Morgunblaðið - 11.09.2015, Page 31

Morgunblaðið - 11.09.2015, Page 31
Magnúsar, en það voru þó gamlar konur sem sannfærðu mig best. Ég minnist þess að ein sagði við mig: „Ert þú bróðir hans Magn- úsar? Það er yndislegur maður og mikill læknir.“ Síðan leit hún á mig og sagði: „Þið eruð annars ekkert líkir.“ Ég vonaði að hún ætti aðallega við útlitið, en mátti þó heyra efasemdaraddir! Magn- ús hafði þá eiginleika sem skipta mestu máli fyrir lækna: Hann var vel að sér í fræðunum, afar sam- viskusamur, hafði góða dóm- greind, átti auðvelt með að ná til fólks og gat tekið ákvarðanir fljótt. Og hann var góður maður, en án þess verður enginn góður læknir. Magnús hafði mikið dá- læti á þessu erindi Matthíasar: Dæm svo mildan dauða, Drottinn þínu barni, eins og léttu laufi, lyfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali. Þetta var andlátsbæn hans, sem rættist. Blessuð sé minning hans. Tryggvi Ásmundsson. „Draumar eru gratís“. Þetta er besta veganesti sem Magnús gaf mér. Enginn draumur er svo stór að það taki því ekki að óska sér hans og ekkert markmið er of há- leitt. Það er hvort eð er gratís að láta sig dreyma og oft er það besta í lífinu einmitt gratís. Ég var tíu ára þegar ég kom inn í líf Magnúsar og Katrínar. Ási sonur þeirra varð fósturpabbi minn og þau um leið bónus afi og amma. Mér var tekið opnum örm- um og af mikilli elsku. Það er enda leitun að vandaðri mann- eskjum. Magnús var sérlundað ljúf- menni. Biskupssonur sem trúði öðru fremur á vísindin. Lyflækn- ir sem trúði líka á mátt hugans við að lækna mein. Hann talaði esperanto, drakk vatnsblandað gos, þýddi bækur og byggði sér kofa sem sumarbústað. Magnús var líka fordómalaus og hafði þar af leiðandi afskaplega þægilega nærveru. Áhugasvið hans lá víða og oft gat hann komið manni skemmtilega á óvart. Það er mér t.a.m. minnisstætt þegar ég var send sem fréttamaður í héraðs- dóm að fylgjast með lítt áhuga- verðu skattamáli. Þegar ég kom þangað sat Magnús á fremsta bekk, áhugasamari en allir í dómssal. Magnús kvaddi í örmum fjöl- skyldunnar. Ég get ekki hugsað mér fallegri kveðjustund. Það er, jú, hið eina sanna ríkidæmi – að elska og vera elskaður. Ég mun halda áfram að dreyma gratís í anda Magnúsar og hugsa til hans með þakklæti fyrir samveru okkar og elsku hans. Guðný Helga Herbertsdóttir. Þegar ég hugsa um afa sé ég fyrir mér eldhúsborðið á Reyni- grundinni, útvarpið stillt á Rás1 og við erum að spila ólsen ólsen í hundraðasta sinn. Þó afi hafi ver- ið gamall kom stundum á hann barnslegt prakkaraglott í spilum og ef maður passaði sig ekki gat maður allt eins átt von á því að hann svindlaði allsvakalega. Afi fór oft í gönguferðir þó hann væri orðinn hrumur og blindur og það sem meira var, hann fór oft í strætó. Vinkonur mínar voru farnar að rekast oft á hann í strætó og tala alltaf um hann sem afa í strætó. Afi var ofboðslega stuðnings- ríkur og hvatti mig alltaf áfram í því sem ég tók mér fyrir hendur. Hann hafði gaman af því að kenna mér vísur og furðaði sig á því hvernig tíu ára barn gæti lært öll erindin í þjóðsöngnum án þess að skilja bofs í honum. Einu sinni skrifaði ég ritgerð um ömmu fyr- ir skólann sem afi var sérstaklega ánægður með. Daginn eftir bank- aði hann uppá og með gjöf handa mér. Það var einlægasta hvatning sem ég hef nokkurn tímann feng- ið. Gjöfin var stór pakki af hvítum A4 blöðum, til þess að ég gæti haldið áfram að skrifa. Betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Hann lifir áfram í