Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 26
26
Útdráttur
Inngangur: Tilgangur verkefnisins var að
útbúa upplýsingagrunn til að auðvelda yfirsýn
yfir helstu þjónustu þætti iðjuþjálfa á Grensási
og skapa samtímis grundvöll sem nýta má til
að meta gæði mismunandi þjónustuþátta og
þjónustunnar í heild.
Aðferð: Aflað var upplýsinga um
skjólstæðingshópa iðjuþjálfanna, þjón ustu líkön,
matsaðferðir og íhlutunar leiðir. Hönnuð var
sérstök yfirlitstafla til að samþætta þrep OTIPM
þjónustu ferlisins annars vegar, og hins vegar
þær matsaðferðir sem notaðar eru við greiningu
iðjuþjálfa, mismunandi íhlutunarleiðir, nálganir
og aðferðir. Iðjuþjálfar deildarinnar skráðu upp-
lýs ingar í töfluna í samræmi við vinnuvenjur.
Niðurstaða: Við gerð yfirlitstöflunnar
voru þrep OTIPM líkansins tengd þremur
meginlotum: matslotu, íhlutun ar lotu og
endurmatslotu. Í töflunni er gerður greinarmunur
á stöðluðum og óstöðluðum matstækjum sem og
munur á mats og mælitækjum.Yfirlitstaflan sýnir
að allar tegundir matsaðferða og íhlutunarleiða
OTIPM eru í notkun.
Ályktun: Taflan nýtist sem almennt
þjónustuyfirlit iðjuþjálfa á Grensási. Út frá henni
má skoða eðli mismunandi þjónustuþátta, t.d. í
samanburði við þjónustu annarra iðjuþjálfadeilda
og efla frekari framþróun þjónustu. Slíkar
upplýsingar stuðla að fagmennsku og framþróun
innan deildarinnar. Taflan nýtist einnig
iðjuþjálfanemum og auðveldar allar útskýringar
á þjónustunni fyrir starfsfólk og almenning.
Töfluna mætti útfæra síðar í undirtöflur með
upplýsingum um sérstaka þjónustuþætti fyrir
mismunandi skjólstæðingshópa, eða laga að
þjónustu annarra starfs stöðva.
Lykilorð
Þjónustuferli, líkön, fagmennska, fram þróun
Abstract
Introduction: The purpose of this
project was to construct an overview of main
occupational therapy service components at
Grensás rehabilitation center, and by doing
so create a found ation that could be used to
evaluate quality of different service aspects as
well as overall service.
Method: Information about client groups,
process models, assessment, and intervention
methods in use was obtained. An outline was
constructed integrating different OTIPM steps,
with assessment methods in use and different
intervention models, approaches and methods.
Therapists filled in the outline based on clinical
practice procedures.
Results: The OTIPM steps were conn-
ect ed with three main phases, i.e. evaluation,
intervention and re-evaluation phases.
Differentiation was made between standardized
vs non standardized assessment methods as
well as assessments and measures. The outline
reveals that all classified types of assessment and
intervention methods are in use.
Conclusion: The designed outline provides
a general overview of occupational therapy
services at Grensás. It contains information
on the nature of different service aspects
that can subsequently be compared to, for
example, occupational therapy services provided
elsewhere and ideas regarding need for further
service advancement. Such information
supports professionalism. The out line is further
of use for students, coworkers and the public
as it simplifies service explanation. The outline
could be developed later into sub-tables with
information related to specific service aspects for
different client groups or adapted to the service
of different occupational therapy departments.
Key words: Models, occupational therapy
process, professionalism, ad vancement
Þjónustuyfirlit
sem grundvöllur gæðaþróunar
innan iðjuþjálfunar
Guðrún Árnadóttir, PhD, MA,
BMROT hefur umsjón með þróunar-
og rannsóknarvinnu iðjuþjálfa á
Landspítala. Hún er einnig klínískur
dósent við læknadeild Háskóla Íslands.
Sigrún Garðarsdóttir, MSc er
yfiriðjuþjálfi Landspítala.
Þar sem þjónusta iðjuþjálfa á Landspítala (LSH), Grensási, nær
til nokkurra hópa skjólstæðinga eru
notað ar mismunandi matsaðferðir
og mismunandi íhlutunarleiðir á
hin um ýmsu stigum hennar. Til-
gang ur verkefnisins var að útbúa
upplýsingagrunn til að auðvelda yfirsýn
yfir helstu þjónustuþætti iðjuþjálfa
og skapa samtímis grundvöll sem
nýta má til að meta gæði mismunandi
þjónustuþátta og þjónustunnar í heild.
Frá 2010 hafa iðjuþjálfar á Grensási
haft þjónustulíkanið Occupational Therapy
Intervention and Process Model (OTIPM)
hannað af Fisher (1998) til hliðsjónar
við þjónustu sína. Byrjað verður á að
fjalla um mismunandi tegundir líkana í
iðjuþjálfun. Í framhaldinu verður fjallað
um uppbyggingu þjónustuyfirlits sem
byggir m.a. á OTIPM þjónustulíkaninu
og gagnlegum próffræðilegum þáttum.