Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Qupperneq 17
17
frekar illa. En í dag svara flestir því
að þeir þekki hugmyndafræðina
frekar vel.
2. Hversu mikilvægt telur þú að
unnið sé eftir hugmyndafræði
valdeflingar? Í upphafi voru 12 ekki
vissir á því hvort mikilvægt væri að
vinna eftir þessari hugmyndafræði.
En í dag telja allir það mikilvægt
eða frekar mikilvægt að vinna eftir
hugmyndafræði valdeflingar.
3. Hversu vel telur þú að hug-
myndafræði valdeflingar henti í
vinnu með skjólstæðingum sem eiga
í geðrænum vanda? Í september
voru flestir á því að vinna eftir
valdeflingu hentaði mjög vel en í
dag eru allir sammála því.
4. Hvernig gengur þér að nota
hugmyndafræði valdeflingar í starfi
og/eða lífi þínu? Í upphafi voru
alls níu óvissir um að þeir gætu
notað hugmyndafræðina en núna
er aðeins einn óviss.
5. Hversu líklegt er að þú munir
tileinka þér hugmyndafræði vald-
eflingar í starfi og/eða lífi þínu?
Hér svara flestir því til að þeir muni
tileinka sér hugmyndafræðina og á
það bæði við um fyrri fyrirlögn og
seinni.
6. Hvað þarf til að þú náir enn betur
að tileinka þér hugmyndafræði
vald eflingar svo hún nýtist þér í
starfi og/eða lífi þínu? Eftir fyrri
fyrirlögn þá nýttum við okkur þau
svör sem við fengum til að vinna
að fræðsluefni fyrir bæði íbúa og
starfsfólk.
Ávinning verkefnisins teljum við fyrst
og fremst vera þann að einstaklingur,
sem hefur tileinkað sér hugmyndafræði
valdeflingar, öðlast meira „vald“ til að
taka ákvarðanir og stýra sínu eigin lífi,
sjálfstæði hans eykst og hann upplifir
aukna þátttöku í samfélaginu til áhrifa
og breytinga. Hann á auðveldara með að
þekkja rétt sinn og koma reynslu sinni á
framfæri og um leið stuðla að betri sam
félagsgeðheilbrigðisþjónustu, auknum
mannréttindum og minni fordómum
gagnvart geðsjúkdómum í samfélaginu.
Næstu skref - innleiðing
Búsetudeild Akureyrarbæjar sam-
þykkti nýverið 10 ára áætlun. Þar
var ákveðið að hugmyndafræði vald-
eflingar væri önnur af tveimur
meginhugmyndafræðum sem deildin
ætlaði sér að vinna eftir í framtíðinni.
Innleiðingarferlið hófst á þessu ári
þegar allir starfsmenn búsetudeildar
sóttu fjögurra klukkustunda námskeið
í hugmyndafræðinni. Næstu skref í
innleiðingarferlinu er að þjálfa upp
fleiri leiðbeinendur sem geta tekið að
sér forystuhlutverk við innleiðingu
valdeflingar. Áætlað er að leita upp
áhugasama fagaðila hjá búsetudeild sem
eru tilbúnir að taka að sér þetta verkefni
og stuðla þannig að frekari útbreiðslu
vald eflingarinnar inn í þjónustu deild
arinnar. Einnig er á stefnuskrá að halda
ráðstefnu á landsvísu þar sem farið
verður yfir niðurstöður
þess verkefnis sem
lagt var af stað með
í upphafi, þ.e. að efla
og styrkja valdeflingu
og notendasamráð í
þjónustu við fatlað
fólk. Þar munu full-
trúar frá búsetudeild Akureyrarbæjar
og Sveitarfélagsins Árborgar kynna
niðurstöður sinnar vinnu og bera saman
hvað gekk vel og hvað betur mætti fara.
Fleiri hugmyndir eru einnig í deiglunni
eins og að fara á ráðstefnu einhvers
staðar erlendis og að útbúa stutt
myndband sem byggi á reynslu notenda
og aðstandenda sem unnið hafa eftir
hugmyndafræði valdeflingar.