minningu allra þeirra sem fengu að kynnast honum. Katrín Helga Andrésdóttir. Fyrstu minningarnar sem við eigum um afa Magnús eru um gömlu grænu heyrnarhlífarnar sem til voru á Neskaupstað. Þess- ar heyrnarhlífar notaði afi til þess að geta fengið frið frá hávaða og skarkala hversdagsins. Hann tók sér gjarnan kríu í húsbónda- stólnum með heyrnarhlífarnar á höfðinu. Hann hafði unun af því að hlusta á ýmsan fróðleik en var útsjónarsamur við að koma sér undan hávaða. Sem dæmi má nefna þá naut hann þess að hlusta á spurningarnar í Gettu betur enda vissi hann svörin við þeim langflestum en var snöggur að ýta á „mute“ takkann á fjarstýr- ingunni þegar fagnaðarópin hóf- ust. Takkarnir á fjarstýringunni voru langt því frá þeir einu sem afi handlék um ævina því hann hafði í sér barnslega þörf til að fikta í öllum græjum og tökkum. Þessi eiginleiki átti líklega stóran þátt í því að honum tókst á gam- alsaldri að verða ágætlega fær á tölvu. Hann hafði mikinn áhuga á bókmenntum og tungumálum, m.a. esperanto, sem varð til þess að þegar annasamri starfsævi lauk tók hann til við að þýða bæk- ur af mikilli hugsjón, mest úr sænsku. Hann lagði mikinn metnað og vinnu í þýðingarnar. Það var því sérlega ánægjulegt þegar honum hlotnaðist sá heiður að hreppa verðlaun bókmennta- ráðs Reykjavíkur fyrir þýðingu á sænsku barnabókinni Dansar Elías? Hann hélt þýðingunum áfram eins lengi og sjónin leyfði og í raun talsvert lengur en það. Afi var mikill bílaáhugamaður. Fyrir nokkrum árum buðum við honum í bíltúr á Selfoss og fórum þá á stóra fornbílasýningu. Þá var afi næstum alveg blindur, sá aðeins stórar útlínur útundan sér. Samt gat hann sagt til um tegund og árgerð langflestra bíla sem við gengum framhjá og við gátum staðfest með því að lesa á lítil skilti hjá bílunum. Ef við reyndum að lýsa afa í einu orði þá væri það skynsamur. Síðan við munum eftir honum hefur hann verið afar hófsamur á vín. Það var helst að hann dreypti á vatnsblönduðum pilsner ef hann kaus að fá sér í tána. Það sama gilti um gosdrykki , þeir voru blandaðir að minnsta kosti til helminga með vatni og sleikipinn- um, eða spítubrjóstsykri, eins og hann kallaði þá, taldi hann réttast að sturta niður í klósettið. Skyn- semin einkenndi ekki síður starf hans sem læknis. Hann var vel meðvitaður um gagnsemi hreyf- ingar sem og skaðsemi óþarfa lyfjanotkunar. Því ráðlagði hann sjúklingum sínum gjarnan þegar það átti við að fara „út að ganga í klukkutíma á dag“. Í stað þess að skrifa út lyf sem hann vissi vel að gætu haft slæmar aukaverkanir og kæmu ef til vill að litlu gagni. Þetta var löngu fyrir tíma hreyfi- seðla. Eflaust voru einhverjir ósáttir við að fá ekki einhverja pillu sem lausn við sínum vanda. Það kom þó ekki að sök því allir sem til hans leituðu skynjuðu einlægan vilja hans til þess að sjúklingar hans fengju bata. Þessa sömu umhyggju fyrir fjölskyldu og vinum skynjuðum við sterkt í öllum okkar samskipt- um við afa í gegnum árin. Bergþór og Hjörtur Jónssynir.  Fleiri minningargreinar um Magnús Ásmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2015 ✝ Bryndís Kjart-ansdóttir fædd- ist 26. júlí 1943 á Söndu á Stokks- eyri. Hún lést á hjartadeild Land- spítalans við Hringbraut 1. sept- ember 2015. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Nikulásdóttir frá Stokkseyri og Kjartan Þorleifsson frá Einkofa á Eyrarbakka. Systkini Bryn- dísar eru Ágústa, f. 1947, Hall- dór Valgeir, f. 1949, Helgi, f. 1950, d. 2010, Svanhvít, f. 1953, Guðbjartur, f. 1957, d. 2011, og Bára, f. 1963. Karl Arason, eiginmaður eiga þau sex börn og fimm barnabörn. Arnar Þór Ingólfs- son, f. 28.5. 