Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Qupperneq 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2012, Qupperneq 39
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 88. árg. 2012 35 Lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga fluttust nýlega að Engjateigi 11, ekki langt frá skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. auknar inngreiðslur til lífeyrissjóðanna með mismunandi leiðum, til að koma í veg fyrir að sjóðirnir tæmist á næstu áratugum. Til að átta sig á um hvað vandi opinberu lífeyrissjóðanna snýst er mikilvægt að þekkja hverjir eiga aðild að sjóðunum og hver núverandi staða lífeyrissjóðanna er. Núverandi staða A deildar LSR og LH Hjúkrunarfræðingar greiða ýmist iðgjald til A­deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) eða í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga (LH). Í ársbyrjun 1997 var LH lokað fyrir nýjum sjóðfélögum og frá sama tíma hafa allir nýráðnir hjúkrunarfræðingar greitt iðgjald til LSR. Hjúkrunarfræðingar sem greiddu í LH fyrir 1997, og eru á föstum mánaðarlaunum við hjúkrunarstörf hjá opinberum stofnunum eða heilbrigðisstofnunum, mega enn greiða til LH hafi þeir ekki valið á sínum tíma að skipta yfir í A­deild LSR. Nú er svo komið að u.þ.b. 80% starfandi hjúkrunar fræðinga greiða iðgjald af launum sínum til A­deildar LSR. Fjöldi hjúkrunarfræðinga á hins vegar mikilvæg réttindi í LH. Á árinu 2011 greiddu 513 sjóðfélagar iðgjald til LH. Jafnframt átti 1.771 einstaklingur geymd réttindi hjá sjóðnum, en með því er átt við að þeir eigi réttindi hjá lífeyrissjóðnum en greiði ekki lengur til hans. Þá fengu 848 einstaklingar lífeyrisgreiðslur á liðnu ári. Hjúkrunarfræðingar sem greiða í LSR, A deild og LH njóta ríkisábyrgðar á lífeyrisréttindunum, sem skilgreind eru í lögum. Ef iðgjöldin duga ekki fyrir réttindum borgar ríkið mismuninn í stað þess að réttindin skerðist eins og á almenna markaðnum. Við lokun LH fyrir nýjum sjóðfélögum varð ljóst að gera þurfti ráðstafanir til að eignir sjóðsins yrðu ekki uppurnar löngu áður en skuldbindingar við lífeyrisþega framtíðarinnar kæmu til greiðslu. Því hóf ríkið á árinu 1999 að greiða fjárhæðir umfram lagaskyldu til að standa undir framtíðarskuldbindingu sjóðsins. Í kjölfar hrunsins 2008 féllu þessar greiðslur niður. Verði ekkert að gert munu eignir sjóðsins tæmast eftir u.þ.b. 15 ár. Heildarstaða LH var neikvæð um 44 milljarða króna í árslok 2011. Skuldir A­deildar LSR umfram skuldbindingar á árinu 2011 voru 13,1% samkvæmt mati á tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins. Ábyrgð stjórna LSR og LH Stjórnir LSR og LH eru þannig samsettar að helmingur stjórnarfólks eru fulltrúar sjóðsfélaga og helmingurinn er skipaður af fulltrúum fjármálaráðherra. Stefnumótun, eftirlit og framkvæmd fjárfestinga LSR og LH er í höndum stjórnanna, framkvæmda­ stjóra og annarra stjórnenda sjóðanna. Við núverandi aðstæður er það einnig skylda stjórna sjóðanna að benda á með hvaða hætti skuli bregðast við vanda vegna skuldbindinga sjóðanna. Stjórn LH hefur lagt áherslu á að gerð verði áætlun um hvernig standa skuli við skuldbindingar sjóðsins, af hálfu launagreiðenda, fyrir lífeyrisþega framtíðarinnar. Fulltrúar sjóðfélaga í stjórnum LSR og LH hafa ítrekað bent á nauðsyn þess að ríkissjóður byrji aftur að greiða árlega til LH með sambærilegum hætti og gert var fram til 2008. Þessar greiðslur megi takmarka til að byrja með í ljósi erfiðrar stöðu ríkissjóðs en auka stig af stigi á næstu árum. Þá hafa fulltrúar sjóðfélaga í stjórn LSR bent á nauðsyn þess að hækka iðgjald launagreiðenda til A­deildar sjóðsins. Ábyrgð sjóðsfélaga Mikill meirihluti hjúkrunarfræðinga á Íslandi á ríkistryggð lífeyrisréttindi í A­deild LSR og LH. Mikilvægt er fyrir sjóðsfélaga að kynna sér vel og þekkja aðild sína að sjóðunum og áunnin lífeyrisréttindi. Allar slíkar upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu LSR og LH, auk upplýsinga um áunnin réttindi sem sjóðsfélagar fá reglulega sendar frá lífeyrissjóðunum. Auk þess er auðsótt að fá upplýsingar hjá starfsfólki á skrifstofu lífeyrissjóðanna. Ársfundir LSR og LH eru einnig kjörinn vetvangur til að kynna sér rekstur og stöðu sjóðanna. Á síðasta ársfund mættu 45 manns. Árlega eru haldnir kynningar­ og samráðsfundir með lífeyrisþegum og hafa þeir mælst vel fyrir og hafa verið vel sóttir. Ríkistryggð lífeyrisréttindi hjúkrunar­ fræðinga eru áunnin réttindi og við þeim verður ekki hróflað nema með umfangsmiklum breytingum á vinnu­ lög gjöfinni og umbótum í launa­ og kjaramálum. Ég vil hvetja alla hjúkrunar­ fræðinga til að standa vörð um lífeyris­ réttindi sín og standa vaktina saman í kjarabaráttu með samstöðu og stéttvísi að leiðarljósi. Herdís Gunnarsdóttir, MSc, MBA, situr í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og er formaður stjórnar Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.