Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Page 4
4
Það eru viðburðaríkir dagar innan BHM þessa dagana og eru
kjaramálin þar efst á blaði. Það hefur
verið gott að sjá og upplifa að við erum
öll tilbúin að sýna samstöðu okkar í
verki. Það voru ríflega þrjú þúsund
félagar BHM sem fóru í fjögurra
klukkustunda allsherjarverkfall þann
9.apríl síðastliðinn en hátt í sex hundruð
manns eru þegar í ótímabundnu
verkfalli. Við förum fram á að menntun
verði metin til launa og að við missum
ekki þekkinguna úr landi. En það
er mikilvægt að samningar við ríkið
náist sem fyrst og við þurfum að
hvetja stjórnvöld til að verða við þeim
sanngjörnu kröfum sem BHM setur
fram.
Það er einlæg ósk stjórnar að
félagsmenn nýti mátt samfélagsmiðlana,
nú þegar kjarabarátta BHM - og þar með
talið IÞÍ - við ríkið stendur sem hæst
og að þið deilið fréttum af viðræðum.
Einnig værum við þakklát ef þið létuð
fréttir og greinar berast á fésbókarsíður
ykkar í gegn um fésbókarsíðu félagsins,
en þannig fær málstaður og starf
félagsins enn frekari kynningu.
Það er nú í þriðja sinn sem BHM
gengst fyrir rafrænni kjarakönnun
sem ætlað er að gefa yfirgripsmikla
mynd af kjaramálum félagsmanna.
Í aðdraganda kjaraviðræðna hafa
notagildi kjarakannana síðustu tveggja
ára sannað sig svo um munar, enda
hefur góð þátttaka í þeim vakið
verðskuldaða athygli. Félagsmenn eru
eindregið hvattir til að taka þátt í þessari
árlegu könnun og leggja þannig sitt af
mörkum til að markmið hennar nái
fram að ganga.
Á aðalfundi sem lauk síðastliðna viku
var Þórunn Sveinbjarnardóttir kosinn
nýr formaður BHM. Við óskum henni
til hamingju og velfarnaðar í starfi.
Stjórn Iðjuþjálfafélagsins hef-
ur ákveðið að halda svokallað fram-
tíðarþing í haust en þar viljum við bjóða
Kæru félagsmenn
Pistill formanns
Ósk Sigurðardóttir
ykkur öll velkomin til að ræða framtíð
félagsins, m.a. framtíð Iðjuþjálfa
blaðsins, stefnur og strauma. Við
viljum heyra hvað þið eruð að gera og
hvað þið viljið að við séum að gera.
Framtíðarþingið verður jafnframt
undirbúningur fyrir afmælisráðstefnuna
okkar en í mars á næsta ári verður
félagið 40 ára. Stefnan er að þetta
verði fagleg og skemmtileg ráðstefna
með áhugaverðum fyrirlesurum og
kynningum af ýmsu tagi. Svo að þetta
geti orðið að veruleika þurfum við á
ykkar aðstoða að halda og óskum við
því eftir áhugasömum til að skipuleggja
þessa viðburði, framtíðarþingið annars
vegar og afmælisráðstefnuna hins vegar.
Það eru viðburðaríkir og spennandi
tímar framundan og ég hlakka til að
takast á við fjölbreytileg verkefni fyrir
hönd félagsins í samvinnu við glæsilegan
hóp fólks í stjórn og nefndum félagsins.
Ósk Sigurðardóttir