1971, maki hans er Unnur Sigurrún Kristleifs- dóttir, börn þeirra eru þrjú. Ari Karlsson, f. 15.8. 1978, hans maki er Elfa Scheving Sigurð- ardóttir og eiga þau einn son, en Ari á fyrir tvær dætur. Guð- laugur Karl Karlsson, f. 30.7. 1980, hans maki er Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir og saman eiga þau tvö börn. Bryndís var húsmóðir á stóru heimili en vann samhliða ýmis störf. Hún fór ung að vinna í fiski á Eyrarbakka og í Reykja- vík og síðan við dósagerð og hjá Ópal. Þá starfaði hún hjá Slát- urfélagi Suðurlands í kringum 1970. Frá árinu 1973 til 1978 vann hún meðal annars við upp- vask, gangavörslu og ræstingar og var síðustu starfsárin í Fjöl- brautaskólanum Breiðholti. Útför Bryndísar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 11. september 2015, kl. 13. Bryndísar, fæddist 14. ágúst 1943. Foreldrar hans voru Ingiríður Guðlaug Nikóde- musdóttir frá Sauð- árkróki og Ari Jónsson frá Skuld á Blönduósi. Börn Bryndísar eru Sig- ríður Sigurð- ardóttir, f. 28.1. 1963, maki Eiríkur Ingimagnsson, saman eiga þau fjögur börn og sjö barnabörn. Kjartan Brynjar Sigurðsson, f. 9.4. 1964, maki Unnur Erla Malmquist, börn þeirra eru tvö og tveir dóttursynir. Birgir Sig- urðsson, f. 4.9. 1965, hans maki er Hildur Loftsdóttir en saman Ég finn fyrir óendanlegum tómleika og sorg en reyni að hugga sjálfa mig með öllu því sem ég get verið þakklát fyrir, eins og að hafa átt mömmu sem vinkonu. Það er einnig huggun í sorginni að yndislegi lífsföru- nautur mömmu var hjá henni þegar hún kvaddi. Ég reyni líka að taka á sorginni með yf- irvegun og ró eins og mamma gerði í veikindum sínum. Mamma var reyndar alltaf þannig, en samt svo rösk og atorkusöm á meðan hún hafði heilsuna. Öll heimilisstörfin og áhuga- málin vann hún með fjölskyld- una í kringum sig og allir fengu að taka þátt í því sem hún var að gera, svo það var ekki sjald- séð að hún sæti með börnunum við handavinnu, að föndra eða sinna einhverju matartengdu. Eins og við vorum ólíkar, eða töldum það, þá baukuðum við svo margt saman og vorum jafn stórtækar þegar við réðumst saman í slátur, kæfu, berjat- ínslu, bakstur, prjóna- og saumaskap eða blómaræktun svo eitthvað sé nefnt. Síðan hlógum við eins og bjánar þeg- ar við vorum orðnar þreyttar og svefngalsinn tók yfir- höndina. Ég var samt ekki eins hrifin af kartöfluræktinni sem mamma hafði svo gaman af, en góðar voru þær. Mamma var ekki bara æð- isleg mamma heldur var hún stórkostleg amma og langamma og átti endalausa ást og tíma til að sinna öllum sínum (einnig á meðan hún var útivinnandi), sem síðan gáfu henni af sér þegar hún þurfti á að halda. Mamma gaf sér líka tíma fyrir Helga bróður sinn og fór vítt og breitt með honum á meðan hann lifði. Þegar Kalli stjúpfaðir minn hætti á sjónum droppuðu hann og mamma oft í kaffi til okkar um helgar. Ég get ekki lýst því hvað mér þótti vænt um það þegar þau birtust, líka þegar þau komu á bak við húsið okkar á góðvirðis dögum. Að þau vildu vera með okkur og hafa áhuga á því sem við vorum að gera. Sumarið 2004 lést tengda- móðir mín, sorgin fylgdi okkur Eika og Ingimagni til Akureyr- ar með fellihýsið, þar sem tengdafjölskyldan ætlaði að hittast. Samveran var dýrmæt. Góðviðrið varð til þess að við ílengdumst og við vissum líka að von væri á mömmu, Kalla og Guðbjarti heitnum (móðurbróð- ur mínum) í viku