Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Side 21
21
ótímabundna að stoð annarrar þjónustu
eins og heimahjúkrunar. Mat á tveggja
ára tímabili sýndi, að af þeim sem nýttu
sér þjónustu endurhæfingarverkefnisins
þurftu 45% enga hjálp, 40% þurftu
minni hjálp en þeir hefðu annars þurft
og 15% fengu sömu hjálp og þeir höfðu
fengið áður (Kjellberg ofl.,2013).
Fredericia hefur þróað hugmyndir
sínar um endurhæfingarmódel og frá
2010 hafa þeir unnið að því að innleiða
þær í alla þjónustu við eldri borgara.
Nýja verkefni sveitarfélagsins er byggt á
„Sem lengst við stjórnvölinn í eigin lífi“,
og kallast „Hversdagsrehabelitering“
eða „Endurhæfing við athafnir dag
legs lífs“. Það virkar þannig að
allir núverandi notendur þjónustu
sveitar félagsins eru endurmetnir af
starfsmanni Endurhæfingarteymisins.
Hverjum notanda bjóðast 32 tímar á
viku frá einhverjum fagaðila teymisins.
Gerður er nokkurs konar samningur
með markmiðum skjólstæðingsins,
verkefnum hans og tímasetningu
endur mats. Sjúkraliðar og félagsliðar sjá
um þjálfunina undir leiðsögn og með
aðstoð Endurhæfingarteymis, iðjuþjálfa,
hjúkrunarfræðings, sjúkraþjálfa og
verkefnastjóra. Í Fredericia hefur þetta
fyrirkomulag þegar sannað gildi sitt
félagslega og fjárhagslega á einungis
nokkrum árum (Kjellberg ofl.,2013).
Velferðarráð Reykjavíkur ákvað
að skoða þessa hugmyndafræði og
mánudaginn 5. janúar 2015 hófst
tilraunaverkefnið „Endur hæfingar teym
ið“ hjá Heima þjónustu Reykjavíkur.
Undirbúningur hafði staðið síðan
haustið 2014 þegar fjármögnun fékkst til
verkefnisins frá Velferðarráðuneytinu,
Reykjavíkurborg og Sjúkratryggingum
Íslands .Mikil vinna hefur farið í þjálfun,
upplýsingaöflun og skipulagningu.
Tveir starfsmenn teymisins, Sigurlína
Andrésdóttir verkefnastjóri og Ásbjörg
Magnúsdóttir iðjuþjálfi, fóru í heimsókn
til Fredericia og fengu nánari kynningu
á hugmyndafræðinni og starfseminni
hjá þeim. Niðurstaðan var að byrja
svipað og gert var í Fredericia árið 2008
og samanstendur Endurhæfingarteymið
af verkefnastjóra, iðjuþjálfa, hjúkrunar-
fræðingi, sjúkraþjálfara, tveimur
félags liðum og tveimur sjúkraliðum.
Þann 5. janúar byrjaði einnig Guðrún
Friðriksdóttir iðjuþjálfanemi, sem
tók virkan þátt í teyminu í rúmar
7 vikur. Allar beiðnir, sem berast
Heimaþjónustu Reykjavíkur, eru skoð-
aðar með tilliti til þess hvort þær henti
Endurhæfingarteyminu eða ekki. Til að
byrja með eru aðeins teknir til greina
þeir, sem búa í efri byggð Reykjavíkur
(Breiðholt, Árbæ, Grafarvogi og
Grafarholti) og eru að fá þjónustu í
fyrsta skipti, að undanskildum þrifum.
Iðjuþjálfi fer í fyrstu heimsókn, tekur
viðtal við skjólstæðinginn og í sumum
tilfellum aðstandendur og metur
aðstæður á heimilinu
og í félagslegu umhverfi
skjólstæðingsins. Ef við-
komandi er líklegur til
að geta nýtt sér þjónustu
Endurhæfingarteym is-
ins leggur iðju þjálfinn
CO PM (Cana dian Occ-
u pational Per for m-
ance Measure) fyrir og
sett eru mar kmið til að
vinna að á næstu vikum.
Endurhæfingar teymið
setur síðan upp íhlutunar-
áætlun, ákv eð ur hvaða
þjón usta hæfi til að ná
settum markmiðum skjól stæð ingsins og
endur metur iðju þjálfi nn svo árangurinn
aftur að sex til átta vikum liðnum með
því að leggja COPM fyrir að nýju.
