Morgunblaðið - 26.09.2015, Page 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015
Barnakvikmyndahátíð RIFF hefst í dag í Norræna hús-
inu og stendur hún til mánudags. Í dag kl. 11 og 13
verður boðið upp á stuttmyndadagskrá fyrir börn,
fyrst fyrir 10 ára og eldri og svo 4 ára og eldri. Kl.
14.30 verður hátíðin sett með sýningu á veggspjöldum
sem send voru í keppnina Lundi litli fer í bíó og kl. 15
verður opnunarmynd hátíðarinnar, Gullni hesturinn,
sýnd og leikkonan Thelma Marín Jónsdóttir mun leiða
börn og fullorðna í gegnum dagskrána.
Á morgun verða sýndar stuttmyndir fyrir 6 ára og
eldri kl. 11 og kl. 13 fyrir 4 ára og eldri og mun leik-
kona einnig leiða börn í gegnum dagskrána. Kl. 15
verða svo sýndar stuttmyndir fyrir 14 ára og eldri og
íslensk óvissumynd og sérstakir leynigestir mæta á
svæðið.
Á mánudaginn fer fram lokahóf Barnakvikmyndahá-
tíðar RIFF kl. 16.30 og segir í bæklingi hátíðarinnar að
þeir sem mæti á rauða dregilinn skuli vara sig á pappa-
rössum sem muni reyna að ná myndum af þeim. Leik-
konan Thelma Marín mun taka á móti gestum, tilkynnt
verður um sigurvegara í keppninni Lundi litli fer í bíó
og eistneska kvikmyndin Leynifélag Súpubæjarins
verður sýnd með enskum texta. Frekari upplýsingar
um dagskrá RIFF má finna á riff.is.
Opnunarmyndin Stilla úr teiknimyndinni Gullni hesturinn
sem er opnunarmynd Barnakvikmyndahátíðar RIFF.
Barnakvikmyndahátíð RIFF
sett í Norræna húsinu í dag
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Efterskalv er fyrsta kvik-mynd sænska leikstjóransMagnus von Horn ogskrifaði hann jafnframt
handrit hennar og byggði á raunveru-
legu sakamáli. Í myndinni er rakin
saga unglingspilts, Johns, sem snýr
aftur heim eftir að hafa lokið tveggja
ára refsivist fyrir ónefndan glæp.
John býr hjá föður sínum sem er
bóndi og yngri bróður og ljóst er frá
byrjun að glæpurinn sem hann
framdi olli djúpum sárum sem hafa
ekki náð að gróa á meðan hann tók út
sína refsingu. Það sama á við um hið
litla samfélag sem John og fjölskylda
tilheyra og verður hann m.a. fyrir
árás ónefndrar konu í matvöruversl-
un, greinilegt að hann hefur valdið
henni óbætanlegum skaða. John snýr
aftur í skólann sinn og verður þar fyr-
ir ofsóknum samnemenda sinna,
einkum nokkurra ungra pilta sem eru
ekki sáttir við að honum hafi verið
leyft að hefja aftur skólagöngu. Undir
lok myndar kemur loks í ljós hver
glæpurinn var og kemur þá ekki svo
mjög á óvart, áhorfendur væntanlega
búnir að leysa gátuna. Spurningin
sem þá kviknar er hvort John takist
að laga sig aftur að samfélaginu,
hljóta fyrirgefningu synda sinna eða
hvort hætta stafi af honum.
