Morgunblaðið - 11.09.2015, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.09.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Gaman Ferðir hafa uppi áætlanir um að bjóða upp á ferð til Tyrk- lands á lokaleik Íslands í undan- keppni Evrópumótsins í fótbolta sem fram fer þann 13. október. Í síðustu ferð, til Hollands, fóru 2.800 manns og fékk karlalandsliðið áður óþekktan stuðning á útivelli. Þrátt fyrir að karlalandsliðið sé búið að tryggja sér sæti í lokakeppninni í Frakklandi að ári er engan bilbug að finna á Gaman ferðum. Þór Bær- ing, einn af eigendum fyrirtæk- isins, segir að málin muni skýrast í næstu viku. „Við erum að reyna að sjóða sam- an ferð til Tyrklands – það er á plani en niðurstaða fæst ekki fyrr en í næstu viku. Við erum að skoða málið með opnum huga. Það er allt- af áhugi á að fara til Tyrklands og við ætlum að reyna að setja saman ferð.“ Einhver áhugi er hjá Tólfunni, stuðningsmannasveit Íslands, að fara í ferðina en þó eru einhverjir sem fóru til Hollands að hugsa um að sleppa henni, vegna þess að Ís- land er öruggt með sæti í loka- keppninni. Ætla að spara pening- inn og fara með trukki og dýfu til Frakklands. Enn allt að fæðast Ekki eru mörg ár síðan að ís- lenska karlalandsliðið fékk örfáa til að styðja sig á útileikjum en slíkt er að breytast með öflugu starfi Tólf- unnar. Fyrsta alvöru ferðin var far- in í fyrra til Tékklands og Holland tók svo við. „Þessar stuðningsmannaferðir eru í raun enn að fæðast. Við erum enn svo ný í þessari menningu. Við erum bara í sjálfboðavinnu að reyna að skipuleggja gott partý í útlöndum til að styðja strákana,“ segir Benjamín Hallbjörnsson vara- formaður Tólfunnar. Stefnt á ferð til Tyrklands Morgunblaðið/Golli Tólfan Stuðningur frá stúkunni skiptir máli í kappleikjum.  Töluverður áhugi á að fylgja landslið- inu í lokaleikinn Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Heitar umræður spunnust á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær þegar breyting á tilhögun grunnskólakennslu á Hvanneyri var rædd. Niðurstaða fundarins var að breyta ekki fyrri ákvörðun. Á íbúafundi á Hvanneyri nýlega var lýst yfir vantrausti á meirihlut- ann í Borgarbyggð vegna áætlana um að færa grunnskólakennslu að hluta til á Kleppjárnsreyki eða til Borgarness. Vantraustsyfirlýsingin var rædd á sveitarstjórnarfundinum en meirihlutinn hyggst ekki stíga til hliðar í kjölfar ályktunarinnar. Björn Bjarki Þorsteinsson, oddviti meirihlutans í Borgarbyggð, segir að þorrinn af 180 fundarmönnum á íbúafundinum hafi setið hjá við sam- þykkt yfirlýsingarinnar. Önnur yfirlýsing var samþykkt á íbúafundinum, án mótatkvæða, og sneri hún að því að sveitarstjórn myndi endurskoða ákvörðun sína um að færa grunnskóladeildina frá Hvanneyri. Björn segir að sveitar- stjórnin muni ekki hvika frá ákvörð- un sinni. Grunnskólahald ekki lagt af Tillaga meirihlutans er að nám í 3. og 4. bekk í grunnskólanum á Hvanneyri verði fært á Kleppjárns- reyki eða Borgarnes í hagræðingar- skyni, en fram til þessa hafa 1.-4. bekkur verið við grunnskólann á Hvanneyri. Eldri nemendur hafa sótt nám á Kleppjárnsreykjum. „Við erum ekki að leggja af grunnskólahald á Hvanneyri. Það er greinilegt að ákveðnir aðilar ganga hart fram í því að það sé ekki tilefni til samtals um okkar lausn á málum, en ég vona svo sannarlega að okkur takist að ná fram samtali um þessi mál. Það er ákveðinn hópur fólks á Hvanneyri sem hefur laumað því að okkur að hann sé opinn til samtals.“ Til bóta fyrir nemendur Fyrir liggur að breytingarnar muni spara Borgarbyggð 35-40 milljónir króna á ári. Björn Bjarki telur þó einnig að breytingarnar séu til bóta fyrir nemendur á Hvanneyri. „Þá eru börnin komin í stærri bekkjardeildir, minni líkur eru á samkennslu fyrir marga aldurshópa og sömuleiðis fá þau líka kennslu í íþróttum og sundi, en sú aðstaða er því miður ekki til staðar á Hvann- eyri. Til viðbótar eru þetta smáir ár- gangar og við teljum það hag þeirra að komast í stærri einingar. “ Ragnar Frank Kristjánsson, íbúi á Hvanneyri og fulltrúi Vinstri grænna í sveitarstjórn, lagði fram bókun á fundinum þar sem lagst var gegn því að skólahald á Hvanneyri yrði skert. Ekki hvikað frá fyrri ákvörðun  Skiptar skoðanir um grunnskóla á Hvanneyri í sveitarstjórn Borgarbyggðar Morgunblaðið/Guðrún Vala Borgarnes Hvanneyringar og sveitarstjórn standa í deilum. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Ný stjórn var kjörin í húsnæðissam- vinnufélaginu Búmönnum í gær, þegar rúmlega 200 félagsmenn komu saman á aðalfundi félagsins á Grand Hótel. Gunnar Kristinsson, matvæla- og stjórnsýslufræðingur, var þá kjörinn formaður félagsins. Í samtali við Morgunblaðið segir hann að viðræður séu yfirstandandi á milli félagsins og Íbúðalánasjóðs. „Nú koma nýir menn inn í þær viðræður sem aðrar og við munum koma saman eftir helgi til að leggja línurnar fyrir framhaldið,“ segir Gunnar. Búmenn fengu heimild til greiðslustöðvunar 15. maí síðastlið- inn og fyrir skömmu fékkst greiðslustöðvunin framlengd til 4. desember. „Við ætlum að reyna að nýta þann tíma til að vinna úr þeim hugmynd- um sem fram eru komnar, en allt miðar þetta að því að finna lausnir á vanda Búmanna,“ segir hann. Fjárhagsvandi Búmanna er tals- verður en sú ógn sem helst steðjar að félaginu felst í innlausnarskyldu þess á íbúðum þegar búseturéttar- hafar vilja skila þeim af sér að lok- inni búsetu. Nauðasamningar taka við „Félagið er engan veginn í stakk búið til að uppfylla þessar skyldur sem það stendur gagnvart. Þann vanda þarf að leysa,“ segir Gunnar. Aðstoðarmaður félagsins í greiðslustöðvuninni er Helgi Jó- hannesson, hæstaréttarlögmaður á lögmannsstofunni LEX. „Nú verður væntanlega farið í nauðasamningaferli. Ef nýja stjórn- in heldur áfram áætlunum þeirr- ar gömlu þá liggur næst við að fá lokasvar frá Íbúðalánasjóði varðandi nokkur atriði áður en gengið er til nauðasamninga,“ segir Helgi. Nauðasamningarnir snúi að því að fella niður innlausnar- skyldu félagsins á íbúðarrétti fé- lagsmanna, svo að þeir geti selt rétt- inn á frjálsum markaði. Morgunblaðið/Golli Fundað Fjölmennur aðalfundur fór fram í salarkynnum Grand Hótels í gær en rúmlega 200 manns mættu þar. Reyna að leysa mik- inn vanda Búmanna  Innlausnarskylda leggur þungar byrðar á herðar félagsins Í kjölfar bankahrunsins árið 2008 fór staða Búmanna að versna verulega. Gunnar segir að rót vanda Búmanna megi þó rekja til áranna þar á undan. „Auðvitað hafði hrunið sitt að segja. Þegar þar að kom höfðu menn hins vegar byggt íbúðir á svæðum þar sem engin þarfa- greining hafði verið gerð. Ef að slík greining hefði farið fram þá hefði það komið í ljós að þessar fram- kvæmdir hefðu aldrei verið fjár- magnaðar af hálfu Íbúðalána- sjóðs.“ Vanhugsaðar byggingar ENGIN ÞARFAGREINING Gunnar Kristinsson Íslenskar stúlkur mega ekki heita Alexstrasza. Þær mega aftur á móti heita Alexstrasa. Beiðni um báða rit- hættina barst mannanafnanefnd. Ís- lenskir drengir mega ekki bera nafnið Bjarkarr. Þetta kemur fram í úrskurðum nefndarinnar sem birtir voru ný- lega. Þar segir einnig að íslenskar stúlkur megi heita Jarla, Júlíhuld, Húna, Stasía og Marzibil. Þær mega aftur á móti ekki heita Anya. Þá mega íslenskir drengir heita Gígur og Willy, en síðara nafnið er borið af tveimur körlum sem eiginnafn, sam- kvæmt þjóðskrá og kemur jafnframt fyrir í manntali frá árinu 1920. Í úrskurði mannanafnanefndar þar sem nafninu Alexstrasza var hafnað segir að ritháttur nafnsins sé ekki í samræmi við almennar ritregl- ur íslensks máls þar sem samhljóðin sz eru ekki rituð saman í íslensku. Á þennan rithátt nafnsins er því aðeins heimilt að fallast ef hann telst hefð- aður samkvæmt lögum um manna- nöfn og hefur hann ekki verið það. Mega heita Alexstrasa, Willy og Júlíhuld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.