Þjóðmál - 01.03.2011, Side 81
Þjóðmál VOR 2011 79
Efnahagsráðherra skipi einn banka ráðs
mann; forseti Hæstaréttar skipi einn banka
ráðs mann; rektor Háskóla Íslands skipi einn
banka ráðsmann; Samtök atvinnulífsins og
ASÍ velji einn banka ráðsmann .
Hlutverk Seðlabankans verði að varðveita
stöðugleika í efnahagskerfi landsins . Það
merk ir, að honum ber að vinna gegn sveifl um
á gengi gjaldmiðilsins, á eignaverði í land inu
og á verðlagi almennt . Að þessu tryggðu skulu
aðgerðir hans stuðla að há mörkun hagvaxtar .
Hann getur sjálfur sett sér undir markmið, t .d .
verðbólgumarkmið . Aðal stjórn tæki Seðla
bank ans er vaxtatólið . Til að vextir bíti verður
að afnema verðtryggingu með lögum .
Jafnframt þarf í stjórnarskrá að festa
eftir litshlutverk Seðlabankans með fjár
málakerfinu í landinu, þannig að hann verði
búinn nauðsynlegum tækjum og tólum
til að kæfa ofvöxt og markaðsmisnotkun í
fæðingunni .
Með þessum hætti væri traust og fagleg
pen ingamálastjórnun í landinu fest í sessi .
Breytir þá engu, hvort stefna Alþingis og
ríkisstjórnar væri að halda í krónuna eða að
taka upp aðra mynt . Sömu efnahagslögmál
þarf að virða í báðum tilvikum . Ákvörðun
um lögeyri á Íslandi er og verður í höndum
Alþingis . Til að skera úr um ágreining um
túlkun á stjórn arskrá, réttmæti lagasetningar
og dóma Hæstaréttar m .v . stjórnarskrá
þarf að koma á laggirnar stjórnlagadómstóli
og séu ákvæði um hann njörvuð niður í
stjórnarskrá .
Stoð 2 – beinar erlendar fjárfestingar
og skattlagning atvinnurekstrar:
R íkisstjórn og Alþingi þurfa að móta nýja stefnu um erlendar fjárfestingar
í atvinnufyrirtækjum á Íslandi . Hún yrði á
öndverðum meiði við tortryggni, augljósa
andúð og beina andstöðu ríkisstjórnar
Samfylkingar og vinstri grænna hvað varðar
erlent eignarhald á orkufyrirtækjum og
sjávarútvegsfyrirtækjum sem og öðrum
fyrirtækjum, hvað sem smjaðri Samfylkingar
fyrir ESB líður . Rekst þar hvað á annars
horn . Horn steinn stefnunnar sé reglur EES
(evrópska efnahagssvæðisins) um frjálst flæði
fjármagns, en orku og sjávarútvegsfyrirtæki
með aðgang að efnahagslögsögu Íslands
verði að vera skráð á Íslandi, enda lúti þau
alfarið íslenzkum lögum . Frekari girðingar
eru óþarfar og stríða gegn EESákvæðum .
Til að laða erlent fjármagn til landsins
þarf að stokka upp skatttakerfið . Tekjuskatt
fyrirtækja þarf að lækka úr 20% niður í
um 12% . Í þessu sambandi er athyglisvert,
að Írar, í kröggum sínum, hafa harðneitað
kröfum ESB um að hækka þennan skatt hjá
sér, því að reynsla þeirra er, að lág skattheimta
af fyrirtækjum örvar fjárfestingar og eykur
allar skatttekjur .
Launatengd gjöld þarf einnig að lækka til
að örva ráðningar starfsfólks og bæta sam
keppnisaðstöðu fyrirtækjanna við útlönd .
Rafskattinn á að afnema hið fyrsta, enda
hægir hann á nýtingu orkulindanna og
skekkir samkeppnistöðu .
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að líf ríki
sjávar í lögsögu Íslands er að mestu full nýtt .
Þar er þess vegna lítið svigrúm til fjár fest ingar
í ónýttum auðlindum . Braggist lífríkið, sem
vísbendingar eru um nú, eiga þeir, sem orðið
hafa fyrir skerðingum aflaheimilda, auðvitað
að njóta batans, þ .e . batanum verði dreift á
núverandi rétthafa í réttum hlutföllum . Að
selja eða leigja viðbótarheimildir er óréttlát
skattlagning á sjávarútveginn og á sér vart
stoð í lögum . Veiðiheimildir, varðar af
eignar réttarákvæðum stjórnarskrár innar
og frjálst framsal veiðiheimilda, tryggja
lang tíma sjónar mið við nýtingu sjávar
auðl indar innar og hagkvæmasta rekstur,
sem hugsazt getur .4 Þetta tryggir hinu
opinbera hámarksarð af auð lind inni íformi
skatttekna af starfseminni . Sam keppni