Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 31
Þjóðmál VETUR 2010 29
Einn afkastamesti samfélagsrýnir okkar tíma er breski rithöfundurinn og geð-
læknirinn Theodore Dalrymple . Dal rymple
skrifar undir dulnefni og er þetta eitt af
mörgum, en maðurinn heitir réttu nafni
Anthony Daniels og er fæddur í Bretlandi
1949 af rússnesku og þýsku bergi brotinn .
Dal rymple hefur komið víða við sem
rithöf undur, skrifað fjölda greina í dagblöð
og tímarit, svo sem The Times, The Daily
Telegraph og The Spectator og ritar nú greinar
í City Journal sem gefið er út af Manhattan-
stofnuninni í New York . Einnig hefur
hann skrifað nokkrar bækur, bæði á sviði
læknisfræði og samfélagslegrar greiningar,
enda starfaði hann sem fangels islæknir um
skeið, og afrakstur sam félagslegrar ábyrgðar
hins opinbera hefur orðið honum að
umhugsunarefni . Meðal bóka hans eru: Life
at the Bottom: The Worldview that Makes the
Underclass; Our Culture, What´s Left of It:
The Mandarins and the Masses; Spoilt Rotten:
The Toxic Cult of Sentimentality, auk þeirrar
sem hér verður kíkt í, Not With a Bang but
a Whimper: The Politics and the Culture of
Decline . Stuðst er við bandaríska útgáfu
bókarinnar sem kom út 2008, en bók með
sama nafni kom út í Bretlandi 2009 og
geymir hún alla kafla fyrri útgáfunnar en
auk þess þrjá til viðbótar .
Til að greina samfélagsmein okkar
tíma nýtir Dalrymple sér læknisfræðilega
þekkingu sína og þá einkum í sérgrein sinni
í geðlæknisfræðum . Hann drepur auk þess
niður fæti í bókmenntasögunni og not-
færir sér þekkt verk og persónusköpun
annarra höfunda til að leggja áherslu á eða
byggja undir eigin athuganir . Megintitill
bókarinnar, Not with a Bang but a Whimper,
gefur strax til kynna að ekki sé allt eins og
best verði á kosið . Titillinn er fenginn úr
síðasta vísuorði ljóðs eftir bresk/bandaríska
ljóð skáldið T . S . Eliot, The Hollow Men eða
Holir Menn, eins og Helgi Hálfdánarson
kaus að nefna ljóðið:
This is the way the world ends
This is the way the world ends
This is the way the world ends
Not with a bang but a whimper .
Eliot sendir lesandann í flókinn leiðangur
með vísunum í sögulega atburði og marg-
slungin skáldverk . Má fyrst taka vísun
hans í skáldsögu Josephs Conrads, Innstu
Ragnhildur Kolka
Velferð á villigötum
Skrif Theodores Dalrymple um velferðarríki nútímans