Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 40
40
Fisher var sjálf með frekari upplýsingar
í sínum skrifum um leiðir og möguleika
á tengingu við sértæk líkön eins og
MOHO eða lífaflfræði. Inn í töfluna
mátti svo raða öllu því sem iðjuþjálfar
nota við þjálfun skjólstæðinga til
útskýringar fyrir almenning, heil-
brigðisstarfsfólk, skjólstæðinga og
aðstandendur þeirra. Aðrar greinar
í þessu blaði taka dæmi um hvernig
hægt er að safna upplýsingum og nota
töfluna á mismunandi starfsstöðvum
LSH. Vinnu við matslotuna er lokið í
bili á flestum þeirra starfsstöðva sem
nýta þessa yfirlitstöflu, en íhlutunarlota
býður upp á ýmsa möguleika sem gott
væri að átta sig betur á. Því þarf að
vinna áfram til að hægt sé að fá fram
betri upplýsingar um hvers konar
íhlutun er notuð og einnig hvort hún
hefur t.d. verið studd með rannsóknum
í heimildum eða ekki.
Aðgerðabinding lotna þjónustu-
ferlis tengdu MOHO í yfirlits-
töflu
Ég stakk upp á því við þá iðjuþjálfa LSH
sem vildu halda sig við þjónustuferli
MOHO að þeir reyndu að setja MOHO
þætti inn á yfirlitstöfluna til að gera þá
sýnilegri í þjónustunni. Það var nokkuð
auðvelt að fylla út þessar upplýsingar
í tengslum við matstæki í notkun því
matstækjavinnan úr vinnusmiðjunum
frá 2013 skilaði sér vel. Þar höfðu
iðjuþjálfar starfsstöðva tekið saman þau
matstæki sem eru í notkun og flokkað
þau niður hvað varðar eiginleika þeirra.
Einnig benti ég á að þar sem íhlutun í
þjónustuferli MOHO er frekar óljós
þá mætti líta til leiðanna í OTIPM
þjónustuferlinu til að auðvelda flokkun
upplýsinga og fá nákvæmara yfirlit. Sjá
tillögur að mats- og íhlutunarlotum við
gerð yfirlitstöflu í töflu 3, þar sem stuðst
er við þjónustuferli MOHO.
13
Tafla 3. Þjónustuyfirlit byggt á þjónustuferli MOHO, próffræði þáttum og íhlutunarleiðum
OTIPM
LOTUR OG ÞREP
BYGGÐ Á MOHO
MOHO
ÞÆTTIR AÐGERÐALÝSING
MATSLOTA:
1. Rökleiðsla:
Spyrja spurninga
sem stýra faglegri
rökleiðslu
Vilji
Vanamynstur
Framkvæmd
Umhverfi
ÓFORMLEG
MATSAÐFERÐ MATSTÆKI MÆLITÆKI
MATSLOTA:
2. Safna
upplýsingum
um/með
skjólstæðingi
Vilji
Vanamynstur
Framkvæmd
Umhverfi
MATSLOTA:
3. Aðstæður
skjólstæðings
Vilji
Vanamynstur
Framkvæmd
Umhverfi
ÍHLUTUNARLOTA:
4. Tilgreina
markmið
og áætlun
ÍHLUTUNARLÍKAN, LEIÐ
OG NÁLGUN
AÐFERÐ/
IDJA
ÍHLUTUNARLOTA:
5. Veita og
endurskoða íhlutun
Vilji
Vanamynstur
Framkvæmd
Umhverfi
ÓFORMLEG
MATSAÐFERÐ MATSTÆKI MÆLITÆKI
ÍHLUTUNARLOTA:
6. Safna
upplýsingum til að
meta útkomu
Vilji
Vanamynstur
Framkvæmd
Umhverfi
Tafla 3. Þjónustuyfirlit byggt á þjónustuferli MOHO, próffræði þáttum og íhlutunarleiðum OTIPM