Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 6
4 Þjóðmál VETUR 2010
Fyrstu jólaendurminningar mínar eru frá þeim árum, er ég átti heima í Garðs-
horni í Svarfaðardal . Þar var ég 3–5 ára
gamall . Það mun hafa verið á fyrstu jól-
unum, sem ég man eftir, að á jólanóttina var
stór grenjandi hríð . Ég man, að ég var fram í
búri rétt áður en jólin komu . Svo allt í einu
var eins og þrammað úti fyrir bæjardyrunum
og svo hrikti og brakaði í bæjarhurðinni .
Pabbi fór út og opnaði hurðina, til að sjá
hvort nokkur væri kominn úti . – Það var
enginn . ég varð hálfhræddur um að þetta
hefði verið einhver forynja . Svo var kveikt
á kertaljósunum og þá breyttist allt viðhorf
mitt, og svipur allra, á dularfullan hátt . Jólin
voru komin . Þau komu að mér skildist,
inn göngin, og fylltu allt með einhverjum
unaðsleik . Allt varð óvanalegt . Inn voru
bornir diskar með stórum stöflum af
hangikjöti, bringukollum og magál . Stórir
staflar af laufabrauði og kerti með hverjum
diski . Kveikt hafði verið á einum fimm sex
kertum, sem loguðu um baðstofuna . Kertið
mitt var á rúmstöðlinum við höfðalagið á
rúminu mínu . Ég sat hugfanginn og horfði
á kertaljósið . Þetta var eitthvað annað en
venjulega á kvöldin, þegar ekki logaði í
baðstofunni nema á einum grútarlampa .
Ég man eftir næstu jólum í Garðshorni .
Þá var víst stillt veður . Að minnsta kosti
var nú engin meinvættur að hrista bæjar-
hurðina . En tilfinning mín var hin sama
og árið áður . Jólin komu á sínum tíma
inn göngin . Og allt heimilisfólkið breytti
um svip . Ég man eftir öllu umstanginu
dagana fyrir jólin og þá sérstaklega er
verið var að skera út laufabrauðið . Pabbi
sat á hjónarúminu, hafði fjöl á hnjánum
og skar þar undurfagrar rósir í brauðið .
Fögnuðurinn á jólanóttina endurtók sig frá
árinu áður . Ég sat hugfanginn með kertið
mitt . Og nú vissi ég iíka að allt þetta var
gert til þess að halda hátíðlegt afmæli Jesú
Krists . Og svo bættist þar við, að þegar ég
var háttaður og allt fólkið líka, en lifði á einu
kerti, þá fannst mér að ég mundi hljóta að
sjá englana . Þetta hefir víst verið fyrir áhrif
frá lestrinum . Annars man ég ekkert um
hann . Upp frá því varð Jesús ákaflega mikil
og voldug persóna í mínum hugarheimi .
Ég fékk snemma fullvissu um að hann væri
alltaf með mér .
Fyrstu jólaminningar
séra Friðriks*
Þegar jólin komu inn göngin
í Garðshorni
______________
* Kaflabrot úr bókinni Séra Friðrik segir frá, samtalsþáttum
Valtýs Stefánssonar við séra Friðrik Friðriksson (Bókfells-
útgáfan, Reykjavík 1961) .