sumarfrí í íbúð þarna. Þetta var yndislegur tími sem flaug frá okkur. Við urðum eftir á föstudeginum þegar þau fóru heim. Í eftirmiðdaginn daginn eftir birtust mamma og Kalli skyndi- lega. Þau höfðu ákveðið þá um morguninn að fara aftur norður og vera með okkur í fellihýsinu. Við urðum jafnglöð og við vor- um undrandi. Þessi minning er lítið brot af öllum stundunum sem við mamma áttum saman í meira en hálfa öld. Ég veit að mamma verður meira og minna með mér í framtíðinni við daglegar sem og aðrar athafnir, bara í gær sló það mig tvisvar að ég þyrfti að hringja í hana. Elsku mamma mín, takk fyr- ir allt. Sigríður Sigurðardóttir (Sirrý). Eins og gullhörpuljóð, eins og geislandi blær, eins og fiðrildi og blóm, eins og fjallalind tær, eins og jólaljós blítt, eins og jörðin sem grær, lifir sál þín í mér, ó þú systir mín kær. Þú varst mildi og ást og þitt móðerni bar við sinn líknsama barm dagsins lifandi svar: allt sem grét, allt sem hló, átti griðastað þar - jafnvel nálæð þín ein sérstök náðargjöf var. Hversu þreytt sem þú varst, hvað sem þrautin var sár. þá var hugur þinn samt eins og himinninn blár: eins og birta og dögg vour bros þín og tár. Og nú ljómar þín sól bak við lokaðar brár. (Jóhannes úr Kötlum) Þín systir, Svanhvít. Elsku amma, nú ertu farin frá mér. Elsku amma, þú ert ekki lengur hjá mér. Elsku amma mín, 72 ára, er farin. Svo ung og falleg að innan sem ut- an. Ef þú átt eftir að sjá þetta í himnaríki reyndu þá að muna, þegar þú varst að vaska upp og ég var að búa til sjeik og skálin splundraðist í gólfið og þér brá svo, þegar við bjuggum saman. Reyktur fiskur, kjötfars, ís, kjötsúpan, sögurnar, lagið okk- ar, Einu sinni á ágústkvöldi og það allra mikilvægasta, lífið. Ég elska þig amma. Þín, Andrea Edda Guðlaugsdóttir Elsku amma mín. Það er sárt að kveðja þig og erfitt að koma orðum að því sem mig langar að segja þér. Mig langar að þakka þér fyrir allar þær stundir sem við átt- um saman. Þær eru mér mjög dýrmætar. Þegar ég hugsa til baka er mér minnisstætt hvað ég sótti mikið í að fá að gista þegar ég kom í Hrafnhólana til ykkar afa, man eftir öllu suðinu ef svarið var nei. Við vorum svo mörg að það var ekki alltaf hægt að segja já, en mjög oft var það samt þannig. Þið afi áttuð yfirleitt til apafóður (co- coa pops) í morgunmat, það fannst mér æði og ef það var ekki til var farið út í búð og það keypt. Í gær fór ég í búðina og keypti mér apafóður og núna sit ég og borða það og hugsa til þín. Ég kem alltaf til með að hugsa til þín þegar ég sé apa- fóðrið. Ömmur og afar mega sko spilla barnabörnunum. Það var svo gaman hjá þér því það var svo mikið um að vera og margt sem við fengum að dunda okkur með, eins og handavinnu, að lita, perla eða horfa á barnaefni. Þú varst allt- af með eitthvað á prjónunum og afi var oft á sjónum. Þú áttir þvílíkt magn af húfum, vett- lingum og ullarsokkum sem við barnabörnin tókum að okkur að selja fyrir þig, gömlu konuna, en samt varstu rétt um fimm- tugt. Við gengum í hús og seld- um grimmt því þetta var svo ódýrt. Ég man að ég hugsaði svo oft: af hverju selur amma þetta ekki dýrara? En eflaust voru margir þér þakklátir fyrir það því þú klæddir margar fingur og tær og varst alltaf svo hug- ulsöm og góð. Eftir að við barnabörnin urðum eldri og hættum að selja vörurnar fyrir þig nutum við og börnin okkar góðs af vörunum þínum ásamt Rauða krossinum. Ég á eftir að sakna þín enda- laust mikið, amma mín. Ég elska þig. Þitt barnabarn, Bergdís Heiða. Elsku