Morgunblaðið - 11.09.2015, Side 39

Morgunblaðið - 11.09.2015, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýning á nýjum málverkum eftir Hallgrím Helgason verður opnuð í dag kl. 17 í galleríinu Tveimur hröfn- um og ber hún titilinn Málað á myrk- ur I – Fyrir utan húsið þitt, um nótt, á meðan þú sefur. Eins og titillinn gefur til kynna kveður við nýjan tón í málverkum Hallgríms. Þau eru mál- uð eftir ljósmyndum sem hann tók í myrkri af húsum og bílum og hvergi er manneskju að sjá. Fyrir tveimur árum sýndi Hallgrímur í sama gall- eríi svarthvít málverk í írónískum dúr af mörgum þekktustu rithöf- undum þjóðarinnar á 20. öld og í fyrra verk sem hann vann þegar hann bjó í París, á árunum 1993-97, verk sem eru máluð daufum litum, spaugileg og ýkt í teiknimyndastíl. „Þetta er eiginlega henni að þakka eða kenna, því miður þurfti maður að fara að labba með hund á kvöldin, morgnana, í skammdeginu, í öllum veðrum,“ segir Hallgrímur, spurður að því hvað hafi valdið þessari miklu breytingu í málverkum hans. Með „henni“ á hann við tíkina Lukku sem liggur á gólfi gallerísins. „Einhvern veginn fór þetta að leita á mig þetta skammdegi og á sama tíma var ég búinn að kaupa mér góða myndavél. Þessar nýtískumyndavélar eru svo ljósnæmar að þú getur tekið myndir nánast í kolniðamyrkri og samt sérðu hvað er á þeim. Þær ná öllum smáat- riðum. Ég fór að velta því fyrir mér að myrkrið væri aldrei málað og það höfðaði til mín. Á tímabili var ég allt- af með strigann tóman, málaði mjög lítið á hann, lét hann vera hvítan. Nú er ég kominn yfir í andstæðuna, að láta hann vera svartan og tilfinningin var eins og ég væri að mála á myrk- ur, mála beint á myrkrið. Í rauninni er svarti liturinn grunnlitur í hverri mynd,“ útskýrir Hallgrímur. Ástaróður til bílsins Málverkin sýna ólík hús og bíla sem standa fyrir utan þau og spurður að því hvort myndirnar hafi verið teknar á ákveðnu svæði eða hverfi í borginni segir Hallgrímur svo ekki vera. „Ég vildi bara fá tilfinningu fyr- ir höfuðborgarsvæðinu. Á tímabili var strákurinn minn að æfa fótbolta í Fífunni í Kópavogi, æfingarnar byrj- uðu kl. 18.45 og við vorum alltaf mættir hálfsjö og það er ein mynd þarna úr gönguferð um Kópavog. Annars er þetta mest austurbærinn í Reykjavík: Álfheimar, Kambsvegur, Vesturbrún, Langahlíð, Sunnuvegur, Háteigsvegur,“ telur Hallgrímur upp og bendir á verkin sem tilheyra hverri götu. Hallgrímur segist hafa orðið hug- fanginn af dökku bílunum í myrkr- inu. „Það stirnir á þá þannig að þetta verður stundum eins og stjörnubjart- ur himinn eða stjörnukort,“ segir hann og bendir á eitt verkanna þar sem bíllinn sést varla, aðeins end- urkast ljóssins á lakki og rúðum. „Bíllinn er ofboðslega miðlægur í okkar lífi en við látum alltaf eins og hann sé ekki til. Fólk tekur ekki myndir af bílnum sínum til að hafa á Facebook,“ segir Hallgrímur kíminn. Bíllinn sé kominn í ónáð, það sé talað illa um hann. „Þetta er svona ást- aróður til bílsins áður en hann hverf- ur alveg. Eftir 50 ár verða þessar myndir fornfálegar,“ segir Hall- grímur og glottir. -Það hlýtur að hafa verið erfitt að mála svona dökk verk, að ná lýsing- unni í myrkrinu? „Jú, þetta var svolítið snúið. Það tók nokkrar myndir að ná því og líka að finna rétta svarta litinn. Ég þurfti að fara í þrjár búðir í bænum og kaupa fimm tegundir af svörtum lit þar til ég fann loksins rétta litinn, sem var Windsor & Newton í Litum og föndri. Hann þekur vel og er vel svartur,“ segir Hallgrímur. Hann málaði verkin með akrýllitum til að ná mattri áferð, flötu og djúpu myrkri. „Svo getur maður orðið geð- veikur af því að reyna að ná ein- hverjum ávæningi af bílhúddi sem á ekki að sjást en samt aðeins. Maður getur týnt sér í endalausum smáat- riðum.“ Kuldinn er þarna ennþá -Þetta er heilmikið stökk sem þú hefur tekið, frá Parísarverkunum yf- ir í þessi. Er kaldhæðnin horfin? Hallgrímur hlær. „Það er kannski eitthvað til í því en kuldinn er alla vega þarna ennþá. Það er yfirleitt kalt á Íslandi á nóttunni og myrkrið er alltaf kalt hérna. Þetta eru skammdegismyndir og mér finnst skemmtilegar þessar andstæður, ís- köld nótt og kósí heimili. Við Íslend- ingar erum alltaf að búa okkur til ein- hver hreiður, með bílinn fyrir utan húsið og loga á litlum lampa.“ -Eru þetta ekki fyrstu málverkin þín þar sem ekkert fólk er að sjá eða fígúrur? „Jú, þetta er fígúratíft en engar fígúrur. En samt finnst mér þetta fjalla um fólk því titill sýningarinnar er Málað á myrkur I – Fyrir utan húsið þitt, um nótt, á meðan þú sefur. Það er einhver inni í þessum húsum, einhver á þennan bíl og það liggur einhver þarna inni á bakvið myrkv- aða glugga. Mér fannst það spenn- andi og líka að listamaðurinn stendur vaktina fyrir utan húsið á meðan allir sofa. Það er einhver sögn í því og svo erum við alltaf undir árásum frá fólki.