Þjóðmál - 01.03.2011, Page 43
Þjóðmál VOR 2011 41
Með þessu mætti gera ráð fyrir að
bensínlítrinn væri í kringum 180 krónurnar
en þess ber að geta að ákveðin óvissa hvílir
yfir breytingum á álagningu olíufélaganna
við lægra vörugjald þar sem eftirspurn
myndi aukast til muna .
Áfengisgjald hefur hækkað um tæp
50% frá árinu 2007 og samhliða var
virðisaukaskattur hækkaður en nú er svo
komið að heildarskattur af ódýrum vodka er
um 77–80% þegar allt er tekið saman . Við
þessu bregðast menn og þá sér í lagi ungt fólk
með því að kaupa skattfrjálsan landa á svarta
markaðnum þar sem gæðaeftirlit er ekkert .
Tóbaksgjald hefur hækkað um 52% frá
2007 og þannig hefur vinstri stjórnin lagt
verulega auknar byrðar á tekjulág heimili
þar sem fyrirvinnan, og í mörgum tilvikum
einnig maki, er reykingamaður . Ekki er hægt
að ætlast til að fólk hætti að reykja enda getur
slíkt ferli kostað mikil líkamleg óþægindi og
menn misjafnlega í stakk búnir að stíga það
skref .
Þá er harkalega vegið að hálauna og stór
eigna fólki . Fyrst ber að geta inn leiðingu
þrepa skipts tekjuskattskerfis þar sem launa
maður inn heldur eftir einni af hverjum
tveimur krónum sem hann vinnur sér inn
fyrir það eitt að vera með há laun . Stóreigna
skattur er annað dæmi en hugmyndin er sótt
til miðalda, til þess tíma áður en menn upp
götv uðu skilvirk hagstjórnartæki en 1,5%
af eignum yfir 90–120 milljónum verða nú
gerð upptæk af ríkinu, hvort sem eignin er
peningaleg eða ekki . Skatturinn getur þannig
orðið gífurlega íþyngjandi fyrir marga, eink
um og sér í lagi eldra fólk, sem áður fyrr
hafði háar tekjur en á nú einungis eign í
formi steinsteypu . Ungt fólk, sem erfir jarðir,
getur líka lent í vandræðum þegar það situr
uppi með 200 milljóna króna tún án þess að
hafa sérlega háar tekjur til að standa straum
af þriggja milljóna króna eingreiðslu árlega
vegna þessa .
Steininn tók þó úr þegar ríkisstjórnin
ákvað að hækka skatt á atvinnustarfsemi
úr 5,34% í 8,65% eða um tæp 62% . Fyrir
tæki greiða árlega milljarða króna í trygg
ingagjald, en tilgangur þess er að standa
straum af greiðslu atvinnuleysisbóta .
Engum virðist hafa dottið í hug að skoða
hversu marga starfsmenn fyrirtæki gætu
ráðið fyrir þær upphæðir sem greiddar eru í
trygg ingagjald og hversu mjög myndi fækka
við það á atvinnuleysisskrá .
Einn ógeðfelldasti skatturinn af þeim sem
ríkið býður okkur upp á í dag er skattur á
dánarbú eða erfðafjárskattur sem hækkaður
var úr 5% í 10% um áramótin . Skattar hafa
áhrif á hegðan fólks og raunar fer að koma að
því að einstaklingar velti fyrir sér hvort þeir
hafi efni á því að deyja . Í auknum mæli er
fólk nú farið að fyrirframgreiða arð eða koma
eignum undan með einum eða öðrum hætti
í kapphlaupi við tímann þegar það ætti með
réttu að njóta áhyggjulauss ævikvölds .
Erfðafjárskatturinn er eins konar náðarhögg
sem ríkið veitir landsmönnum en alla ævina
hafa tekjur fólks verið margskattlagðar .
Tæplega helmingur fer í tekjuskatt, 20% af
allri neyslu í virðisaukaskatt og eru vörugjöld
þá ótalin og ef svo vill til að eitthvað er
Gjaldtaka nú Gjaldtaka áður Tillaga
Vörugjald 23,86 22,94 7,95
Bensíngjald 38,55 37,07 12,85
Vsk . 45,92 43,53 33,93
Kolefnisgjald 3,80 0,00 0,00
Raunverð 113,87 113,87 113,87
Dæluverð 226,00 226,48 180,62