amma mín er fallin frá. Það eru engin orð sem geta lýst því hvernig mér líður núna. Ég á eftir að sakna þess að hitta hana, að setjast niður og spjalla við hana um allt og ekk- ert, föndra og eiga með henni gæðastundir. Hún var gullperlan mín. Allt- af svo hress og skemmtileg og með húmorinn á réttum stað. Það var gaman að prjóna með henni og að vera í sláturgerð- inni með henni og mömmu því það var alltaf fjörugt og skemmtilegt. Þegar við fjölskyldan komum í heimsókn til ömmu og afa var alltaf tekið svo vel á móti okk- ur. Og þau voru svo dugleg að koma í heimsókn til okkar. Mér þótti einstaklega vænt um það. Hvíldu í fríði, elsku amma mín. Ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið. Þitt barna- barn, Þuríður Elírós (Tóta). Elsku amma mín. Að skrifa minningarorð um þig er eitt af því sem ég bjóst ekki við að þurfa að gera svona fljótt. Ég vildi svo sannarlega eiga þig lengur, búa til fleiri minningar með þér og fá að sjá þig brosa og hlæja. Ég var mjög lánsöm, elsku amma mín, að hafa búið í ykkar afakoti fyrstu árin mín og lán- söm hversu traustar og góðar vinkonur við vorum allt til enda. Ég var langt í frá að vera þér og afa auðveld, þið 36 ára þegar ég kom inn í líf ykkar. Þið sjálf með lítið barn, hann Ara ykkar og stuttu síðar kom Gulli ykkar, svo það var sann- arlega mikið líf og fjör í ykkar koti út af öllu sem okkur datt í hug að gera og þú sagðist verða hoppandi reið ef við hættum ekki. Það var þó ekki fyrr en við vorum orðin fullorðin, að fagna 60 ára afmæli ykkar afa, að við fengum loksins að sjá þig hoppa án þess að þú værir reið, heldur með bros á vör og við hlátur afkomenda þinna. . Það vantaði ekki, elsku amma mín, hversu barnvænt heimili ykkar afa var, enda ófá skipti sem það voru börn í ykk- ar fallega koti, sem er í sjálfu sér ekkert skrítið því það var gott að vera í ykkar faðmi. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku hjartans afi minn og aðrir ástvinir mínir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Elsku hjartans amma, nafna og vinkona mín, ég kveð þig með söknuði í hjarta. Eins og áður; bless fallega mín, ég elska þig. Þín, Bryndís og fjölskylda. Elsku hjartans Bryndís mín, mér finnst erfitt að trúa því að eiga ekki eftir að kíkja við í Fífuselinu í kaffibolla og spjall en hann drekkum við síðar á öðrum stað sem liggur fyrir okkur öllum að fara til. Það var dásamlegur tími þegar við vor- um nágrannar í Hrafnhólunum og sá mikli vinskapur sem myndaðist milli fjölskyldna okkar er og verður dýrmætur alla tíð. Þegar ég heimsótti þig á spítalann um daginn bjóst ég ekki við að það yrði kveðju- stund, en nú er ég óendanlega þakklát fyrir að hafa drifið mig. Já, það eru margar dásam- legar minningar sem ég get ylj- að mér við, elsku vinkona mín, og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Takk fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum. Elsku Kalli, Sirrý, Biggi, Kjartan, Arnar, Ari, Gulli og fjölskyldur, guð gefi ykkur öll- um styrk í ykkar miklu sorg en minningin um dásamlega konu mun lifa í hjörtum okkar alla tíð . Guð blessi minningu Bryn- dísar, takk fyrir allt elsku vin- kona. Kveðja, Sigrún Sigurðardóttir. Bryndís Kjartansdóttir HINSTA KVEÐJA Hvíl þú í ró við lands þíns ljósa barm, ó ljúfi vin! Bros þitt er geymt og – bak við þyngstan harm er bjartast skin. Þakklát og bljúg sem blóm, er hneigja sig, við breiðum krónu lífsins yfir þig. (Jóhannes úr Kötlum) Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.