Hugmyndafræðin – þjónandi
leiðsögn (Gentle teaching)
Þjónandi leiðsögn er hugmynda-
og aðferðafræði sem byggir á ein-
staklingsmiðaðri nálgun þar sem
samskipti á milli starfsfólks og notenda
eru þungamiðjan. Alúð, vinátta,
um hyggja, tengsl og hvatning eru
grundvallaratriði í samskiptum en
skilyrt umbun og refsingar eru ekki
viðurkenndar sem aðferð. Skipulag og
lausnir byggðar á mannlegum gildum
og kærleika eru notaðar til að aðstoða
einstaklinginn til þess að fá dýpri skilning
á daglegum viðfangsefnum og athöfnum,
hann hvattur til að setja sér markmið og
veitt aðstoð við að ná þeim.
Hugmyndafræðin byggir á fjórum
grunnstoðum hvað varðar samskipti en
þær eru: Traust/tengsl, veita kærleika og
taka á móti kærleika, ásamt þátttöku í
eigin lífi. Hún á því góðan samhljóm við
hugmyndafræði valdeflingar sem fjallað
var um hér að framan.
Forsagan
Árið 1992 kom til Akureyrar
Bandaríkjamaðurinn Daniel C. Hobbs
en hann er einn af upphafsmönnum
hugmyndafræðinnar. Daniel vann í
nokkur skipti með starfsmönnum og
lagði grunn að áframhaldandi starfi
með íbúum sem áttu við margvíslegar
og flóknar fatlanir að stríða. Árangur
þeirrar vinnu varð fljótt mikill og hefur
æ síðan verið sá þáttur sem hefur skipt
hvað mestu máli í starfinu á Akureyri
með einstaklinga sem eiga við flóknar
atferlisraskanir að stríða. Þau gildi,
aðferðir og nálgun sem hugmyndafræðin
kennir hefur fyrir löngu sannað gildi sitt
í vinnu okkar. Á umliðnum árum hefur
skilningur á mikilvægi samskipta og
mannlegra tengsla verið
fyrirferðarmikill þáttur í
öllu starfi með fólki og
talinn vera grundvöllur
árangurs.
H u g my n d a f r æ ð i n
er upprunnin í Oma-
ha, Nebraska, í Banda-
ríkjunum. John McGee er upp-
hafsmaður hennar. John eyddi ungur
maður mörgum árum í Brasilíu við
að aðstoða götubörn. Börnin bjuggu
við ömurlegar aðstæður en umhyggja
þeirra og hlýja í hans garð og annarra
vakti hann til umhugsunar um hvað
samskipti samlanda hans í garð annarra
væru oft fábrotin. Hann átti geðfatlaðan
bróður og upplifði þjónustu og
framkomu við hann með þeim hætti
að nauðsynlegt væri að gera breytingar.
Hann einsetti sér að finna leiðir til að
auka gæði þjónustu við fatlað fólk þar
sem þjónustan skyldi byggð á kærleika
og virðingu. Fljótlega bættust fleiri í
hópinn, s.s. Daniel C. Hobbs, sem áttu
það sameiginlegt að geta ekki sætt sig
við þau vinnubrögð sem á þeim tíma
voru viðhöfð í þjónustu við fatlað fólk.
Þetta voru vinnubrögð sem innihéldu
oft og tíðum niðurlægjandi framkomu
og jafnvel andlegar og líkamlegar
refsingar.
Grunngildin
Grunngildi hugmyndafræðinnar: öryggi,
veita kærleika, taka á móti kærleika og
þátttaka lita öll þau samskipti sem við
eigum á degi hverjum. Hugmyndafræðin
kennir okkur að þau séu forsenda þess
að leiðsegja fólki og styðja til þátttöku í
samfélaginu. Rauði þráður í allri vinnu
með fólki er að kenna því að mynda
tengsl við aðra þannig að það geti átt
uppbyggileg félagsleg samskipti. Það má
nefna sem dæmi að áhersla er lögð á að
finna leiðir til að kenna þeim sem búa
við ótta og/eða mikið óöryggi og kunna
ekki að veita né taka á móti kærleika.
Fyrsti hlutinn er að kenna: ,,Þú ert
„Með mér ertu
öruggur og elskaður...
ekki vera hræddur...
ég mun ekki skaða
þig… .