Morgunblaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**
Húðflúrlistamaður ristir mynd á húð gests á alþjóðlegri
húðflúrhátíð sem sett var í Lundúnum í gær og lýkur á
morgun. Um 400 listamenn víðs vegar að úr heiminum
taka þátt í hátíðinni sem er haldin í ellefta skipti. Þegar
hátíðin var fyrst haldin fyrir áratug er talið að einn af
hverjum átta fullorðnum Bretum hafi verið með húð-
flúr en nú er talið að þriðjungur þeirra hafi látið húð-
flúra sig, að sögn skipuleggjenda hátíðarinnar.
AFP
Húðflúrlistin í sókn í Bretlandi
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Öryggislögreglan í Noregi, PST, tel-
ur að meiri hætta sé á ofbeldisfullum
viðbrögðum þjóðernisöfgamanna við
straumi flóttamanna til landsins en
því að hryðjuverkamenn úr röðum ísl-
amista laumist inn í landið með flótta-
fólkinu.
„Hælisleitendur sem tengjast rót-
tækum íslamistum eru ekki helsta
áhyggjuefni PST til skamms tíma lit-
ið,“ sagði í tilkynningu frá norsku ör-
yggislögreglunni. „Aukinn straumur
hælisleitenda gæti umfram allt aukið
hættuna sem stafar af hægriöfga-
mönnum í Noregi. Ástæðan er sú að
andstaðan við innflytjendur er eitt af
helstu baráttumálum þessara hópa.“
Á samfélagsmiðlum hefur talsvert
borið á viðvörunum um að samtök ísl-
amista, m.a. Ríki íslams í Sýrlandi og
Írak, geti notfært sér flóttamanna-
strauminn til að lauma liðsmönnum
sínum til Evrópulanda í því skyni að
fremja hryðjuverk. Norska öryggis-
lögreglan telur að meiri hætta sé á því
að múslímar, sem fæddust eða ólust
upp í Noregi, snúist á sveif með ísl-
ömskum öfgasamtökum og fremji
hryðjuverk.
Að sögn PST stafar öryggi Noregs
einnig hætta af vinstriöfgamönnum
og lögreglan varar við því að til átaka
geti komið á milli öfgahópanna.
Öryggislögreglan skírskotaði m.a.
til fjöldamorða öfgamannsins Anders
Behrings Breiviks sem varð alls 77
manns að bana í árásum í Ósló og Út-
ey 22. júlí 2011. Fjöldamorðinginn
sagði að árásirnar hefðu verið
„grimmileg en nauðsynleg“ aðgerð í
nauðvörn gegn „landráðamönnum“
sem bæru ábyrgð á fjölmenningar-
stefnu og „innrás múslíma“ í Evrópu.
Fyrstu átta mánuði ársins sóttu
rúmlega 8.000 manns um hæli í Nor-
egi og um fjórðungur þeirra er frá
Sýrlandi. Hælisumsóknum hefur
fjölgað síðustu vikur og gert er ráð
fyrir að þær verði alls 20.000 á öllu
árinu.
Árásir á hælisleitendur
Yfirvöld í Finnlandi hafa látið í ljós
áhyggjur af árásum þjóðernisöfga-
manna á hælisleitendur þar í landi.
Finnska ríkissjónvarpið birti í gær
myndir af 40 mótmælendum er skutu
flugeldum á rútu sem flutti hælis-
leitendur, meðal annars börn, í nýja
móttökumiðstöð í borginni Lahti.
Mótmælendurnir köstuðu einnig
grjóti að sjálfboðaliðum Rauða kross-
ins. Einn árásarmannanna var í bún-
ingi Ku Klux Klan, leynifélags sem
hvítir menn stofnuðu til höfuðs
blökkumönnum í Bandaríkjunum.
Kvöldið áður var fimmtugur Finni
handtekinn fyrir að kasta bensín-
sprengju á gistiheimili fyrir hælisleit-
endur í borginni Kouvola.
Fyrr í vikunni sagði Frans
Timmermans, varaforseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, að hætta væri á því að flótta-
mannastraumurinn yrði vatn á myllu
þjóðernisöfgamanna í álfunni. Brýnt
væri því að auka eftirlitið við ytri
landamæri Schengen-svæðisins og
tryggja að efnahagslegir flóttamenn,
sem hefðu ekki rétt á hæli, yrðu flutt-
ir til heimalanda sinna.
Meiri hætta af
þjóðernisöfgum
Öryggislögregla Noregs óttast að
þjóðernisöfgamenn beiti ofbeldi
AFP
Á flótta Stúlka er kom með gúmmí-
báti til grísku eyjunnar Lesbos.
Rússnesk yfirvöld hafa hafið nýja
rannsókn á drápunum á síðasta keis-
ara Rússlands og fjölskyldu hans ár-
ið 1918. Meðal annars er ráðgert að
rannsaka bein Nikulásar II keisara
og eiginkonu hans. Rússnesk rann-
sóknarnefnd segir að ráðast þurfi í
frekari athuganir til að staðfesta að
fjórar beinagrindur sem fundist hafa
séu sannarlega líkamsleifar meðlima
Romanov-ættarinnar.
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
óskaði eftir því í júlí sl. að ný rann-
sókn færi fram, en fyrri rannsókn
málsins var hætt 1998. Sumir innan
kirkjunnar draga í efa að líkamsleif-
arnar sem fundist hafa séu sannar-
lega bein meðlima keisarafjölskyld-
unnar.
Fundust í fjöldagröf
Romanov-keisarafjölskyldan var
hrakin frá völdum árið 1917,
skömmu áður en bolsévikar steyptu
bráðabirgðastjórn landsins af stóli.
Keisarinn, keisarynjan Alexandra,
dætur þeirra Anastasia, Maria, Olga
og Tatiana, sonurinn Alexei og fjórir
starfsmenn fjölskyldunnar voru
myrt í afskekktu húsi í Jekaterín-
burg árið 1918.
Líkamsleifar níu manna fundust í
fjöldagröf árið 1993 en lík ríkiserf-
ingjans Alexei og Mariu prinsessu
fundust á öðrum stað árið 2007.
Erfðarannsóknir staðfestu að um lík
barna keisarans væri að ræða.
Keisarahjónin Nikulás og Alex-
andra og þrjár dætra þeirra voru
jarðsett í Dómkirkju Péturs og Páls í
Pétursborg hinn 17. júlí 1998. Þau
voru tekin í dýrlingatölu árið 2000.
Drápin rannsökuð á ný
Rannsókn á beinum Rússlandskeisara og fjölskyldu hans
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, og Xi Jinping, forseti Kína,
hétu því að grípa til aðgerða til að
stemma stigu við loftslagsbreyt-
ingum í heiminum af mannavöldum
á blaðamannafundi eftir viðræður
þeirra í Hvíta húsinu í Washington í
gær.
Umhverfisverndarsamtök fögn-
uðu loforðum leiðtoganna um að-
gerðir til að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda sem eru taldar
valda loftslagsbreytingum. Obama
fór einnig lofsamlegum orðum um
loforð kínverskra stjórnvalda í lofts-
lagsmálum en gagnrýndi mannrétt-
indabrot á andófsmönnum í Kína og
framgöngu Kínverja í deilum við
grannríki um eyjar í Suður-
Kínahafi. Hann hvatti einnig Kín-
verja til að virða réttindi Tíbeta og
hefja viðræður við Dalai Lama, and-
legan leiðtoga þeirra, eða fulltrúa
hans.
AFP
Forsetar Barack Obama og gestur hans, kínverski leiðtoginn Xi Jinping,
við móttökuathöfn í garði Hvíta hússins í Washington-borg í gær.
Loforðum um aðgerðir
í loftslagsmálum fagnað