Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Page 27
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 2012 23
Minningarsjóður
Hans Adolfs Hjartarsonar
auglýsir eftir umsóknum um styrki
Umsóknum skal skila á þar til gerðu
umsóknareyðublaði á netfangið
hansadolf@hjukrun.is
Nánari upplýsingar: www.hjukrun.is
Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar
framkvæmdastjóra var stofnaður í mars 1951
af ættingjum hans og bekkjarsystkinum, en
Hans lést í janúar 1951.
Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja
hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi og
verður að þessu sinni veitt úr sjóðnum allt að
600 þúsund krónur.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2012
Minningarsjóður
Kristínar Thoroddsen
auglýsir eftir umsóknum um styrki
Umsóknum skal skila á þar til gerðu
umsóknareyðublaði á netfangið
kristinthoroddsen@hjukrun.is
Nánari upplýsingar: www.hjukrun.is
Kristín Ólína Thoroddsen var forstöðu-
kona Landspítalans og Hjúkrunarkvenna-
skóla Íslands frá stofnun hans 1931 til
ársins 1949. Fyrrum nemendur skólans og
aðrir hjúkrunarfræðingar gengust fyrir
stofnun þessa minningarsjóðs við andlát
Kristínar í þakklætis- og virðingarskyni fyrir
brautryðjendastörf hennar.
Sjóðurinn veitir styrki til framhaldsnáms í
hjúkrun og verður að þessu sinni veitt úr
sjóðnum allt að 200 þúsund krónur.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2012
Rannsókna- og vísindasjóður
hjúkrunarfræðinga
auglýsir eftir umsóknum um styrki
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á
þar til gerðu umsóknareyðublaði á netfangið
rannsoknaogvisindasjodur@hjukrun.is
Nánari upplýsingar: www.hjukrun.is
Sjóðurinn var stofnaður 12. maí 1987 af
Maríu Finnsdóttur, fræðslustjóra Hjúkrunar-
félags Íslands. Tilgangur sjóðsins er að
styrkja hjúkrunarfræðinga til rannsókna- og
vísindastarfa í hjúkrunarfræðum hér á landi.
Styrkveiting miðast við stuðning á öllum
stigum rannsókna. Að þessu sinni verður
veitt allt að 600 þúsund krónum úr sjóðnum.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2012
Teikning af herbergjaskipan. Menn kunnu að teikna í þrívídd áður en tölvurnar komu til sögunnar.
Einungis örfá rými á hæðinni eru óbreytt síðan 1987.
Vorið 1986 samþykkti félagsráð að festa
kaup á Suðurlandsbraut 22. Kaupin
voru fjármögnuð með lánum frá Lífeyris
sjóði hjúkrunarkvenna og framlögum úr
félagssjóði. Að auki var efnt til fjár
söfnunar meðal félagsmanna. Formaður
fjáröflunarnefndar var Sigurður Helgi
Guðmundsson og skrifaði hann alloft um
stöðu mála í Hjúkrun, tímarit Hjúkrunar
félagsins. Samtals voru fjórir gíróseðlar
sendar út til félagsmanna og voru
viðtökur misjafnar. Gert var ráð fyrir að
hver félagsmaður greiddi 2.000 kr. en á
síðasta gíróseðlinum var upphæðin höfð
valfrjáls. Þeir sem ekki höfðu greitt gátu
þá bætt úr því. Hæðin í Þinghólsstræti
var svo seld og kaupverðið notað í að
innrétta Suðurlandsbrautina.
Það ber að nefna að á þeim tíma voru tvö
hjúkrunarfélög á Íslandi. Nokkrum árum eftir kaupin á Suðurlandsbraut 22 komust
samningarviðræður loksins á skrið. Við
sameiningu félaganna 1994 fengu félagar í
Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
full afnot af húsnæðinu en félag þeirra átti
ekkert húsnæði enda ungt og fátækt.
Á þeim 25 árum sem skrifstofa félagsins
hefur verið á Suðurlandsbraut hefur margt
gerst í hjúkrun. Félögum hefur fjölgað
talsvert. Á síðustu árum hafa einnig
verkefni starfsmanna á skrifstofunni breyst
og þeim fjölgað talsvert. Eftir sameiningu
félaganna 1994 voru starfsmenn sjö en
eru nú tíu, þar af tveir í litlu starfshlutfalli.
Eftir að félagið gekk úr BHM fluttist
umsjón með styrktar og sjúkrasjóði til
félagsins. Starfsemi starfsmenntunarsjóðs
og olofssjóðs hefur einnig aukist og er
styrktar eða orlofsumsókn eitt algengasta
erindi félagsmanns við skrifstofuna.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga ætlar
að halda upp á áfangann með opnu
húsi 19. nóvember nk. Á hálftíma fresti
verða í boði örfyrirlestrar um ýmis mál og
starfsmenn munu sýna húsnæðið. Einnig
verða veitingar og aðrar skemmtanir.Margir mættu á fundi í júní 1994 þegar kjara
samningar voru kynntir.