“ -Svo mætir einhver á sýninguna og hrópar: „Þetta er húsið mitt og bíll- inn minn!“ Fær hann þá afslátt af verkinu? Hallgrímur hlær og segist hafa velt því fyrir sér hvort hann ætti að hafa alvöru bílnúmer eða skálduð. „Svo ákvað ég bara að hafa þau al- vöru. Þannig að fólk getur fundið bíl- ana sína hérna, keypt þá aftur,“ segir Hallgrímur sposkur og bætir við að það sé smá „stalker element“ í sýn- ingunni. Hallgrímur segir meirihluta ársins hafa farið í að klára bók sem kemur út í næsta mánuði en hann hafi verið búinn með hana óvenjusnemma og því getað einbeitt sér að málverk- unum í sumar. „Maður reynir að nýta kosti þess að vera í tvennu, að reyna að ná aðeins meiri afköstum fyrir vik- ið af því þú ert alltaf svolítið ferskur þegar þú byrjar aftur að skrifa eða mála,“ segir Hallgrímur um þær ólíku listgreinar sem hann sinnir jöfnum höndum. Morgunblaðið/Eggert Næturmyndir Hallgrímur Helgason og tíkin hans Lukka á sýningunni í Tveimur hröfnum. Málað á myrkur  Hallgrímur Helgason sýnir myrk málverk af húsum og bílum  „Maður getur týnt sér í endalausum smáatriðum“ Skammdegi Málverk Hallgríms eru fígúratíf þótt engar séu fígúrurnar. Á sunnudaginn verður Harpa Björnsdóttir listamaður með lista- mannaspjall í tengslum við sýningu sína Plánetur sem opnuð var í and- dyri Iðnó 27. ágúst sl. Um er að ræða ljósmyndaröð sem hún kallar „Plánetur“, unna á ár- unum 2009-15. Inntak verkanna er skrásetning sjálfstæðrar sköpunar lífsins sjálfs, sem birtist í óvæntri litadýrð og safaríkri fegurð sem minnir á framandi plánetur. Verkin fjalla um fegurðina í því sem við tökum oft ekki eftir, litum og formum hins hversdagslegasta og jafnvel hins auvirðilegasta, sem getur þrátt fyrir nálægðina stund- um verið okkur jafn fjarlægt og óþekkt og himintunglin, eins og segir í sýningarskrá hennar. Listamannaspjallið hefst klukkan 15.00 á sunnudag og sýning sjálf stendur til 22. september. Listamannaspjall um Plánetur í Iðnó List Harpa heldur á tveimur verka sinna, sem gætu verið litlar plánetur. Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 12/9 kl. 19:00 3.k. Fim 24/9 kl. 19:00 7.k. Sun 4/10 kl. 19:00 11.k Sun 13/9 kl. 19:00 4.k. Fös 25/9 kl. 19:00 8.k. Fös 9/10 kl. 19:00 12.k Fös 18/9 kl. 19:00 5.k. Sun 27/9 kl. 19:00 9.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k Sun 20/9 kl. 19:00 6.k. Lau 3/10 kl. 19:00 10.k Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Fös 11/9 kl. 20:00 2.k Mið 23/9 kl. 20:00 4.k. Fim 1/10 kl. 20:00 aukas. Lau 19/9 kl. 20:00 3.k. Lau 26/9 kl. 20:00 5.k. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k. Aukasýningar í september At (Nýja sviðið) Fös 18/9 kl. 20:00 1.k. Fim 24/9 kl. 20:00 4.k. Lau 3/10 kl. 20:00 7.k. Sun 20/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 5.k. Sun 4/10 kl. 20:00 8.k. Mið 23/9 kl. 20:00 3.k. Mið 30/9 kl. 20:00 6.k. Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 20/9 kl. 13:00 1.k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sun 27/9 kl. 13:00 2 k. Sun 11/10 kl. 13:00 5.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Haustsýningar komnar í sölu Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 11/9 kl. 20:00 1.k. Lau 26/9 kl. 20:00 3.k. Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Lau 19/9 kl. 20:00 2 k. Lau 10/10 kl. 20:00 4.k. Kenneth Máni stelur senunni Mávurinn (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Lau 12/9 kl. 20:00 1.k. Sun 20/9 kl. 20:00 3.k. Sun 27/9 kl. 20:00 5.k. Fös 18/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 4.k. Aðeins þessar sýningar! Sókrates (Litla sviðið) Fim 1/10 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 20:00 Sun 11/10 kl. 20:00 Fös 2/10 kl. 20:00 Fim 8/10 kl. 20:00 Lau 3/10 kl. 20:00 Fös 9/10 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Fös 11/9 kl. 19:30 Aðalæ. Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Lau 12/9 kl. 19:30 Frums. Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 17/9 kl. 19:30 Aukas. Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fös 11/9 kl. 19:30 3.sýn Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn Lau 12/9 kl. 19:30 4.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 10.sýn Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 17/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 11.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Mið 16/9 kl. 19:30 3.sýn Sun 20/9 kl. 19:30 4.sýn DAVID FARR HARÐINDIN Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.