Morgunblaðið - 26.09.2015, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Bergþór Ólason á fertugsafmæli í dag en hann er framkvæmda-stjóri Loftorku í Borgarnesi. „Lífið snýst mikið um steypu ogeiningar þessi misserin. Meginframleiðslan hjá okkur eru hús-
einingar í allar gerðir bygginga, ásamt fjölbreyttri sérframleiðslu,
hvort sem það eru fíngerðar innréttingar eða stórar einingar fyrir stór-
iðju eða brúarframkvæmdir og allt þar á milli og svo framleiðum við
steinrör og brunna í frárennslislagnir.“
Þótt Bergþór starfi í Borgarnesi býr hann á Akranesi. „Ég er ættaður
héðan, er Skagamaður og Húnvetningur að uppruna en ólst upp í Borg-
arnesi.“
Bergþór nýtir frídaga sína í stangveiði og fer til rjúpna á haustin.
„Ég hef einnig verið að veiða hreindýr undanfarin ár, var ekki dreginn
út í ár en treysti á að komast að ári.
Í stangveiðinni fer ég mest í Grímsá í Borgarfirði. Það var alveg
prýðileg veiði í henni obbann af sumrinu. Ég hef verið að leiðsegja þar
síðan um tvítugt og síðan ég komst á fullorðinsaldur hef ég haldið einni
viku þar uppfrá með góðum vinum sem hafa veitt í ánni í áratugi.“
Foreldrar Bergþórs eru Óli Jón Gunnarsson, fv. bæjarstjóri í Borg-
arnesi og Stykkishólmi og fv. framkvæmdastjóri Loftorku og núverandi
starfsmaður á plani, og Ósk Bergþórsdóttir, loftskeytamaður og hús-
móðir. Bræður Bergþórs eru Jóhann Gunnar flugmaður og Rúnar há-
skólanemi.
„Planið á afmælinu er að líta til með hestum framan af degi með kær-
ustunni og fara síðan út að borða með fjölskyldunni og svo verður slegið
upp partíi síðar.“
Í Taílandi Bergþór á afmælisdegi sínum við Phi Phi-eyju í fyrra.
Nýtir frídagana
flesta í stangveiði
Bergþór Ólason er fertugur í dag
J
óna Valgerður fæddist í
Reykjarfirði í Grunnavík-
urhreppi 26.9. 1935 og ólst
þar upp og á Ísafirði. Hún
lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Ísafirði,
stundaði nám við húsmæðraskólann
Ósk, við Tónlistarskóla Ísafjarðar,
stundaði starfsleikninám kennara og
sótti fjölda námskeiða, m.a. í tungu-
málum, bókfærslu, tölvunotkun og
skógrækt.
Jóna Valgerður vann í Apóteki Ísa-
fjarðar 1952-58, sinnti heimilis- og
hlutastörfum meðan börnin voru að
alast upp og tók þá m.a. að sér fata-
saum heima fyrir. Hún var stunda-
kennari við Barnaskólann í Hnífsdal
1958-63, við Barnaskóla Ísafjarðar
1989-91 og 1995-96, var útibússtjóri
Kaupfélags Ísfirðinga í Hnífsdal
1978-81, starfaði á Endurskoðunar-
og bókhaldsskrifstofu Guðmundar E.
Kjartanssonar 1981-91, var alþm.
Vestfirðinga 1991-95 og sat þá m.a. í
fjárlaganefnd, samgöngunefnd og
vestnorræna þingmannaráðinu. Hún
hefur verið búsett í Reykhólahreppi
frá 1996, var oddviti þar 1998-2000 og
sveitarstjóri 1999-2002.
Jóna Valgerður stjórnaði Mennta-
smiðju kvenna á Laugum í Sælings-
dal 2002-2003 og á Varmalandi 2004-
2005, sinnti verkefnum hjá Fjórð-
ungssambandi Vestfirðinga
2003-2004 og hefur verið skógarbóndi
í Mýrartungu 2 frá 2001.
Jóna Valgerður var formaður
Kvenfélagsins Hvatar í Hnífsdal
1974-82 og 1986-88, var formaður
Sambands vestfirskra kvenna 1983-
89, sat í stjórn Kvenfélagasambands
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, fyrrv. alþm. og sveitarstj. – 80 ára
Börnin á barnsaldri Hér eru börn Jónu Valgerðar og Guðmundar að undanskildum þeim yngsta, Jóhannesi Bjarna.
Úr barnauppeldi í pólitík
Hjónin Jóna Valgerður með eiginmanni sínum Guðmundi sem lést árið 2000.
Kópavogur Hanna
Ingibjörg Garðars-
dóttir fæddist 19.
mars 2014 kl. 6.29.
Hún vó 3.595 g og
var 51 cm löng. For-
eldrar hennar eru
Thelma Smáradótt-
ir og Garðar Sig-
urðsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.