Þjóðmál - 01.03.2011, Page 80
78 Þjóðmál VOR 2011
(AGS) . Ríkisstjórnir Samfylkingar og Vinstri
hreyfingarinnargræns framboðs hafa hins
vegar leikið afleitan varnarleik og aldrei farið
í sókn . Tímanum frá 1 . febrúar 2009 hefur
þess vegna verið sóað til einskis í Stjórnarráði
Íslands undir forystu þjóðfélagsafla, sem
löngum hafa staðsett sig vinstra megin við
miðju stjórnmálanna . Reyndust þau alls ófær
um að taka til hendinni, þegar til kast anna
kom . Að sóa ríkisfé í gæluverkefni er hins
vegar þeirra ær og kýr . Það kemur í ljós, að í
sporum þeirra grær ekkert . Af þessum sökum
er bráðnauðsynlegt, að borgara leg öfl taki sig
saman í andlitinu og hefji skipulega viðreisn
þjóðfélagsins með umbótum á eftirfarandi 5
stoðum, í anda Viðreisnar Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks 1959–1971 .
Stoð 1 – stjórnlagabreytingar
Kosið var til stjórnlagaþings í nóvember 2010, að frumkvæði Samfylkingar og
vinstri grænna og samkvæmt misheppnuð
um reglum þeirra . Þátttaka var um 36%, og
má af þeim sökum bera brigður á lýðræðislegt
umboð þessa stjórnlagaþings, eins og einn
alþingismaður Framsóknarflokksins hefur
sýnt glögglega fram á .2 Tilstandið hefur engu
að síður beint kastljósinu að stjórnar skránni .
Hún leggur grunn að stjórnkerfinu með
því að setja þremur greinum ríkisvaldsins
skorður auk forseta lýðveldisins . Það má hins
vegar beita henni með víðtækari hætti . Það
hafa ýmsar þjóðir gert til að létta undir með
peninga málastjórnun seðlabanka sinna . Sviss
nesku ríkisstjórninni í Bern er t .d . bannað
samkvæmt stjórnarskrá að reka ríkis sjóð með
halla, og Þjóðverjar eru með sams konar
ákvæði í undirbúningi fyrir stjórnar skrá sína .
Hér er lagt til, að sett verði ákvæði þessa
efnis í íslenzku stjórnarskrána, en þó með
þeim varnagla, að 70% þingheims geti
heimilað halla á fjárlögum, allt að 3,0%
af vergri landsframleiðslu, VLF . Þó yrði
rekstrarafgangur að vera jákvæður yfir 9
síðustu ár auk viðkomandi fjárlagafrumvarps .
Þetta ákvæði mundi draga úr spurn eftir
lánsfé á innlendum markaði og þannig
stuðla að lægri vöxtum í landinu . Ákvæðið
er líklegt til að auka tiltrú lánardrottna
og matsfyrirtækja á greiðslugetu landsins,
sem hefur áhrif til lækkunar vaxta . Jákvæð
rekstrarniðurstaða ríkissjóðs er lífsnauðsyn
næstu tvo áratugina til að ná skuldum
ríkissjóðs niður í viðunandi gildi, þ .e . undir
30% af vergri landsframleiðslu .
Merkur hagfræðingur ritaði nýlega um
tengt efni: 3
„Til að leysa þann hagstjórnar og gjald
miðilsvanda, sem Íslendingar búa við, er
hér lagt til, að tekin verði upp fjármálaregla,
sem styður við peningamálastefnuna á þann
hátt, að ekki þurfi að beita vaxtatækjum
Seðlabankans á jafnafdrifaríkan hátt og
verið hefur . Fjármálareglan felst í því, að:
„Ríkisútgjöld vaxi sem nemur meðalhagvexti
undanfarinna 10 ára óháð árferði .“
Með þeirri breytingu, að ríkisútgjöld vaxi
árlega að hámarki sem nemur meðaltali
hagvaxtar áranna 10 á undan fjárlagaárinu, er
hér um góða hugmynd að ræða, sem mundi
veita þingmönnum nauðsynlegt aðhald,
styddi við stöðugleika og mundi létta undir
með peningamálastjórninni, þannig að
minni hætta væri á að lenda í vítahring, eins
og 2006–2008 . En betur má, ef duga skal:
Gera þarf Seðlabankann að 4. stjórnvald-
inu, sem sé óháð hinum þremur. Þetta þarf
að festa í stjórnarskrá . Seðlabankanum verði
stjórnað af 5 manna bankaráði, sem sjálft ráði
aðalbankastjóra samkvæmt auglýsingu til
fimm ára í senn og framlengingarmöguleika
annað fimm ára tímabil . Forseti Alþingis,
sem kosinn verði beint af þjóðinni og gegni
jafnframt embætti forseta lýðveldisins, skipi
sjálfur formann bankaráðsins til fimm ára og
hina bankaráðsmennina samkvæmt til nefn
ingu eftirtalinna aðila til fjögurra ára í senn: