Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Side 22
22
Við hvað hefurðu starfað eftir útskrift frá HA?
Eftir útskrift árið 2002 frá Háskólanum
á Akureyri fór ég að vinna sem
iðjuþjálfi á Barna og unglingageðdeild
Landspítalans (20022009). Ég vann
bæði á legu- og göngudeild við að meta,
þjálfa, veita viðtöl og ráðgjöf til barna,
unglinga og fjölskyldna þeirra. Ég var
einnig í átröskunarteymi göngudeildar,
auk þess sem hópavinna var mikilvægur
hluti af minni vinnu, samskipta- og
félagsfærnihópar, sjálfstyrkingarhópar
og hópar fyrir unglinga sem höfðu misst
viljann til að lifa. Síðustu tvö árin á BUGL
starfaði ég sem yfiriðjuþjálfi, þar sem ég
sinnti bæði stjórnunarlegum skyldum
ásamt þverfaglegri skjólstæðingsvinnu
og hópavinnu.
Árið 2007 hóf ég meistaranám í
lýðheilsufræðum við Háskóla Íslands
og útskrifaðist árið 2010 með sérsvið
í áhrifum forvarna og heilsueflingar á
geðheilsu barna og unglinga.
Hvenær fluttirðu út og af hverju?
Ég fluttist út árið 2009 bæði vegna
þess að þáverandi maðurinn minn fékk
spennandi atvinnutilboð sem erfitt var
að hafna og vegna þess að ég hef alltaf
haft ótrúlega mikla útþrá og löngun til at
prófa eitthvað nýtt, svo að þarna gátum
við slegið tvær flugur í einu höggi.
Við hvað hefurðu starfað úti?
Ég hef fengist við eitt og annað. Fyrsta
árið var ég í fjarnámi frá Íslandi þar
sem ég einbeitti mér að því að klára
meistaranámið. Eftir að því lauk tók við
tími þar sem ég lagði mig alla fram við
að læra dönskuna því hún er jú lykillinn
að því að fá atvinnu. Ég vann m.a. við
afleysingarstörf á leikskólum í eitt ár.
Lengst af, eða frá árinu 2012 hef ég unnið
á stað sem kallast Autismecenter Nord-
Bo (www.nordbo.dk) . Autismecenter
Nord-Bo er sjálfseignarstofnun sem
var stofnuð árið 1998 og er úrræði fyrir
unga einstaklinga á aldrinum 15-25
ára, með einhverfurófsraskanir. Nord-
Bo býður upp á fjölbreytta þjónustu
fyrir þennan hóp, m.a. dagúrræði,
búsetuúrræði, verndaðan vinnustað,
verknám á atvinnumarkaðnum, ráð-
gjafardeild (fyrir einstaklinga og fjöl-
skyldur þeirra, skóla, sveitarfélög og
fleiri) og klúbbastarfsemi með ýmsum
tómstundaúrræðum.
Í dagúrræðinu, þar
sem ég vinn, er unn-
ið að því að ko ma jafn-
vægi á líkamlega, sálræna
og fél a g s l e ga líðan not-
endanna. Boðið er upp
á menntun á grunn-
skólastigi auk ráð gjafar
og stuðn ings til að finna
þá námsmöguleika og
námskeið sem í boði
eru eftir grunn skólastig.
Fyrir þá sem hafa
hug á að komast út á
vinnumarkaðinn eru í
boði ýmsir möguleikar
til undirbúnings, m.a. að skoða hvar
áhuginn liggur, hversu marga tíma er
raunhæft að vinna á viku, hvaða kröfur
þarf að standast til að geta fengið
ákveðna vinnu, hvers konar stuðningi
er þörf á og svo mætti lengi telja. Þetta
er gert bæði í gegnum viðtöl, verkleg
fög á staðnum og í gegnum verknám
á vinnumarkaðnum. Dagúrræðið getur
varað allt frá þremur mánuðum upp í
nokkur ár.
Hver og einn einstaklingur er með
einstaklingsmiðaða stundaskrá. Í
boði er bókleg kennsla (t.d. danska,
stærðfræði, enska, samfélagsfræði, al-
menn fræðsla, auk þess sem hægt er að
taka bókleg fög í gegnum fjarkennslu
frá menntaskóla), verkleg kennsla (m.a.
matreiðsla, hreingerningar, mennta- og
atvinnunámskeið, verknám, verkstæði
og viðhald á húsnæði/bíl), listasmiðja
(þar sem er möguleiki á að teikna, mála,
sauma, prjóna, þæfa og vinna með
leður), líkamleg heilsa (eins og jóga,
hreyfing, hópíþróttir, göngutúrar, sund,
slökun og náttúrulífsferðir), önnur
starfsemi/fög (samtöl við ráðgjafa,
hópavinna, athafnir daglegs lífs (ADL),
fréttakaffi, spilakaffi,
tölvu frítími/frjáls lestur,
tónlistarhlustun).
Ég vinn sem ráðgjafi
fyrir ákveðinn hóp
skjólstæðinga og er
með einstaklingsviðtöl
með hverjum og einum,
einu sinni í viku. Rætt er
um daglegt líf, það sem
liggur þeim á hjarta, ég
aðstoða þau við að finna
út úr því hvað það er sem
þau vilja taka sér fyrir
hendur, einstaklingarnir
setja sér markmið og
unnið er markvisst að
þeim. Allt starfsfólkið hefur ákveðið
ábyrgðarsvið, mitt er ADL og Verkstæði.
ADL er kennt sem 8 vikna námskeið
sem undirbúningur fyrir þá sem eru að
flytjast að heiman. Áhersla er lögð á að
notendur læri m.a. grunnatriði varðandi
eigin fjármál og að gera fjárhagsáætlun,
um greiðsluþjónustu, skattaskýrslu,
tryggingar, leit að húsnæði, ásamt
verklegum hluta þar sem notendur
læra um hreinlæti og þrif á eigin
heimili, læra að þvo þvott, elda mat,
kaupa inn o.s.frv. Í raun allt það sem
er mikilvægt að kunna þegar flutt er að
heiman. Á verkstæðinu er lögð áhersla
á að notendur geti æft sig í gegnum
Viðtal við
Antoníu Maríu Gestsdóttur
sem er búsett í Danmörku
Launakjör iðjuþjálfa
í Danmörku eru
góð og um margt
betri en á Íslandi þó
vissulega sé munur
á hvort viðkomandi
sé starfsmaður
hjá ríkinu,
sveitarfélögum eða
í einkageiranum
þar sem síðast taldi
kosturinn er oftast
best borgaður.