Morgunblaðið - 11.09.2015, Page 21
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Metfjöldi flóttamanna fór um Balkan-
skaga til Ungverjalands í gær og
þurftu yfirvöld í Austurríki að stöðva
lestasamgöngur yfir landamæri
ríkjanna vegna flóttamannastraums-
ins. Áður höfðu dönsk yfirvöld stöðv-
að lestasamgöngur milli Danmerkur
og Þýskalands og lokað hraðbraut
vegna fjölda flóttamanna sem vilja fá
hæli í Svíþjóð. Lestaferðir hófust þó
að nýju yfir landamæri Danmerkur
og Þýskalands í gær og danskir lög-
reglumenn fengu fyrirmæli um að
stöðva ekki flóttamenn sem vildu fara
til Svíþjóðar.
Nokkur ríki í austanverðri Evrópu
leggjast enn gegn tillögu fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins um sameiginlega stefnu ESB-
ríkja í málefnum hælisleitenda og
bindandi flóttamannakvóta. Robert
Fico, forsætisráðherra Slóvakíu,
sagði í gær að landið myndi ekki „láta
undan“ kröfu Þjóðverja, sem hafa
beitt sér fyrir slíkum flóttamanna-
kvóta til að skylda 22 aðildarríkjanna
til að taka við ákveðnum fjölda hælis-
leitenda. „Við höfnum bindandi flótta-
mannakvóta,“ sagði Fico. „Ég vil ekki
vakna við það einn daginn að hingað
séu komnir 50.000 manns sem ég veit
ekki neitt um.“
„Aðeins fyrsta skrefið“
Sigmar Gabriel, varakanslari
Þýskalands, sagði að tillaga fram-
kvæmdastjórnarinnar um að skylda
ríkin til að taka við alls 160.000 flótta-
mönnum dygði ekki til að leysa mesta
flóttamannavanda í Evrópu frá síðari
heimsstyrjöldinni. „Dreifing 160.000
flóttamanna um Evrópu er aðeins
fyrsta skrefið, svo það sé orðað kurt-
eislega,“ sagði varakanslarinn. „Þetta
er aðeins dropi í hafið.“
Gabriel sagði að 450.000 hælisleit-
endur hefðu verið skráðir í Þýska-
landi það sem af er árinu, þar af
105.000 í ágústmánuði einum og
37.000 fyrstu sjö daga september.
Andstæðingar tillögunnar um
flóttamannakvótann hafa varað við
því að hann geti orðið til þess að enn
fleiri reyni að komast til Evrópu í von
um betra líf eftir að hafa flúið stríð og
fátækt í heimalöndunum. Evrópu-
þingið samþykkti tillögu fram-
kvæmdastjórnarinnar með 432 at-
kvæðum gegn 142, en 57 þingmenn
sátu hjá. Samþykkt þingsins er ekki
bindandi og tillagan nær ekki fram að
ganga nema aðildarríkin samþykki
hana. Innanríkisráðherrar ESB-
ríkjanna ræða málið á mánudaginn
kemur en svo gæti farið að efna þyrfti
til sérstaks leiðtogafundar til að leiða
deiluna til lykta.
AFP
Götótt vörn Flóttamenn fara í gegnum gat á gaddavírsgirðingu sem ungversk stjórnvöld hafa látið setja upp við
landamærin að Serbíu til að stöðva flóttamannastrauminn. Girðingin er 3,5 metra há og á að vera 175 km löng.
Segjast ekki láta
undan Þjóðverjum
160.000 manna hælisleitendakvóti sagður „dropi í hafið“
ÍRAK
Miður ágúst
30/08
Þessalóníka
Bodrum
Miðjarðarhaf
ÞÝSKALAND
Röszke
Tabanovce
Gevgelija
Id
om
en
i
Ge
vg
eli
ja
Ta
ba
no
vc
e
Mi
ra
to
va
c
Pr
es
ev
o
Be
lgr
ad
Ka
nja
zi
Rö
sz
ke
Bú
da
pe
st
Vín
VÍN
BÚDAPEST
200 km
03/09
03/09
AUSTURRÍKI
TYRKLAND
01/09
UNGVERJALAND
SERBÍA
GRIKKLAND
MAKEDÓNÍA
Idomeni29/08
Presevo
Kanjazi01/09
02/09
31/08
30/08
BELGRAD
BAGDAD
ANKARA
2.500 kílómetra löng ferð frá Írak til Þýskalands
München
Miratovac
Þe
ss
aló
ník
a
Ba
gd
ad
An
ka
ra
Bo
dr
um
Mü
nc
he
n
Ung írösk hjón seldu íbúð sína og fataverslun
í Bagdad í því skyni að komast til Bæjaralands
með fjögurra mánaða son sinn. Þau ferðuðust
alls 2.500 kílómetra með lestum, báti, rútu
og fótgangandi. Hjónin greiddu alls jafnvirði
1,3 milljóna króna til að komast á leiðarenda,
m.a. smyglurum sem notuðu hvert tækifæri
til að okra á þeim þegar þau þurftu mat og
drykkjarvatn. „Ég vil bara fallegt líf fyrir
sjálfan mig og konuna mína. Ég vil lifa eins
og annað fólk, án spennu, sífelldrar streitu og
ótta,“ sagði heimilisfaðirinn.
Reynt að jafna deiluna
» Utanríkisráðherrar Póllands,
Slóvakíu, Tékklands og Ung-
verjalands ræða deiluna um
flóttamannakvótann við starfs-
bræður sína frá Þýskalandi og
Lúxemborg í Prag í dag.
» Pólverjar, Slóvakar, Tékkar
og Ungverjar hafa verið and-
vígir bindandi flóttamanna-
kvóta.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 02.09.15 - 08.09.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Secret Garden
Johanna Basford
Framúrskarandi vinkona
Elena Ferrante
Í nótt skaltu deyja
Viveca Sten
Stórbók - Sitji Guðs englar
Guðrún Helgadóttir
Konan í lestinni
Paula Hawkins
Hugarfrelsi
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Unnur Arna Jónsdóttir
Stúlkan í trénu
Jussi Adler Olsen
Það sem ekki drepur mann
David Lagerkrantz
Enchanted Forest
Johanna Basford
Sagas of the Icelanders
Ýmsir höfundar