Þjóðmál - 01.03.2011, Síða 61
Þjóðmál VOR 2011 59
að Rand ræddi ýmis þjóðfélagsmein sem
hafa orðið áberandi, til dæmis almenna
hjarð hegðun og þjóðnýtingu á tapi einka
fyrir tækja .
Ayn Rand var ósátt við umfjöllun um
bæk ur sínar, þó að þær hafi selst vel . Eftir út
komu Undirstöðunnar hætti hún að fást við
skáldskap og hóf að verja þær hugmyndir
sem bækurnar endurspegla . Hún skrifaði
fjöl margar ritgerðir og greinar þar sem
heim spekin var útskýrð og rökstudd . Heim
spekina kallaði hún „Objektivisma“ eða
„Hlut hyggju“ (e . Objectivism) . Hluthyggja
Rands er heimspekikerfi sem nær til allra
meg in greina heimspekinnar: frumspeki,
þekk ingarfræði, siðfræði, stjórnspeki og
fagur fræði .1 Rand segir að Hluthyggjan sé
heim speki fyrir líf mannsins á jörðinni . Hún
gagnrýnir önnur heimspekikerfi, þar á meðal
1 Heimspekileg skrif Rands voru gefin út í bókum á borð
við Philosophy: Who Needs It, The Voice of Reason, The
Virtue of Selfishness, Capitalism: The Unknown Ideal og The
Romantic Manifesto.
öll stóru trúarbrögðin, fyrir að svíkja jarðlífið
með veruleikaflótta, handanheimatali, tóm
hyggju, efahyggju og fleiru .
Það sjónarmið heyrist að slík heim speki
iðkun sé lítils verð og í raun argasta tíma sóun .
Sannleikurinn er hins vegar sá, að fólk kemst
ekki hjá því að aðhyllast einhverja heim
speki, það er að segja, það kemst ekki hjá
því að hafa einhverja heimsmynd eða heims
sýn; það sem kallað er „Weltanschauung“
í hinum þýsku mælandi heimi og „world
view“ af enskumælandi fólki . Valið er ekki
um hvort fólk hafi heimsmynd heldur
hvernig heimsmynd þess er . Spurningin er
hvort heimsmyndin sé meðvituð, skýr og
rökrétt – og þannig gagnleg og lífvænleg
– eða hvort hún sé ómeðvituð, handahófs
kennd eða mótsagnakennd – og þannig
slæm, jafn vel banvæn .
Í frumspeki er Ayn Rand raunsæiskona,
það er að segja, hún telur efnisheiminn
vera til óháð skynjun okkar á honum . Þessi
afstaða kann að hljóma sjálfsögð, en skilja
verður samhengið: hún er að hafna hug
hyggju, þar sem heimurinn er álitinn hug
lægur (hugsmíð okkar) en ekki hlutlægur
(verufræðilega óháður okkur) . Gott dæmi
um hughyggju í nútíma dægurmenningu
er bókin The Secret, sem fór sigurför um
heiminn fyrir nokkrum árum .
En Rand hafnar ekki aðeins hughyggju
heldur einnig hvers kyns yfirnáttúrulegum
fyrirbærum eða dulrænum útskýringum .
Hún var einn harðasti gagnrýnandi trúar
bragða á 20 . öld; taldi þau vera eyðileggj andi
afl og mestu bölvun mannkynsins . Margir
að dáenda Rands eru þó trúaðir, en nálg ast
gjarnan trú sína með öðrum hætti eftir að
hafa tileinkað sér hugmyndir hennar .
Þekkingarfræðilega leggur Ayn Rand
mikla áherslu á skynsemi (e . reason), sem
hún skilgreinir sem þann hluta hug ar starf
sem innar sem tengir og samþættir hluti
sem skynfæri okkar greina, en samkvæmt
Ayan Rand við upphaf rithöfundaferils síns .