Efterskalv er kuldaleg mynd, sam-
töl stutt og lítið gefið upp og mynda-
takan undirstrikar hina miklu ein-
angrun aðalpersónunnar. Má þar
m.a. nefna nokkur atriði þar sem
John er myndaður aftan frá og faðir
hans fylgist með honum úr fjarlægð,
augljóslega kvalinn á sálinni yfir
gjörðum sonar síns. Þótt leikarar
standi sig prýðilega og þá sérstaklega
poppstjarnan Ulrik Munther sem
leikur John og Mats Blomgren sem
leikur föður hans, þá vantar meira
kjöt á beinin. Myndin er afar hæg ,
stundum langdregin og erfitt að hafa
samúð með John þar sem maður veit
ekki framan af hvað hann hefur gert
af sér. Það hefur þó væntanlega verið
tilgangur leikstjórans. Þá er einnig
erfitt að átta sig á því hvaða tilgangi
ein persónan gegnir, afi Johns sem
gengur ekki heill til skógar og virðist
einungis vera í myndinni til að sýna
áhorfandanum hversu erfitt lífið er
hjá bóndanum sem þarf bæði að
hugsa um elliæran föður sinn og son
sem hefur verið útskúfað úr sam-
félaginu. En góður leikur og áhrifa-
mikil myndataka í bland við nokkur
rismikil, dramatísk atriði lyfta mynd-
inni upp yfir meðallag.
Refsing John mætir miklu mótlæti eftir að hafa tekið út sína refsingu fyrir alvarlegan glæp.
RIFF
Efterskalv/Framhaldslíf bbbnn
Leikstjóri: Magnus von Horn. Aðal-
hlutverk: Ulrik Munther, Mats Blom-
gren, Alexander Nordgren og Ellen
Mattsson. Frakkland, Pólland, Svíþjóð,
2015. 102 mín. Flokkur: Vitranir.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Refsing á refsingu ofan
Háskólabíó, 1. okt. kl. 20.15. Spurt
og svarað-sýning.
Bíó Paradís 2. okt. kl. 19.45. Spurt
og svarað-sýning.
Susanne Bier er einn þekkt-asti leikstjóri Dana. Hún áfjölda mynda að baki ogfékk Óskarsverðlaunin fyrir
mynd sína Hefndin (Hævnen) árið
2011. Í myndinni Annað tækifæri
segir frá tveimur lögregluþjónum,
Andreasi og Simoni. Andreas er
hamingjusamur fjölskyldufaðir og
elskar nokkurra mánaða gamlan son
sinn. Simon situr hins vegar að
sumbli á næturklúbbum á síð-
kvöldum og virðist við það að missa
stjórn á lífi sínu.
Félagarnir eru einn daginn kall-
aðir til vegna heimilisofbeldis og að-
koman er ekki geðsleg. Við þeim
blasir eiturlyfjagreni þar sem býr
par með lítinn dreng á aldur við son
Andreasar. Vanrækt barnið sést
liggja í eigin skít og hlandi. Andreas
þekkir karlinn í íbúðinni, Tristan, og
ofbýður ástandið. Honum finnst
glæpsamlegt að svona fólk fái að ala
upp barn og er ekkert að fela tilfinn-
ingar sínar. Helst vill hann láta taka
barnið af þeim og skilur ekki í kerfi,
sem tryggir rétt slíks ógæfufólks.
Heimili Andreasar og eiturlyfja-
grenið eru algerar andstæður, sem
Bier dregur upp skörpum dráttum.
Annað heimilið er eins og glans-
mynd, hitt óhreint og ömurlegt. Það
eina sem amar að er að sonur Andr-
easar grætur á nóttunni, en það
þekkja allir foreldrar.
Nokkru eftir að félagarnir eru
kallaðir í eiturlyfjagrenið dynur
ógæfan yfir og heimur Andreasar
splundrast. Án þess að segja of mikið
þá grípur hann til örþrifaráðs til að
bjarga fjölskyldu sinni og kemur eit-
urlyfjagrenið þar við sögu.
Mikið einvalalið leikara kemur
fram í myndinni. Nikolaj Coster-
Waldau, sem margir þekkja sem Ja-
mie Lannister í þáttunum Krúnu-
leikarnir, fer á kostum í hlutverki
Andreasar. Maria Bonnevie, sem
varð þekkt – í það minnsta á Íslandi –
fyrir leik sinn í mynd Hrafns Gunn-
laugssonar, Hvíti víkingurinn, er
mjög eftirminnileg í hlutverki Anne,
eiginkonu Andreasar. Þá er nauðsyn-
legt að hrósa Nikolaj Lie Kaas, sem
oft hefur leikið geðþekkari persónur,
fyrir túlkun sína á smáglæpamann-
inum Tristan. Lykke May Andersen,
sem er fyrrverandi fyrirsæta, er frá-
bær í hlutverki Sanne, kúgaðrar
barnsmóður Tristans. Bier mun hafa
talið hana á að leika í myndinni og á
hún ugglaust eftir að stíga fleiri spor
á leikarabrautinni.
