Morgunblaðið - 26.09.2015, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.09.2015, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015 • Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn velur Spiegelau og nú getur þú notið þeirra • Platinumlínan okkar er mjög sterk og þolir uppþvottavél Spiegelau er ekki bara glas heldur upplifun Við bjóðum Spiegelau í fallegum gjafaöskjum sem er tilvalin tækifærisgjöf eða í matarboðið. • Rauðvínsglös • Hvítvínsglös • Kampavínsglös • Bjórglös • Karöflur • Fylgihlutir Hágæða kristalglös frá Þýskalandi Allt fyrir eldhúsið Verð frá 2.490 kr. Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14. Heimsbikarmótið semstendur yfir í Bakú,höfuðborg Aserbaíd-sjan, hefur reynst meiri þolraun fyrir þátttakendur en gengur og gerist á þessum vettvangi. Þarma er teflt um tvö sæti af átta í áskorendamótinu sem fram fer á næsta ári. Þó að kappskákirnar útheimti mikla orku hafa þeir dagar þar sem teflt er til úrslita sé staðan jöfn ekki síður verið erfiðir. Það hefur tekið meira en fimm klst. að útkljá sum einvígin. Dæmi þar um er einvígi Nakamura og Nepomniachtchi í 3. umferð sem lauk með sigri þess fyrrnefnda. Lokaviðureign þeirra var svonefnd „Armageddon-skák“; Nepo fékk fimm mínútur, hafði hvítt og varð að vinna, Nakamura fékk fjórar mínútur en dugði jafn- tefli og hafði sigur að lokum. Upp spruttu deilur eftir á þegar í ljós kom að Nakamura hrókeraði með báðum höndum sem er ekki leyfi- legt samkvæmt reglum. Atvikið kom fram í útsendingunni en samt var kröfu „Nepo“ vísað frá og „tísti“ hann hressilega á Twitter um andstæðing sinn og úrskurð dómaranna. Nakamura vann Adams í næstu umferð en féll svo úr leik í fimmtu umferð þegar hann mætti þessum dularfulla hr. X sem alltaf annað veifið skýtur upp kollinum í keppnum af þessi tagi; Úkraínumaðurinn Pavel Elj- anov hefur teflt tíu kappskákir á heimsbikarmótinu og hlotið 8 ½ vinning. Hann komst áfram á fimmtudaginn ásamt Hollend- ingnum Giri en einvígin milli Wei Yi og Peters Svidler, og Karjakin og Mamedyarov færðust yfir í styttri skákirnar sem fram fóru í gær. Gott er að fylgjast með á Chess24. Af Kínverjunum sem hófu keppni stendur nú aðeins Wei Yi eftir. Þessa dagana þegar verið er að frumsýna kvikmyndina Pawn Sacrifice rifjast upp fyrir mörgum sá háttur Bobbys Fischers í „ein- vígi aldarinnar“ að teygja sig eftir „eitruðu peði“. „Eitraða peðs af- brigði“ Sikileyjarvarnar kom upp í einni skák kínverska undrabarns- ins í Baku gegn þeim sem sló Ar- onjan úr keppni á fyrri stigum: Baku 2015: 3. umferð: Wei Yi – Alexander Aresc- henko Sikileyjavörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Db6 8. Dd2 Dxb2 9. Hb1 Spasskí lék 9. Rb3 gegn Fisc- her. 9. … Da3 10. e5 h6 11. Bh4 dxe5 12. fxe5 g5 13. exf6 gxh4 14. Be2 Da5 15. O-O Rd7 16. Hbd1!? Áður hafði verið leikið 16. Kh1. Hvort Wei Yi hefur undirbúið þetta fyrirfram er ómögulegt að segja. 16. … h3 17. g3 Bb4 18. De3 Bxc3 19. Rxe6! Mannsfórnin er eina leiðin fyrir hvítan til að brjótast í gegn. 19. … De5? Það er ekki heiglum hent að tefla „eitraða peðs afbrigðið“. Hvítur á rakið jafntefli eftir 19. … fxe6 20. Dxe6+ Kd8 21. De7+ Kc7 22. Dd6+ o.s.frv. En það er ekkert meira að hafa er nið- urstaða skákreiknanna. Samt hafnar Areschenko þessari leið. Hann einn veit ástæðuna. 20. Rc7+ Kf8 21. Dxe5 Bxe5 22. Rxa8 Rxf6 23. Rb6 Kg7 24. Rxc8 Hxc8 25. Hf5 Bb8 26. Hdf1 Ba7 27. Kh1 Bd4 28. Bd3 Hc6 29. g4! Endataflið vefst ekki fyrir Wei Yi frekar en aðrir þættir skák- arinnar. 29. … Hc7 30. g5 hxg5 31. Hxg5 Kf8 32. Hg3 Rd5 33. Hxh3 Re3 34. Hf4 Ba7 35. He4 Rd1 36. Hh8 Kg7 37. Hh7+! Kf8 Eða 37. … Kxh7 38. He7+ o.s.frv. 38. Hc4 Bc5 39. Bg6 - og Areschenko gafst upp. „Ekki tefla Sikileyjarvörn gegn ungum skákmönnum,“ segir gam- alt rússneskt spakmæli. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is „Eitraða peðið“ aftur og þessi dularfulli hr. X Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. 