Þjóðmál - 01.03.2011, Síða 64

Þjóðmál - 01.03.2011, Síða 64
62 Þjóðmál VOR 2011 skilur af hvaða rótum heimspeki Rands er runnin . Hluthyggjan tekur af drátt ar lausa afstöðu með lífinu, krafti þess og fram­ tíð . Ayn Rand lést árið 1982, en hugmyndir hennar lifa áfram . Hún á sér fylgismenn úti um allan heim, en þó einkum í Banda­ ríkjunum . Fólk á öllum aldri hefur kunnað að meta skáldsögur hennar og lært mikið af þeim, þrátt fyrir að vera ekki endilega sammála skoðunum hennar á stjórnmálum eða trúmálum . Meðal frægra aðdáenda Rands eru Clarence Thomas, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna; Jimmy Wales, stofnandi Wikipediu; leikkonan Angelina Jolie, sem hugleiddi á tímabili að taka að sér aðalhlutverk í kvikmyndagerð Undirstöðunnar; og hinn vinsæli bandaríski þingmaður Ron Paul, sem telur Rand til sinna helstu áhrifavalda .4 Aðeins ein bók eftir Ayn Rand hefur verið gefin út á íslensku: Uppruninn (þýdd hér sem Uppsprettan), sem kom út í þýðingu Þorsteins Siglaugssonar árið 1990 . Þýðingin er löngu uppseld og illfáanleg, en til stendur að endurútgefa bókina á þessu ári . Vonandi er þess ekki langt að bíða að Undirstaðan og aðrar bækur Rands komi einnig út á íslensku . En fyrstu skrifin, sem birtust eftir Rand á íslensku, er sennilega að finna í Morg- unblaðinu 23 . febrúar 1944, þegar grein hennar, „Einstaklingshyggjan er stefna framtíðarinnar“ var birt í blaðinu . Greinin byrjar á áminningarorðum um mikilvægi þess að þekkja andstæðinginn: Mannkyninu og menningunni stendur nú 4 Ron Paul er þó ekki sammála Ayn Rand um alla hluti . Þau greinir einkum á um tvennt . Annars vegar var Rand nokkuð herská í utanríkismálum, en Paul er eindreginn friðarsinni; og hins vegar aðhyllist Paul, öfugt við Rand, kristnar hugmyndir um Guð, náungakærleika, ölmusu o .fl ., þó að hann sé reyndar enginn ofstækismaður í trúmálum . mest hætta af útbreiðslu einræðis kenning­ anna . Besti bandamaður þessara kenninga er ekki trygð fylgismannanna, heldur ráð­ leysis fálm andstæðinga þeirra . Til þess að geta barist gegn þessari stefnu verðum vjer að þekkja hana . Greininni lýkur síðan með orðum sem eiga jafn vel við um þessar mundir og á loka­ mánuðum seinni heimsstyrjaldarinnar: Meðan menn eru enn að þjarka um orsak­ ir þróunar og afturfarar menningarinnar, þá hrópar hver einasta síða mannkynssög unnar til vor, að það sje ekki til nema ein upp spretta framfaranna: óháður einstakling ur við sjálf­ stætt starf . Sameignarstefn an er hið forna skipu lag villimannanna . Ættarhöfðingjarnir ráða yfir lífi og limum villimannsins . Sið­ menningin er í því fólgin að frelsa manninn frá mönnunum . Vjer eigum nú um tvent [sic] að velja: Götuna fram á leið eða götuna aftur á bak . Sameignarstefnan er ekki „nýskipan fram­ tíðar innar“ . Það er skipulag myrkrar fortíðar . En það er til nýskipan framtíðarinnar . Það er nýskipan hins sjálfstæða manns – hins eina skapara framtíðar mannkynsins á öllum tímum .5 Til að slík hugsjón um einstaklingshyggju rætist þarf, eins og Ron Paul bendir á, byltingu hugarfarsins . Í slíkri byltingu verða þó ekki þinghús umkringd eða and stæðingar hengdir, heldur rang hug­ myndir hraktar og andleysi læknað . Kjarni hugmynda baráttunnar fer fram á vígvelli hugvísinda og lista . Á þeim vígvelli er Ayn Rand öflugur herforingi . Heimspeki hennar er grundvöllur nýrrar róttækni . 5 Orðréttur texti úr Morgunblaðinu 23 . febrúar 1944, bls . 7 . – Þess má einnig geta að We the Living birtist undir nafninu Kíra Argúnova sem framhaldssaga í Morgunblaðinu árið 1949, og að leikritið Aðfararnótt sautjánda janúar hefur verið leikið í útvarpi í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.