Ulrich Thomsen er einnig fínn í
hlutverki drykkfelldu löggunnar,
þótt hann falli nokkuð í skuggann af
meðleikurum sínum. Í fyrstu er eins
og myndin muni að einhverju leyti
hverfast um vandamál hans, en þeg-
ar á líður snúast hins vegar hlut-
verkin við og hann verður haldreipi
félaga síns.
Annað tækifæri er sálfræðitryllir
og á köflum verður óþægilegt að
horfa á hana. Örþrifaráð Andreasar
reynist vitaskuld glapræði, en það
getur verið erfitt að vinda ofan af at-
burðarás þegar hún er hafin.
Mótleikur Tristans er síðan öfl-
ugur, þótt hann geri sér engan veg-
inn grein fyrir því að hann er leik-
soppur í ráðabruggi lögreglu-
mannsins.
Bier vekur margar spurningar um
hlutskipti mannsins, um gæfu og
gjörvileika, fátækt og velmegun, hið
maklega og ómaklega. Áhorfandinn
fær samúð með Andreasi og Anne,
en fyllist ógeði á Tristan og Sanne.
Samfélagið er tilbúið að trúa öllu upp
á þau síðarnefndu. Fyrirmyndarfjöl-
skyldunni er teflt fram gegn dreggj-
um samfélagsins. Að vissu leyti er
myndin tilraun til að fá áhorfandann
til að afhjúpa eigin fordóma, þótt
ekki sé víst að margir gangi út af
henni staðráðnir í að næst muni þeir
ekki dæma eftir útlitinu.
Annað tækifæri er um margt for-
vitnileg mynd, en söguþráðurinn er á
köflum þannig að ýta þarf skynsem-
inni til hliðar til að taka mark á
henni. Þar er spurningin hvernig
venjulegur lögregluþjónn hafi efni á
einbýlishúsi við sjóinn minnsta
vandamálið. Fantaleikur, ísmeygi-
legur óhugnaður og óvæntar fléttur
lyfta myndinni hins vegar upp.
Óhugnaður, örþrifaráð og glapræði
Óvæntar vendingar Nikolaj Lie Kaas er sérlega fráhrindandi í hlutverki
fíkilsins og smáglæpamannsins Tristans í nýjustu mynd Susanne Bier.
RIFF
Annað tækifæri/En chance til
bbbmn
Leikstjóri: Susanne Bier. Leikarar: Niko-
laj Coster-Waldau, Ulrich Thomsen,
Maria Bonnevie, Nikolaj Lie Kaas og
Lykke May Andersen. Danmörk, 2014.
Danska, 102 mín. Flokkur: Sjónarrönd.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: 26. sept. kl. 16.00, 3.
okt. kl. 16.00, 4. okt. kl. 22.00.
EVEREST 3D 2,5,8,10:30
SICARIO 8,10:30 (P)
HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 2,4
HÓTEL TRANSYLV. 2D ENS 6 (ótextuð)
HÓTEL TRANSYLV. 3D ÍSL 2
MAZE RUNNER 8
NO ESCAPE 10:40
ABSOLUTELY ANYTHING 6
SKÓSVEINARNIR 2D ÍSL 4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
POWERSÝNING
KL. 10:35
FRÁBÆRA, ÓVIÐJAFNANLEGA
söngkonan og
skemmtikrafturinn
L E O N C I E
vill skemmta um allt land,
í alls kyns mannfögnuðum
og skemmtunum með alla
sína helstu bestu smelli
og jólalög á ensku.
(Aðeins á opinberum stöðum,
eins og félagsheimilum,
hótelum, klúbbum o.sv.).
Sími 854 6797
leonciemusic@gmail.com
www.youtube.com/icyspicyleoncie
Facebook/leoncie.india