25. september er dagur lyfja- fræðinga um allan heim – World Pharmacist day. Í tilefni þess vilj- um við vekja athygli á þeim fjöl- breyttu störfum sem lyfjafræð- ingar sinna hér á landi og um leið hvetja almenning til að nýta sér þjónustu þeirra. Þó að lyfjafræð- ingar séu almennt ekki mjög sýni- leg stétt og ekki alltaf mjög áber- andi í umræðunni um heilbrigðismál, þá eru þeir sú heil- brigðisstétt sem er hvað mest að- gengileg almenningi. Í apótekum landsins eru starf- andi lyfjafræðingar sem viðskipta- vinir geta leitað til með marg- vísleg heilsutengd mál. Hlutverk lyfjafræðinga í apótekum er ekki bara að afgreiða lyf samkvæmt lyfseðlaávísun læknis heldur jafn- framt að veita viðskiptavinum apó- teka ráðgjöf og leiðbeiningar um lyf og lyfjanotkun. Aukin fræðsla til sjúklinga um þau lyf sem þeir nota ýtir almennt undir skynsam- ari lyfjanotkun auk þess sem með- ferð sjúkdóma verður markvissari og betri. Fræðsla um lyf skilar sér einnig í því að draga úr rangri lyfjanotkun, en röng lyfjanotkun er ein ástæða komu á bráða- móttöku sjúkrahúsa og oft inn- lagna í kjölfarið. Lyfjafræði er kennd við Há- skóla Íslands og er nám á meist- arastigi. Í lyfjafræðideildinni starfa fræðimenn í hinum ýmsu faggreinum lyfjafræðinnar, sem einnig sinna kennslu nemenda og hefur deildin verið öflug í rann- sóknum og birtingu greina og það- an hafa komið nokkur sprotafyr- irtæki. Þaðan útskrifast nemendur eftir fimm ára nám og hljóta í kjölfarið réttindi til að starfa sem lyfjafræðingar. Margir lyfjafræð- ingar leita sér áframhaldandi sér- menntunar erlendis og er starfs- vettvangurinn fjölbreyttur. Á sjúkrahúsum starfa lyfjafræð- ingar m.a. við framleiðslu á lyfja- lausnum í æð og ýmiss konar aðra framleiðslu og hafa auk þess um- sjón með blöndun á krabbameins- lyfjum fyrir þá sem þurfa á slíkri lyfjameðferð að halda. Á Land- spítala eru einnig lyfjafræðingar starfandi á bráðamóttöku og fleiri deildum spítalans þar sem þeir veita klíníska þjónustu til sjúk- linga með það að markmiði að tryggja öryggi í lyfjanotkun og hagkvæma nýtingu lyfja. Auk þess vinna lyfjafræðingar náið með læknum og hjúkrunarfræðingum, eru ráðgefandi um lyf og lyfja- meðferðir og taka þátt í að greina vandamál tengd lyfjanotkun sem mögulega geta valdið heilsutjóni. Hér á landi hefur um árabil ver- ið töluverð framleiðsla á lyfjum. Bæði eru hér starfandi smærri sprotafyrirtæki og framleiðslufyr- irtæki sem og stór alþjóðleg lyfja- framleiðslufyrirtæki. Þar gegna lyfjafræðingar mikilvægum störf- um, m.a. við rannsóknir, þróun, gæðaeftirlit, skráningu og viðhald markaðsleyfa lyfja. Lyfjafræð- ingar í lyfjaframleiðslu þurfa að hafa mikla þekkingu á gæða- málum og ströngum kröfum til framleiðsluaðstæðna. Hjá markaðsleyfishöfum lyfja og lyfjaheildsölum starfa einnig lyfjafræðingar sem takast á við fjölbreytt verkefni hvað varðar sölu og markaðssetningu, skrán- ingu og viðhald markaðsleyfa og gæðaeftirlit, auk þess að gegna því mikilvæga hlutverki að veita öðrum heilbrigðisstéttum fræðslu um lyfin og nýjustu rannsóknir þeim tengdar. Innan stjórnsýslunnar starfa lyfjafræðingar m.a. við eftirlit með starfsemi apóteka, heilbrigðis- stofnana, lyfjaframleiðslufyrir- tækja og lyfjaheildsala. Þá vinna margir þeirra við svonefndar skráningar og vinna að því að markaðsleyfi fáist fyrir lyf hér á landi en það er forsenda þess að nauðsynleg lyf séu aðgengileg landsmönnum. Af þessu má sjá að starfsvett- vangur lyfjafræðinga er afar fjöl- breyttur og viðfangsefnin mörg, allt frá því að fást við rannsóknir og þróun til þess að fræða aðrar starfsstéttir og almenning um rétta lyfjanotkun. Lyfjafræðingar eru mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu og við hvetjum landsmenn til að þekkja lyfin sín og lyfjameðferðir og vera meðvit- aða um aðgengi að lyfjafræðingum í apótekum og nýta sér þjónustu þeirra. Mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustunni Eftir Evu Ágústsdóttur, Elínu Ingibjörgu Jacobsen og Hlíf Þorbjörgu Jónsdóttur » Við hvetjum lands- menn til að nýta sér þjónustu lyfjafræðinga í apótekum. Eva Ágústsdóttir Elín og Eva starfa í sjúkrahúsapóteki Landspítala. Hlíf starfar hjá Actavis. Elín Ingibjörg Jacobsen Hlíf Þorbjörg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.