eigin heilbrigði, sérstaklega í tengslum við meðhöndlun langvinnra sjúkdóma (e. self-management). Til þessa hafa ýmsar sjálfsumönnunarmeðferðir verið þróaðar og hefur sjúklingafræðsla verið einn meginþátta þessara meðferða (Bourbeau, 2003; Bourbeau o.fl., 2003; Lorig og Holman, 2003; Lorig o.fl., 2001), sjá fyrri hluta töflu 1. Fleiri þætti má nefna, svo sem jafningjastuðning, hvatningarviðtöl, lausn vandamála, markmiðasetningu, aðgerðaáætlanir og styrkingu aðlögunar (Rijken, o.fl. 2008). Frá þessu sjónarhorni eru þarfir fólks skilgreindar óháð persónubundnum gildum og einkennum; þær eru gerðar að vandamálum og leiða leitað til að ákveða hvernig vandamálin skuli leyst með lágmarksaðkomu heilbrigðiskerfisins og minnstum mögulegum kostnaði. Fólki er jafnvel úthlutað áætlunum um hvernig því beri að haga sjálfsumönnun sinni (Coulter og Ellins, 2009). Í nýlegri sjálfshjálparbók lofuðu Lorig og félagar (2006) fólki heilbrigðu lífi ef það hegðaði sér „rétt“: „Kjósir þú að vera jákvæður „sjálfsumannari“ (e. self-manager) og undirgangast alla þá bestu meðferð sem heilbrigðisstarfsmenn hafa yfir að ráða, auk þess að vera forsjáll í daglegu líferni, munt þú lifa heilbrigðu lífi,“ (bls. 1). Þannig má merkja að upprunalegar hugmyndir um sjálfsumönnun snérust í andhverfu sína. Áherslur beindust að staðlaðri meðhöndlun á sjúkdómi og afleiðingum hans þar sem persónu­ bundin reynsla, birtingarmynd einkenna, aðstæður, væntingar, venjur og viðhorf fólks voru hunsuð (Koch, Jenkin og Kralik, 2004; Kralik, Koch, Price og Howard, 2004; Lawn, McMillian og Pulvirenti, 2011; Thorne, 2008). Félags­ legar og efnahagslegar aðstæður fólks, aldur þess og flækjustig heilsufars­ vandamálanna hafa orðið að aukaatriðum og heilsufarsvandi fólks þess í stað persónugerður (Wilkinson og Whitehead, 2009). Auk þessa getur ábyrgð á eigin umönnun reynst fólki ofviða og leitt til þess að því finnist það yfirgefið (Kielmann o.fl., 2010). Bent hefur verið á að hætta sé á því að forskrifaðar áherslur um sjálfsumönnun leiði af sér tilteknar hugmyndir um hvernig fólk eigi að lifa lífinu sem geti gert það að verkum að fólk verði fráhverft heilbrigðisþjónustunni, einkum þeir sem búa við flókinn heilsufarsvanda (Lawn o.fl., 2011). Fjölskyldan hefur sjaldan verið þátttakandi í rannsóknum á sjálfsumönnunarmeðferð. Þó hafa tveir hugtakarammar byggðir á fræðilegum heimildum verið þróaðir fyrir rannsóknir á hjúkrun fjölskyldna með langvinnan heilsufarsvanda (e. self and family management frameworks). Annars vegar er hugtakarammi sem fjallar um áhættuþætti og verndandi þætti sem hafa áhrif á getu fjölskyldna til að halda langvinnum sjúkdómi í skefjum og sem hjúkrunarmeðferð ætti að beina athyglinni að (Grey, Knafl og McCorkle, 2006). Hins vegar er hugtakarammi sem tekur til sjálfsumönnunarferlis einstaklings og fjölskyldu (Ryan og Sawin, 2009). Gagnsemi sjálfsumönnunarmeðferðar er víða staðfest í rannsóknum (Warsi o.fl., 2004), þó yfirleitt einungis á hluta þeirra breyta sem mældar eru í hverri rannsókn fyrir sig (Rijken o.fl. 2008). Árangurinn er einkum mældur með notkun og kostnaði á heilbrigðisþjónustu ásamt klínískum og líffræðilegum gildum (svo sem blóðsykursgildi og alvarleika sjúkdóms). Menn hafa einnig athugað vitræna þætti (svo sem þekkingu á sjúkdómi og meðferð, sjúklingaánægju), andlegri líðan, starfræna þætti (svo sem getu til daglegra athafna, fjarveru frá vinnu, versnanir og verkjum) (Coster og Norman, 2009) og lífsgæði. Rannsóknir á meðferð sem þróuð hefur verið fyrir fólk með astma og sykursýki hafa leitt í ljós ávinning og vísbendingar

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.