Morgunblaðið - 26.09.2015, Síða 17

Morgunblaðið - 26.09.2015, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015 Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Bílar voru lítið á ferðinni við Grunnskólann á Þórshöfn þessa vikuna því að skólinn tók þátt í verkefninu „Göngum í skólann,“ sem er á vegum Íþrótta- og ólymp- íusambands Íslands, Heimilis og skóla o.fl. Meginmarkmiðin eru að hvetja börn til að temja sér virkan ferða- máta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Þau fræðast um ávinning reglulegrar hreyfingar og sjá hversu gönguvænt umhverfið er og að það er ekki alltaf nauðsynlegt að fara með bíl í skólann. Íþróttakennarinn Þorsteinn Æg- ir hélt utan um verkefnið á Þórs- höfn og segir að nemendur hafi staðið sig vel í gönguvikunni. Mættu margir fullorðnir taka þá sér til fyrirmyndar. Ýmsar uppákomur voru tengdar verkefninu og tóku allir starfsmenn og nemendur skólans þátt í þeim. Bíllinn var hvíldur á Þórshöfn í vikunni Morgunblaðið/Líney Gönguhópur Fríður hópur nemenda og starfsfólks grunnskólans stillti sér upp við nýja gangbraut við Austurveg. Alls tóku 19 framhaldsskólar þátt í keppninni Hjólað í skólann í ár, en það er sami fjöldi og ár- ið 2014. Þátttak- endur voru alls 481, hjólaðir voru 55.311 km eða 41,31 hringur í kringum Ísland. Keppnin, sem fór fram 9.-22. september, var nú haldin í þriðja skipti. Markmið hennar var að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfis- vænum og hagkvæmum samgöngu- máta meðal nemenda og starfs- manna framhaldsskólanna. Þrír efstu skólarnir í hverjum flokki fá á næstu dögum senda til sín verðlaunaplatta fyrir árangur sinn í verkefninu. Í skólum, með allt að 399 nem- endur og starfsmenn var Verkmenntaskóli Austur- lands í fyrsta sæti, Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu í 2. sæti og Menntaskólinn á Ísafirði í þriðja sæti. Í skólum með 400-999 nemendur og starfsmenn varð Framhaldsskól- inn í Mosfellsbæ í efsta sæti, Fjöl- brautaskóli Vesturlands Akranesi í 2. sæti og Fjölbrautaskóli Norður- lands vestra í 3. sæti. Í skólum með 1.000 eða fleiri nemendur og starfsmenn var Fjöl- brautaskólinn við Ármúla í 1. sæti, Verkmenntaskólinn á Akureyri í 2. sæti og Fjölbrautaskóli Suðurlands í 3. sæti. Hjóluðu alls 55.311 kíló- metra í skólann Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Annþóri Karlssyni og Berki Birgissyni hefst 15. október næst- komandi, en þá verða um tvö og hálft ár síðan ákæra var gefin út í málinu og tvö ár frá fyrstu fyrir- töku. Þeim er gefið að sök að hafa veist að samfanga sínum á Litla Hrauni og veitt honum högg á kvið með þeim afleiðingum að rof kom á milta og bláæð frá milta sem leiddi til dauða skömmu síðar vegna inn- vortis blæðinga. Samkvæmt upplýs- ingum frá Héraðsdómi Suðurlands er málið á dagskrá bæði á fimmtu- deginum og föstudeginum, en það er skráð frá átta um morgun til átta um kvöld. Fordæmi eru fyrir slíku, þótt algengast sé að dagskrá klárist milli fjögur og fimm. Mál Annþórs og Barkar á dagskrá Morgunblaðið/Ómar Litla Hraun Annþóri og Berki er gefið að sök að hafa ráðið samfanga sínum bana. Hagkvæm bílafjármögnun fyrir viðskiptavini Með reiknivélinni á arionbanki.is getur þú skoðað greiðslubyrði og hvaða fjármögnunarkostir henta þér. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 1 5 -0 9 7 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.