Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 8
6 Þjóðmál VETUR 2010
I
Frá því að alþingi tók ofríkisfulla ákvörð-un um að ákæra Geir H . Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, og stefna honum
fyrir landsdóm hefur skýrst betur en áður,
hve illa var staðið að málinu . Við meðferð
þess í þingnefnd undir formennsku Atla
Gíslasonar, þingmanns vinstri-grænna, var
ekki hugað að því hvernig staðið skyldi
að framkvæmdinni . Þegar ákæran kom
frá þinginu vöknuðu álitamál um skipun
verj anda fyrir Geir . Forseti landsdóms fór
þess jafnframt á leit við Ögmund Jónasson,
dóms mála ráðherra, að hann flytti frumvarp
til laga um breytingar á landsdómslögunum .
Annars gæti dómurinn ekki tekið á máli
Geirs á þann hátt, sem dómsforsetinn taldi
æskilegt .
Ef óðagotið og offorsið hefði ekki verið
jafnmikið á Atla og þeim sem mynduðu
meiri hluta í málinu með honum, hefði Atla-
nefndin að sjálfsögðu átt að gefa sér tóm til
að huga að framkvæmd málsins og lands-
dómslögunum samhliða því sem ákæran var
í smíðum . Þá hefðu þingmenn rætt samtím-
is, hvort ástæða væri til að ákæra, og hvernig
staðið yrði að því í reynd . Sannreyna þurfti,
hvort einhver formákvæði lands dóms lag-
anna væru þess eðlis að þau stæðust einfald-
lega ekki nútímakröfur til laga á þessu sviði .
Eftir að Geir H . Haarde kvartaði undan
því að sér hefði ekki verið skipaður verjandi,
lét ritari landsdóms eins og sú kvörtun mætti
sín lítils . Var jafnvel gefið til kynna að engin
ákæra væri fyrir hendi, fyrr en saksóknari í
málinu hefði samið hana . Síðan leit forseti
landsdómsins þannig á að hann gæti ekki
skipað Geir verjanda nema leita fyrst um-
sagnar saksóknara . Að fenginni þeirri um-
sögn var Geir loks skipaður verjandi . Þá
höfðu fræðimenn á sviði refsiréttar sagt
fráleitt ef ósk hans um skipun verjanda yrði
ekki tafarlaust samþykkt . Geir óskaði að
sjálf sögðu skýringar á því, hvers vegna þurft
hafi álit saksóknara á því, hvort honum
skyldi strax skipaður verjandi .
Lögfróðir menn hafa látið í ljós þá skoðun
Af vettvangi stjórnmálanna
_____________
Björn Bjarnason
Virðingarleysi fyrir lögum
og rétti