Í Danmörku er byrj að að koma á
tölvu samskiptum milli skjólstæðinga og
heima þjónustunnar. Skjól stæðingurinn
getur séð hvaða markmið eru sett upp,
hvernig á að reyna að ná þeim og jafnvel
séð hvaða starfsmaður er að koma til
hans. Því miður erum við ekki komin
svo langt í tölvuvæðingunni en við látum
viðkomandi fá sín markmið og leiðir
skriflega og allar upplýsingar eru settar í
sérstaka möppu sem skjólstæðingurinn
geymir sjálfur.
Frá 5. janúar hafa 19 einstaklingar
sett sér markmið og notið þjónustu
Endurhæfingarteymisins. Fleiri hafa
fengið heimsókn frá iðjuþjálfa en
teljast ekki þátttakendur í verkefninu
þar sem aðstæður hentuðu ekki
skilyrðum tilraunaverkefnisins. Þessar
ástæður voru fjölbreyttar, til að mynda
endurinnlögn á sjúkrahús, væntanleg
brottför af landinu og einungis
áhugi á að fá aðstoð við þrif en ekki
endurhæfingu.
Endurhæfingarteymið hefur endur
metið nokkra skjólstæðinga sína eftir að
það tók til starfa og hefur árangurinn
verið sérlega góður. Markmiðin hafa
verið eins fjölbreytt og skjólstæðingarnir
eru margir en öll endurspegla þau
mikilvæga þætti í lífi þeirra. Í lok febrúar
hafa tveir skjólstæðingar útskrifast að
fullu úr teyminu en báðir náðu öllum
sínum markmiðum. Þá voru þessir
einstaklingar farnir að setja sín eigin
markmið og bæta sig án aðstoðar
Endurhæfingarteymisins, jafnvel fyrir
útskrift. Annar skjólstæðingurinn finnst
hann hafa jafnað sig svo vel með því
að stefna að markmiðum sínum að
hann upplifir það nánast eins og hann
hafi aldrei verið veikur.
Hinn skjólstæðingurinn
telur markmiðin og
íhlutun Endur hæfingar
teym is ins hafa náð að
stöðva óheillavænlega
niður sveiflu, andlega og
líkamlega, sem hafði leitt
til endurtekinna spítala-
vista undan farin tvö ár.
Báðum ber saman um að
vinnan að markmiðunum
hafi skipt máli en ekki
síður heimsóknir Endur-
hæfingar teym isins, stuðn
ingur þess og hvatning
við að ná markmiðunum.
Endurhæfingarteym ið er tilraunaverk
efni sem standa á til loka maímánaðar
2015. Von andi verður hægt að þróa
kerfi, sem getur virkað á sambærilegan
hátt og í Danmörku. Það er fjárhagslega
hagkvæmt kerfi þar sem ríki og
sveitarfélög sjá hag sínum best borgið
með því að sinna endurhæfingu
og forvörnum í heimahúsum með
virkri þátttöku aldraðra. Ef starfsemi
Endurhæfingarteymis gefur jafn góða
raun og vonir standa til ætti ekkert að
vera því til fyrirstöðu að fara að dæmi
Fredericia og hefja endurhæfingu
daglegs lífs í heimahúsum.
Heimildir
Kjellberg, P. K., Kjallberg, J., Navne, L. E. og
Ibsen, R. (2013). Trænende Hjemmehjælp
i Fredericia Kommune: Organisations- og
økonomievaluering. Kaupmannahöfn:
KORA (Det Nationale Institut for
Kommuners og Regioners Analyse og
Forskning)
Heebøll, K. (2014). Sem lengst við stjórnvölinn
í eigin lífi. Verðlaunaverkefnið „Fredericia“.
Fyrirlestur á ráðstefnu um samþættingu
félags- og heilbrigðisþjónustu. Sótt af
https://www.youtube-nocookie.com/
embed/sykSwnNpiJM
Hagstofan. Spá um mannfjölda 2008–
2050. Hagtíðindi, 2 (2013). Sótt af
https://hagstofa.is/lisalib/getfile.
aspx?itemid=15409
Ef starfsemi
Endurhæfingar
teymis gefur jafn
góða raun og vonir
standa til ætti
ekkert að vera
því til fyrirstöðu
að fara að dæmi
Fredericia og hefja
endurhæfingu
daglegs lífs í
heimahúsum.